Velferð - 01.10.2013, Síða 15
9
söfnunarkúlur úr plasti og
settar í tíu apótek til viðbótar,
og þær skiluðu allar góðum
árangri.
Pessar söfnunarkúlur
hafa reynst afar góð leið til
fjáröflunar. Pær hafa verið í
Flugstöð Leifs Eiríkssonar,
á ðllum útsölustöðum Nl,
í öllum lyfjabúðum og
fjölmörgum verslunum. Rúrik
hefur frá upphafi annast eftirlit
með þessum gullgæsum, en
það þarf að tæma baukana
reglulega og fylgjast með að
þeir séu sýnilegir og þetta
kostar umtalsverða vinnu.
Jónas Jóhannsson vann með
Rúrik að þessu í mörg ár, en hann lést í ársbyrjun 2013.
Velunnarar Hjartaheilla, sem átt hafa leið út fyrir landssteinana
hafa oftar en ekki farið með poka af erlendri mynt úr kúlunum
til að skipta í seðla og síðan í gjaldmiðil sem nýttist Hjartaheill
í starfi sínu. Pegar upp er staðið hefur þetta reynst ein öflugasta
og ódýrasta fjáröflun sem samtökin hafa staðið fyrir og hefur hún
skilað ófáum krónum í kassann.28
Það getur tekið á aðflokka og telja erlenda mynt.
Framlög og gjafir.
Eins og að framan greinir snerist starf Landssamtakanna
frá upphafi um að safna fé til að bæta aðstöðu til lækninga á
hjartasjúkdómum, m.a. með kaupum á nauðsynlegum tækjum
fyrir sjúkrahús. Einnig var allmikið um að samtökin tæku
þátt í sjúkrakostnaði félagsmanna sinna í formi styrkja. Fyrsta
fjáröflunarverkefni LHS var að safna tæpum tveimur milljónum
króna fyrir hjartasónartæki til Landsspítalans árið 1984. Á
þeim tíma var skammur tími liðinn frá myntbreytingu og tvær
milljónir nýkróna jafngiltu tvö hundruð milljónum gamalla
króna. Petta var því stórfé. Hér er ekki unnt að tíunda allt það
sem gert hefur verið í áranna rás, en söfnunarfé nemur yfir 200
milljónum á verðlagi hvers tíma. Framreiknað yrði þetta margfalt
hærri fjárhæð. Tækjabúnaður til hjartaskurðlækninga er mjög
tæknivæddur og úreldist á tiltölulega skömmum tíma. Pað hefur
því skipt miklu máli fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu að eiga slík
samtök að bakhjarli, en hið sama má segja um fjölmörg önnur
sjúklingasamtök sem hafa farið líkt að. Án samhjálpar fjöldans
sem hefur verið virkjaður með þessum hætti væri búnaður
íslenskra sjúkrahúsa líklega fátæklegri en raun ber vitni.
Gullmerki LFIS
Á 12 ára afmæli Landssamtakanna var ákveðið að láta gera
gullmerki á vegum LHS og heiðra með því félaga sem skarað
hefðu fram úr í störfum í þágu samtakanna. Heiðursmerki úr gulli
voru veitt í fyrsta skiptið hinn 28. október 1995 því fólki sem
skipuðu fyrstu stjórnina. Þau voru: Ingólfur Viktorsson, Alfreð
G. Alfreðsson, Björn Bjarman, Jóhannes Proppé og Sigurveig
Halldórsdóttir. Alls hafa 28 einstaklingar verið heiðraðir með
þessum hætti. Þá voru einnig framleidd silfurmerki sem áformað
var að deildirnar gætu notað til þess að veita viðurkenningar
innan sinna raða. Minna varð úr að það væri gert og er vitað um
sjö einstaklinga sem fengu silfurmerki hjá deild sinni.
Perluvinir
Perluvinir er gönguhópur sem stofnaður var á vegum LHS en
hefur ávallt verið opinn öllum áhugasömum. Nafn sitt dregur
hann af einu helsta kennileiti borgarinnar, Perlunni í Öskjuhlíð,
en þar mæta Perluvinir jafnan klukkan 11 á laugardögum, ganga
í klukkutíma og fá sér síðan súpu í Perlunni. Pessi gönguhópur
var stofnaður í janúar 1999, hefur starfað síðan og þátttaka er án
allra skilyrða annarra en mæta og ganga. Frá upphafi hefur Rúrik
Kristjánsson verið leiðtogi hópsins. Það fellur nánast aldrei úr
dagur hjá göngufólkinu, en helst hefur það borið við ef jóla- eða
nýársdagur hefur verið á laugardegi.
Hópur Perluvina fyrsta veturinn, 1999.
Og enn er gengið á laugardögum.
Perluvinir hafa gengið um allt höfuðborgarsvæðið og víðar.
Sem dæmi má nefna Öskjuhlíðina, Nauthólsvík yfir í Skerjafjörð,
Fossvogsdal, Laugardal og Laugarnes, Elliðaárdalinn, Kársnesið,
Álftanes, Grafarvog og Geldinganes, Heiðmerkurslóðir,
Grandann, Seltjarnarnes, Vatnsmýrina og margar fleiri leiðir. Þar
að auki hefur verið lagt í ferðir á Þingvöll, í Viðey og Engey.29
Stórsveit SÍBS
Starfandi hefur verið nokkuð á annan áratug eins konar
„jólaballahljómsveit“, sem kennir sig við SÍBS. Upphaflega var
hún nefnd SÍBS bandið, en síðar þegar fjölgaði í bandinu fékk
hún nafnið Stórsveit SÍBS.
Upphaf þessa var, að Pétur Bjarnason, framkvæmdastjóri
SÍBS var fenginn til að spila á píanó á jólaskemmtun Neistans,
Rúrik við eina af
söfnunarkúlunum góðu.
VELFERÐ 15