Velferð - 01.10.2013, Blaðsíða 7

Velferð - 01.10.2013, Blaðsíða 7
öllum greiddum atkvæðum. Frumvarp undirbúningsnefndar að lögum var síðan borið upp og samþykkt með nokkrum breytingum samkvæmt tillögum fundarmanna. í þriðju grein laganna voru ákvæði um að félagsmenn geti allir orðið sem eru hjartasjúklingar og einnig aðrir sem áhuga hafa á að styðja markmið samtakanna. í samræmi við þetta mættu læknar, hjúkrunarfólk og margir aðstandendur sjúklinganna á stofnfundinn og gerðust félagar. Fyrstu stjórn LHS skipuðu Ingólfur Viktorsson formaður, Alfreð G. Alfreðsson varaformaður, Björn Bjarman ritari, Jóhannes Proppé gjaldkeri og Sigurveig Halldórsdóttir meðstjórnandi. Markmið LHS var frá upphafi að standa fyrir fjáröflun, til þess að vinna að markmiðum samtakanna með fræðslu um hjartasjúkdóma, upplýsingaöflun og miðlun, styrkja menntun sérfræðinga og að efla samvinnu við önnur samtök Ingólfur Viktorsson hjartasjúklinga.8 Fljótlega eftir stofnun samtakanna voru stjórnarmenn boðaðir til fundar og hádegisverðar með sérfræðingum hjartadeildar Landspítalans. Pökkuðu gestgjafarnir hlýhug í garð deildarinnar með fyrirhugaðri fjáröflun og gerðu grein fyrir starfi deildarinnar. Stjórnarmenn LHS gerðu grein fyrir starfi og fyrirætlunum samtakanna og sögðust myndu tryggja það að hjartasónartækið sem nefnt er hér á eftir yrði áfram í landinu. Samstarf samtakanna og starfsfólks Landspítala hefur verið mjög gott alla tíð og samskipti mikil. Til gamans flýtur stutt tilvitnun úr fundargerð stjórnar hér með, til að sýna hve margt hefur breyst frá þessum tíma: „Skotið var á stuttum fundi stjórnar í „reykingaafdrepi" hjartadeildar.“9 „Reykingaafdrep” á hjartadeildum heyra nú sögunni til. Fyrsta fjáröflun samtakanna var sala „hjartaprjónsins“, sem var rautt hjartalaga merki með áfestum prjóni. Sala hans gekk strax vel og var um árabil traust fjáröflunarleið. Fyrstu skrefin Hjartasjúklingum var vel ljóst hvað þörf fyrir nýjan tækjabúnað á Landsspítala var orðin brýn. Því var fyrsta verk þeirra að safna fé til að kaupa hjartasónartæki, sem hingað hafði verið lánað, erlendis frá til kynningar. Með öflugri fjársöfnun og samningum um eftirgjöf á tollum og aðflutningsgjöldum tókst að halda tækinu og færa Landspítala það til eignar. Næsta verkefni var að Emil Sigurðsson og Rúrik Kristjánsson úr fjáröflunarnefnd LHS. ----------------------------------------------9 beita sér með ályktunum og þrýstingi á ráðamenn um að fá fjárveitingu til kaupa á nýju hjartaþræðingartæki, sem var orðið mjög nauðsynlegt að fá. Tækið var keypt árið 1984. Næsta ár voru keyptir þrír hjartasíritar, „Holtertæki“, á vegum LHS til að fylgjast með hjartsláttartruflunum sjúklinga og skrá þær. Gjöf LHS fylgdi hugbúnaður og ferð fyrir hjúkrunarfræðing til London til að kynna sér meðferð tækjanna. í samantekt sem þessari er tæpast hægt að koma að öllum þeim fjársöfnunum og tækjagjöfum gjöfum sem LHS stóð að á fyrstu árum sínum. Til dæmis var efnt til átaks undir kjörorðinu: „Tökum á - tækin vantar“ árið 1985 og þetta slagorð hefur sjaldnast verið langt undan enda lýsandi fyrir það sem var verið að gera. Fyrsti formaður fjáröflunarnefndar var Björn Halldórsson, en 1985 tók Rúrik Kristjánsson við því starfi og gegndi því um langt árabil af orðlögðum dugnaði. Fljótlega eftir stofnun samtakana var tekið upp kynningar- og upplýsingastarf í húsnæði Hjartaverndar að Lágmúla 9, þar sem hin nýju samtök fengu aðstöðu. Var samstarf þessara tveggja samtaka mjög gott um þessa starfsemi. Henni var einkum beint að sjúklingum sem voru að fara til útlanda í hjartaaðgerð og vandamönnum þeirra. Einnig tókst að fá fargjöld fylgdarmanna hjartasjúklinga til útlanda lækkuð um helming frá venjulegu fargjaldi. Þessu til viðbótar var veitt aðstoð eftir föngum við þá hjartasjúklinga sem sækja þurftu læknishjálp til útlanda. Landssamtök hjartasjúklinga komu sér upp eigin skrifstofuaðstöðu í góðu leiguhúsnæði í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu og flutlu starfsemi sína þangað úr Lágmúla 9. Var skrifstofan opnuð 4. júlí, 1985. Þess má geta að viðræður voru við Hjartavernd árið 1990 um aukið samstarf. Hjartavernd fór fram á samvinnu við LHS um upplýsingaþjónustu og bauð fram hlutdeild í launum sameiginlegs starfsmanns, sem ynni að þessum málum. Sigurður Helgason átti viðræður við Hjartavernd vegna þessa, taldi á því ýmis tormerki og að slíkt samstarf væri því ekki tímabært. Sigurður tók síðan við hálfu starfi sem upplýsinga- og fræðslustjóri Hjartaverndar þar sem hann ritstýrði m.a. málgagni samtakanna, Hjartavernd, fram til ársins 1996.10 Með starfi Sigurðar hjá Hjartavernd, ásamt því að gegna formennsku í LHS sköpuðust góð tengsl milli þessara samtaka, sem bæði hafa unnið að málefnum hjartasjúkdóma, Hjartavernd á sviði rannsókna og vísindastarfs og LHS sem sjúklingasamtök, sem stöðugt hafa unnið að bættum aðstæðum til lækninga á hjartasjúkdómum. Samstarf við SÍBS um útgáfumál Allt frá stofnun Landssamtaka hjartasjúklinga var áhugi SÍBS á starfi þeirra mikill, enda hafði Reykjalundur þá starfrækt hjartaendurhæfingu í nokkur ár og þekking var orðin mikil á þeirri grein. Blaðið Reykjalundur birti grein eftir Ingólf Viktorsson árið 1984 um fyrstu ár LHS og í janúar 1985, þegar ákveðið hafði verið að leggja af Sigurður Helgason tók víð formennsku LHS árið 1990. VELFERÐ 7

x

Velferð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.