Mosfellingur - 11.01.2018, Page 16

Mosfellingur - 11.01.2018, Page 16
 - Nýársávarp bæjarstjóra Mosfellsbæjar16 Kæru Mosfellingar! Við áramót er okkur tamt að taka stöðuna, leggja mat á það sem gerðist á liðnu ári um leið og við horfum fram á veginn. Höfum við gengið til góðs, götuna fram eftir veg og hvernig blasir framtíðin við okkur? Árið 2017 var gott ár fyrir marga. Mikil hagsæld hefur ríkt í okkar góða landi undanfarin ár sem skilað hefur sér til þjóðarinnar með meiri velmegun og auknum kaup- mætti. Það mátti lesa í fjölmiðli um daginn að yfir stæði fordæmalaust góðæri og laun hefðu aldrei verið hærri. Þótt líklegt megi teljast að við séum nú á toppi hagsveifl- unnar, er útlitið til næstu ára samt sem áður bjart. Áfram er spáð vexti í hagkerfinu, fjölgun ferðamanna, góðri stöðu fiskistofna og tryggri afkomu þjóðarbúsins. Töluvert umrót var í landsmálapólitíkinni á sl. ári. Ríkisstjórnin sprakk eftir stutta setu og kosningar fóru fram. Niðurstaðan leiddi til myndunar nýrrar ríkis- stjórnar með mjög breiða pólitíska skírskotun þar sem Sjálfstæðisflokkur og Vinstri græn mynduðu ríkisstjórn með þátttöku Framsóknarflokksins. Í Mosfellsbæ hafa Sjálfstæðisflokkur og Vinstri græn myndað meirihluta í bæjarstjórn frá árinu 2006 þrátt fyrir að annar þessara flokka hafi lengst af haft nægan styrk í bæjarstjórn til að vera einn í meirihluta. Þetta samstarf hægri og vinstri flokks hefur gefist afar vel í Mosfellsbæ enda hefur ríkt traust og trúnaður milli aðila. Nú má segja að „Mosfells- bæjarmódelið“ hafi verið tekið upp í landsmálunum og ég hef þá trú að þessi nýja ríkisstjórn eigi eftir að reynast þjóðinni vel og geti haldið áfram þeim góðu verkum sem hafa verið í gangi. Fyrir Mosfellsbæ var árið gott og ánægja ríkti meðal íbúanna með bæinn sinn samkvæmt könnunum. Mig langar sérstaklega að nefna eitt verkefni sem efnt var til á árinu en það er lýðræðisverkefnið „Okkar Mosó“. Það verkefni tókst einstaklega vel og var þátttaka íbúa mikil sem leiddi til margra góðra verka sem íbúar óskuðu eftir að hrint yrði í framkvæmd. Ljóst er að framhald verður á verkefnum sem þessum. Mikil íbúafjölgun í Mosfellsbæ Mjög mikil íbúafjölgun varð í Mosfellsbæ eða um 8% á árinu 2017. Segja má að hér sé um fordæmalausa fjölgun að ræða. Mestu munar um nýju hverfin okkar Leirvogstungu og Helgafellshverfi og er fjölbýlishluti þess hverfis nú að verða fullbyggður. Töluvert er þó eftir af sérbýlishluta Helgafellshverfis en fullbyggt munu um 3.000 íbúar búa þar. Þessu til viðbótar eru að fara af stað verkefni í miðbænum sem felur í sér um 250 nýjar íbúðir við Bjarkarholt, Háholt og Þverholt ásamt verslunarhús- næði. Það mun setja nýjan svip á miðbæinn okkar og gera hann mun samkeppnishæfari um verslun, þjónustu og menningu ýmis konar. Svona mikil uppbygging kallar á fjárfestingar í inn- viðum. Helgafellsskóli er nú í byggingu og er gert ráð fyrir að fyrsti áfangi hans verði tekinn í notkun í upphafi árs 2019. Önnur stór framkvæmd sem ráðist verður í á árinu 2018 er bygging knatthúss að Varmá. Húsið verður byggt þar sem eldri gervigrasvöllur er nú og verður um 3.800 fm að stærð. Auk knattspyrnuvallar verður í hús- inu hlaupabraut ásamt göngubraut, áhorfendaaðstöðu og snyrtiaðstöðu. Húsið verður án alls efa bylting fyrir íþróttafólk, sérstaklega knattspyrnu, í Mosfellsbæ. Með húsinu verður til góð æfingaaðstaða allan ársins hring. Áfram verður haldið