Mosfellingur - 11.01.2018, Blaðsíða 19

Mosfellingur - 11.01.2018, Blaðsíða 19
Útnefning á íþróttakarli og íþróttakonu Mosfellsbæjar 2017 Lyftingamaður Mosfellsbæjar Lyftingamaður ársins er Dagur Fan- narsson. Hann átti frábært ár og varð annar á Íslandsmótinu í Ólympískum lyftingum 2017, vann gull á Meistara- móti UMSK og átti frábært ár þar sem árangur hans var stöðugur. Dagur hefur sýnt frábærar framfarir og á bjarta framtíð. Dagur er aðeins 17 ára gamall og hefur sýnt fádæma öryggi á þeim mótum sem hann hefur tekið þátt í, fengið nánast allar sínar lyftur gildar og sýnt stöðugar framfarir. Dagur Fannarsson lyftingar Íþróttamaður handknattleiks- deildar Aftureldingar Elvar Ásgeirsson er íþróttamaður handknattleiksdeildar Aftureldingar árið 2017. Elvar er fæddur árið 1994 og hefur leikið allan sinn feril með Aftureldingu. Elvar hóf ungur að leika með Aftureldingu og er nú að leik sína sjöttu leiktíð með meistaraflokki karla. Fyrir tímabilið 2015-2016 meiddist Elvar alvarlega og missti af tímabilinu. Hann sneri til baka fyrir síðasta tímabil og kom mjög sterkur til leiks. Með Elvar innanborðs lék liðið meðal annars til úrslita í bikarkeppninni auk þess að komast í undanúrslit Íslandsmótsins. Í dag er Elvar lykilleikmaður liðsins bæði í vörn og sókn og í stöðugri framför. Í vetur hefur Elvar spilað spilað 11 leiki í deildarkeppninni og skorað í þeim 53 mörk. Síðustu ár hefur Elvar verið valinn í úrvalshóp HSÍ sem skipað er þeim leikmönnum sem hugsaðir eru sem framtíðarmenn íslenska landsliðsins. Elvar Ásgeirsson handknattleikur Kynning á íþróttakörlum sem tilnefndir eru vegna kjörs til íþróttakarls Mosfellsbæjar 2017, og afrekum þeirra á árinu. Frjálsíþróttamaður Aftureldingar Guðmundur Ágúst fór snemma að æfa íþróttir en byrjaði fyrst hjá badminton- deild Aftureldingar. Hann hefur æft frjálsar frá 17 ára aldri eða alls í 5 ár. Hann hafði mest áhuga á hlaupum og varð fljótt góður í þeim. Guðmundur hafði mikið keppnisskap og vilja til æfa mikið. Í dag æfir hann að meðaltali fimm sinnum í viku og er fyrirmynd íþróttamanna, skipulagður og þolin- móður. Í dag er hann meðal fremstu sprett- hlaupara á landinu og er farinn keppa um landsliðsæti. Helsti árangur 2017: (innanhúss) Íslandsmeistari 20-22 ára í 60 m hlaupi á 7,19 sek. (innanhúss) Íslandsmeistari 20-22 ára í 200 m hlaupi á 22,58 sek. (innanhúss) Íslandsmeistari 20-22 ára í 400m hlaupi á 50,13 sek. (utanhúss) Íslandsmeistari 20-22 ára í 100 m hlaupi á 11,59 í -3,6 í mótvind. (utanhúss) Íslandsmeistari 20-22 ára í 200 m hlaupi á 22,32 í -0,5 í mótvind. Guðmundur Ágúst Thoroddsen frjálsíþróttir Hestaíþróttamaður Harðar Reynir hefur verið í hestum alla tíð og unnið við greinina í fjölda ára. Hann hefur alltaf verið í Hestamannafélaginu Herði í Mosfellsbæ. Reynir var í landsliðinu í hestaíþróttum á árinu og náði þar góðum árangri og komst í úrslit á Heimsmeistaramótinu, líkt og hann gerði á síðasta heimsmeist- aramóti. Reynir var oft í toppbaráttunni á keppnisbrautinni í ár, og hefur hann margoft verið í landsliðinu og á marga Íslandsmeistaratitla að baki. Reynir hefur verið íþróttamaður Harðar átta sinnum í röð. KosninG Á www.Mos.is Reynir Örn Pálmason hestaíþróttir Kosning fer fram á vef Mosfellsbæjar dagana 11. - 15. janúar. Velja skal karl í 1., 2. og 3. sæti sem og konu í 1., 2. og 3. sæti.

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.