Mosfellingur - 11.01.2018, Blaðsíða 4

Mosfellingur - 11.01.2018, Blaðsíða 4
www.lagafellskirkja.is kirkjustarfið HelgiHald næstu vikna sunnudagurinn 14. janúar Guðsþjónusta í Lágafellskirkju kl. 11:00 Sr. Kristín Pálsdóttir sunnudagurinn 21. janúar Kvöldguðsþjónusta kl. 20:00 Sr. Arndís Linn sunnudagurinn 28. janúar Guðsþjónusta í Mosfellskirkju kl. 11:00 Sr. Arndís Linn sunnudagaskólinn er í Lágafellskirkju á sunnudögum kl. 13:00 Foreldarmorgnar eru í safnaðarheimilinu á fimmtudagsmorgnum kl. 10:00 ttt æskulýðsstarf fyrir tíu til tólf ára er í safnaðarheimilinu á fimmtudögum kl. 16. sOund æskulýðsstarf fyrir ungmenni í 8. til 10. bekk er á fimmtudags- kvöldum kl. 20:00 - Bæjarblaðið í Mosfellsbæ64 Gunnar og Halldóra hljóta fálkaorðu Við hátíðlega athöfn á Bessastöðum þann 1. janúar 2018, sæmdi forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, tólf Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Mosfellingar áttu tvo fulltrúa í þessum hópi. Gunnar V. Andrésson ljósmyndari hlaut riddarakross fyrir störf á vettvangi íslenskra fjöl- miðla. Gunnar er einn reyndasti blaðaljós- myndari landsins og hefur starfað við fagið í áratugi. Gunnar tekur myndir fyrir Fréttablaðið og Vísi. Halldóra Björnsdóttir íþróttafræðingur hlaut einnig riddarakross fyrir framlag sitt til heilsuvernd- ar og lýðheilsu. Halldóra starfar sem kennari í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Einnig starfar hún sem framkvæmdarstjóri Beinverndar auk þess að hafa stýrt Morgunleik- fimi á RÚV í 30 ár. Allar upplýsingar um starfið í sókninni er að finna á heimasíðu kirkjunnar w w w. l a g a fe l l s k i r k j a . i s Heitt vatn og leik- skólagjöld lækka Um áramót lækkaði verð á heitu vatni til Mosfellinga um 5 prósent. Verð á útseldum rúmmetra af heitu vatni frá Hitaveitu Mosfellsbæjar er því í dag 112,88 krónur. Heita vatnið er þannig 21,1 prósenti ódýrara í Mosfellsbæ en hjá Veitum sem sjá m.a. Reykvíkingum fyrir vatni. Haraldur Sverrison bendir á að um 40% af heita vatni Veitna komi frá Mosfellsbæ. Þann 1. janúar lækkaði einnig almennt leikskólagjald um 5% og munu foreldrar greiða lægra gjald um næstu mánaðamót. Á árinu 2017 samþykkti bæjarstjórn þá nýlundu að öll börn 18 mánaða og eldri greiddu leikskólagjald óháð vistunarformi. Á þessu ári verður bætt um betur og aldurinn færður niður í 13 mánaða. Sama gjald er nú greitt hvort sem börn eru hjá dagforeldrum, í leikskólum í Mosfellsbæ eða í einkareknum leikskólum utan bæjarfélagsins. Helgafell fasteignasala · Stórhöfða 33 · 110 Reykjavík S. 566 0000 · www.helgafellfasteignasala.is Guðbrandur Löggiltur fasteignasali Rúnar Löggiltur fasteignasali Knútur Löggiltur fasteignasali Gunnar Hdl. Löggiltur fasteignasali Hólmar Nemi til fasteignasala Jón Nemi til fasteignasala Rúrý Innanhúss- ráðgjafi Linda Nemi til fasteignasala Þrastarhöfði 2 270 Mosfellsbær 98,1 fm 3 herb. Bílageymsla Rúnar 7755 805 44.600.000 Tröllateigur 24 270 Mosfellsbær 120,6 fm 3 herb. Bílageymsla Rúnar 7755 805 45.900.000 Laxatunga 179 270 Mosfellsbær 203,4 fm Endaraðhús Ein hæð Innb. bilskúr Rúnar 7755 805 82.900.000 Gerplustræti 12 270 Mosfellsbær 80 fm 3-4 herb Stæði í bílageymslu Knútur 7755 800 41.000.000 ný íbúð Afhendist án gólfefna GLÆSILEGA InnRÉTTAð VefaRasTRæTi 16-22 270 Mosfellsbær sjá nánar á www.helgafellfasteignasala.is Líklega vönduðustu íbúðir landsins Sýnum samdægurs 33-61 milljónVerð hjá byggingaraðila Möguleiki á viðbótar- fjármögnun Tveggja TiL fjögurra herbergja íbúðir Vandaðar sérsmíðaðar innréttingar frá Axis, lýsing frá Lumex og góð lofthæð. Húsið er staðsteypt, klætt báruáli frá Áltak, þar sem hönnunin fær að njóta sín til fulls. Innsteypt innfelld lýsing undir svölum. Hiti undir steyptri stétt. Bílageymsluhús í sérflokki með 35 stæðum ásamt 41 bílastæði utandyra. Sameign og lóð eru fullfrágengin. Rafmagnsopnanir í anddyrum, teppa-, og flísalögð sameign. Hljóðplötur í sameign til að dempa hljóð utan íbúðar. Ljósleiðaratenging komin inn í íbúðir.Afhending við kaupsamning Mikill metnaður einkennir alla hönnun og efnisval nOKKRAR íbúðIR EFTIR VoGaTunGa Raðhús á einni hæð · 270 Mosfellsbær 130 fm raðhús á einni