Mosfellingur - 11.01.2018, Page 2
Áfram Afturelding
Umsjón: Birgir D. Sveinsson (birgird@simnet.is)
Í þá gömlu góðu...
héðan og þaðan
þRETTÁnDagLEðI Í MoSFELLSSVEIT
Dagrenningur-Aldarsaga Ungmennafélagsins
Aftureldingar (UMFA) eftir Bjarka Bjarnason
og Magnús Guðmundsson hefur m.a. að
geyma skemmtilega frásögn (bls. 168) um
þrettándagleði sveitunga um 1960.
Félagar UMFA voru stórhuga við hátíða-
höldin, seldu aðgang að hátíðarsvæðinu og
minnist undirritaður sölumanns í
Austurstræti í Reykjavík klædd-
um riddarabúningi að selja
í forsölu aðgöngumiða
og var mikil örtröð í
kringum hann.
Nú á dögum er þrettándagleðin einn
vinsælasti árlegi viðburður í Mosfellsbæ
þegar 4.000-5.000 sveitungar og gestir þeirra
safnast saman í brekkunum neðan Holta-
hverfis við Leirvoginn.
Mynd: Skjalasafn Mosfellsbæjar. Ljósmyndin
er nær 60 ára gömul. Það eru þau Gerður
Lárusdóttir frá Brúarlandi og Þórður Guð-
mundsson frá Reykjum sem eru í hlutverkum
álfadrottningar og álfakonungs.
Heimild: Dagrenningur.
MOSFELLINGUR
www.mosfellingur.is - mosfellingur@mosfellingur.is
Næsti Mosfellingur kemur út 1. febrúar
Útgefandi: Mosfellingur ehf., Spóahöfða 26, sími: 694-6426
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Hilmar Gunnarsson, hilmar@mosfellingur.is
Ritstjórn:
Anna Ólöf Sveinbjörnsdóttir, annaolof@mosfellingur.is
Ragnar Þór Ólason, raggiola@mosfellingur.is
Ruth Örnólfsdóttir, ruth@mosfellingur.is
Prentun: Landsprent. Upplag: 4.000 eintök. Dreifing: Pósturinn.
Umbrot og hönnun: Mosfellingur ehf.
Próförk: Ingibjörg Valsdóttir
Tekið er við aðsendum greinum á mosfellingur@mosfellingur.is
og skulu þær ekki vera lengri en 500 orð. Efni og auglýsingar
skulu berast fyrir kl. 12, mánudegi fyrir útgáfudag.
Mosfellingur kemur út að jafnaði á þriggja vikna fresti.
Jón Kalman er Mosfellingur ársins. Við erum að tala um rithöfund á
heimsmælikvarða. Jón Kalman hefur
búið ásamt fjölskyldu sinni í Mosfells-
bæ í rúma tvo áratugi. Hann
er vel að þessari nafnbót
kominn. Fyrir jólin gaf
hann út enn eina bókina
sem sló rækilega í gegn.
Þá hefur nafn hans verið
nefnt í tengslum við
Nóbelsverðlaunin.
Það kemur ekki
óvart enda Kalm-
an oft nefndur
sem næsti
Laxness.
Nú er unnið að fjölmiðlaskýrslu sem bæta á rekstur einkarekinna
fjölmiðla. Það er falleg hugsun og
væri gott ef hægt væri t.d. að sporna
við fækkun héraðsfréttablaða á
landinu enda reksturinn oft á tíðum
erfiður. Næsta sem heyrðist var að um
væri að ræða afnám virðisaukaskatts
af áskriftum prent-, ljósvaka- og
netmiðla. Þar fór það.
Áskriftarblöðin geta þá hugsað sér gott til glóðarinnar. Við höfum
gefið Mosfelling út í 15 ár. Alltaf
hefur blaðinu verið dreift frítt inn
um allar lúgur og stendur til að halda
því áfram eins lengi sem Guð lofar.
Kalman heiðraður
Hilmar Gunnarsson, ritstjóri Mosfellings
www.isfugl.is
Fasteignasala Mosfellsbæjar • Kjarna • Þverholti 2 • 270 Mosfellsbær • S. 586 8080 • fax 586 8081 • www.fastmos.is • Einar Páll Kjærnested, löggiltur fasteignasali - Frítt, frjálst og óháð bæjarblað2
álfadrottning og
-kóngur árið 1960