með atvinnuuppbyggingu í bæn- um. Lóðum verður fjölgað í Desjamýri og uppbygging þar komin vel á veg. Gerður hefur verið samningur um uppbyggingu á lóðum við Sunnukrika sem er hluti af miðsvæði bæjarins. Þar hefur þremur af fjórum lóðum á svæðinu verið úthlutað þar sem reisa á skrifstofu- og þjónustuhúsnæði, aðstöðu fyrir ferðaþjónustuaðila og í skoðun er að þar verði einnig 4-5 stjörnu hótel með veit- ingastað. Uppbygging á Leirvogstungumelum er hafin en þar hefur landeigandi selt lóðir undir atvinnustarfs- semi. Þetta eru allt saman góðar fréttir fyrir Mosfellsbæ sem mun auka atvinnutækifæri í bænum sem og tekjur bæjarsjóðs sem hægt er að nota til að bæta enn frekar þjónustu við bæjarbúa. Álögur lækka og þjónusta efld Samkvæmt fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar fyrir árið 2018 munu skattar og gjöld lækka jafnframt því að þjónusta við íbúana verður efld. Þrátt fyrir þetta er gert ráð fyrir rúmlega 300 mkr. afgangi af rekstri bæjarsjóðs á árinu. Aukin hagsæld, fjölgun íbúa ásamt traustum rekstri gerir það að verkum að svona er hægt að standa að málum hjá Mosfellsbæ. Meðal þess sem fjárhagsáætlunin inniheldur má nefna: Þjónusta við börn og unglinga aukin. Áfram verður unnið að því að auka þjónustu við 12-18 mánaða börn og plássum fjölgað um 20 á þeim ungbarnadeildum sem stofnaðar hafa verið. Frístundaávísun mun hækka um 54% og fara í 50 þúsund kr. og gjaldskrár leikskóla miðast við 13 mánaða aldur í stað 18 mánaða. Jafnframt var ákveðið að almennt gjald í leikskóla lækki um 5% frá áramótum. Þá verður unnið að verkefnum til að skapa enn betri aðstöðu í leik- og grunnskólum m.a. með því að efla tölvukost og aðrar umbætur með verulegum fjármunum á árinu 2018. Álögur á einstaklinga og fyrirtæki lækka. Álagningar- hlutföll fasteignaskatts, fráveitu- og vatnsgjalds lækka um 11% og lækkar kostnaður íbúa og af fasteignum sem því nemur auk þess sem lækkun fráveitu- og vatns- gjalds hefur áhrif til lækkunar fyrir fyrirtæki í bænum. Þá verða ekki almennar hækkanir á gjaldskrám fyrir þá þjónustu sem bærinn veitir og lækka gjaldskrár því að raungildi milli ára þriðja árið í röð. Framlög til afsláttar á fasteignagjöldum til tekjulægri eldri borgara hækka um 50% milli ára. Loks mun verð á heitu vatni lækka um 5% þann 1. janúar 2018. Með þessu er tryggt að allir muni með einhverjum hætti njóta góðs af bættu rekstrarumhverfi sveitarfé- lagsins. Í vor verður kosið til sveitarstjórna og þá munu landsmenn ganga að kjörborðinu og kjósa fulltrúa í bæjarstjórnir. Ég vænti þess að við Mosfellingar munum sýna lýðræðisvitund okkar í verki og flykkjast á kjörstað síðasta laugardag í maí. Mosfellsbær fagnaði 30 ára kaupstaðarafmæli þann 9. ágúst sl. Haldið var veglega upp á afmælið og komu m.a. forsetahjónin í vel heppnaða opinbera heimsókn í bæinn okkar. Hátíðarhöldin enduðu síðan með glæsi- legri bæjarhátíð „Í túninu heima“ síðustu helgina í ágúst. Framtíðin er björt í Mos- fellsbæ og með gildin okkar góðu VIRÐINGU – JÁKVÆÐNI - FRAMSÆKNI og UMHYGGJU að leiðarljósi eru okkur allir vegir færir. Ég vil nota tækifærið og þakka ykkur öllum fyrir gott samstarf, samskipti, vináttu og stuðning á árinu 2017 og megi árið 2018 verða okkur gæfuríkt og gleðilegt. HaraldurSverrisson,  bæjarstjóri Með ósk um gæfuríkt ár Um áramót Nýarskveðja bæjarstjóra Takk fyrir sTuðninginn 30 X 50 CM

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.