hæð með bílskúr. Afhendast rúmlega fokheld. Afhending í febrúar. Hafið samband við sölumenn AðEInS 3 húS EFTIR Mosfellsbær er í öðru sæti samkvæmt árlegri könnun Gallup á þjónustu sveitar- félaga en könnunin mælir viðhorf íbúa til þjónustu í 19 stærstu sveitarfélög- um landsins. Þegar íbúar í Mosfellsbæ eru spurðir hversu ánægð- ir eða óánægðir þeir séu með Mosfellsbæ sem stað til að búa á eru 91% aðspurðra ánægðir eða mjög ánægðir. Athyglis- vert er að varla sést neinn munur á afstöðu til þess- arar spurningar eftir bak- grunnsbreytum eins og aldri, kyni, menntun eða tekjum. Í fremstu röð meðal sveitarfélaga Alls eru 84% íbúa í Mosfellsbæ ánægðir með aðstöðu til íþróttaiðkunar. Spurðir um þjónustu Mosfellsbæjar í heild eru 84% mjög eða frekar ánægðir sem er óbreytt hlutfall milli ára. Þegar spurt er um gæði umhverfisins í nágrenni við heimili reynast 83% ánægðir og 78% eru ánægð með þjón- ustu í tengslum við sorphirðu bæjarins og er Mosfellsbær þar í efsta sæti meðal sveit- arfélaga. Ánægja með þjónustu í leik- skólum bæjarins mælist um 75%. Mosfellsbær er samkvæmt könnuninni vel yfir lands- meðaltali í öllum málaflokk- um og raunar í fremstu röð meðal sveitarfélaga sem mældir eru nema einum. Sá málaflokkur er þjónusta grunnskóla bæjarins sem dalar lítillega milli ára. Þess- ar niðurstöður er því mikilvægt að rýna og nýta þannig til þess að gera enn betur á nýju ári, segir í tilkynningu frá Mosfellsbæ. Mikill uppbygging Mikil uppbygging á sér nú stað í Mos- fellsbæ þar sem nýtt hverfi í Helgafellslandi rís nú á miklum hraða og stefnt er að opn- un Helgafellsskóla í byrjun árs 2019. Íbúum fjölgaði á síðasta ári um 8% sem verður að teljast verulegur vöxtur og verkefni bæj- arins er að sjá til þess að þessi vöxtur hafi jákvæð áhrif á íbúana og þjónustu við þá. stoltur af niðurstöðunni Haraldur Sverrisson bæjarstjóri segist ánægður með útkomuna og að könnunin veiti upplýsingar sem unnt sé að nýta til að gera gott enn betra. „Það er gott að fá það enn og aftur staðfest að Mosfellingar eru ánægðir með bæinn sinn. Við höfum ávallt verið í einu af þremur efstu sætunum þegar spurt er um Mosfellsbæ sem stað til að búa á, og ég er stoltur af því. Fólk vill setjast að í bænum okkar eins og sést á hinni miklu íbúafjölg- un sem nú á sér stað. En það má alltaf gera betur og við þurfum að huga vel að þeim þáttum sem koma síður út í könnuninni.“ Heildarúrtak í könnuninni er 11.700 manns, þar af 438 svör úr Mosfellsbæ. Nánari upplýsingar má finna á www.mos.is. 91% íbúa ánægðir með Mosfellsbæ sem stað til að búa á • Árleg þjónustukönnun Gallup Ánægðir íbúar í Mosfellsbæ Ánægð(ur) Hvorki né Óánægð(ur) 91% 5% 4% mosfellsbær að vetrarlagi Þorrablót Aftureldingar verður haldið í íþróttahúsinu að Varmá 20. janúar. Miða- sala og borðaúthlutun fer fram föstudaginn 12. janúar á Hvíta Riddaranum. Líkt og áður er eingöngu hægt að taka frá sæti gegn keyptum miða. Mikil stemning hefur myndast í aðdraganda blótsins og uppselt hefur verið undanfarin ár. Þorrablótið á sér langa sögu í menningu bæjarins, fyrsta blótið sem haldið var í þessari mynd var árið 2008 og er því 10 ára afmælisblót í ár. Þetta er stærsta fjáröflun- arsamkoma Aftureldingar sem haldin er en það eru handknattleiksdeildin og knatt- spyrnudeildin sem halda blótið ár hvert. Þorramatur og lamblæri úr kjötbúðinni Að vanda sér Geiri í Kjötbúðinni um mat- inn og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi því auk hins hefðbundna þorramatar verður á boðstólnum lambalæri og með því. Hin þjóðkunni Gísli Einarsson er veislu- stjóri og Salka Sól, Magni og Eyþór Ingi munu halda uppi stuðinu á dansgólfinu fram eftir nóttu ásamt hljómsveit Mosfell- ingsins Tomma Tomm. Borðaskreytingar munu fara fram kl. 12- 13:30 á blótsdegi. Mikill metnaður hefur verið í borðaskreytingum hjá blótsgestum og er það orðinn stór partur af þorrablóts- undirbúningnum. Veitt eru verðlaun fyrir skreytingarnar, þar sem óháð dómnefnd dæmir borðin og gefur stig. Allar upplýsingar um blótið má finna á Facebook-síðu Þorrablóts Aftureldingar. Undirbúningur hafinn fyrir þorrablót UMFA

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.