Mosfellingur - 11.01.2018, Qupperneq 22
- Þrettándinn22
Félag aldraðra í Mosfellsbæ og nágrenni
FaMos auglýsir
Heimasíða: www.famos.is - Netfang: famos@famos.is
Aðalfundur FaMos 2018
Aðalfundur Félags aldraðra í Mosfellsbæ
og nágrenni verður haldinn mánudaginn
19. febrúar klukkan 20:00 í Hlégarði.
Dagskrá
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Örþorrablót í boði félagsins að loknum aðalfundarstörfum.
Geymið auglýsinguna - Stjórnin
Þegar rætt er um sjálfsstjórn er gjarnan
verið að vísa til þess hvernig fólk stjórn-
ar hugsunum sínum, tilfinningum og
hegðun við mismunandi aðstæður.
Almennt má segja að sjálfsstjórn lýsi
hæfni fólks til að breyta, stýra eða halda
aftur af viðbrögðum sínum. Sem dæmi
má nefna ungling sem (enn) eitt kvöldið
fær skilaboð frá vinum um að hittast og
gera eitthvað skemmtilegt. Foreldr-
arnir minna unglinginn staðfastlega á
að hann verði að vera heima að vinna
heimanám frekar en að fara út með
vinunum.
Svona tilvik geta reynt verulega á
unglinginn að stjórna tilfinningum sem
gjarnan koma fram eins og vonbrigði,
leiða, reiði, öfund o.s.frv. Unglingurinn
þarf að ná að stjórna tilfinningum sín-
um, sætta sig við niðurstöðuna, vinna
heimavinnu og forðast að eiga í leiðin-
legum samskiptum við foreldra.
Ein leið til þess að auðvelda þetta
fyrir unglinginn er að aðstoða hann við
að setja sér markmið. Markmiðasetning
getur verið mikilvægur þáttur til þess að
æfa sjálfsstjórn hvort sem það er í námi
eða öðru sem hugurinn stefnir að. Ef
unglingurinn í dæminu hér væri búinn
að setja sér markmið varðandi námið þá
væri hann með skýrari mynd af því sem
hann stefnir að.
Rannsóknir hafa sýnt að skýr markmið
í námi, hvort heldur sem þau eru stór
eða smá, hjálpa börnum og unglingum
að gera sér grein fyrir þeim tíma, vinnu
og jafnvel fórnum sem fylgja því að ná
þangað sem þau vilja fara. Á þennan
hátt verður til hvati sem unglingurinn
hefur búið til og er mikils virði fyrir
hann sjálfan. Þegar markmiðin eru skýr
er auðveldara að ná stjórn með því að
minna sig á markmiðin og efla viljann
til að standa sig vel.
Mikilvægur þáttur í markmiðasetn-
ingu í námi barna og unglinga er að hafa
foreldra og kennara með í ráðum og
ávallt hafa í huga að markmiðin verða
að vera raunsæ og klæðskerasniðin að
hverjum og einum.
Farsælast er að skipta markmiðum
niður í nokkur smærri markmið eða
skref og nærri í tíma og ALLS EKKI
gleyma að verðlauna fyrir sjálfsstjórn
og skref í átt að lokamarkmiði.
Ert þú búin(n) að hjálpa þínu barni
að setja sér markmið í námi?
SigríðurJónaSigurjónsdóttir,
sálfræðinemiviðfræðslu-
ogfrístundasviðMosfellsbæjar.
Hlutverk markmiða-
setningar í sjálfsstjórn
SkólaSkrifStofa moSfellSbæjar
Skóla
hornið
þrettándabrennu
svipmyndir frá
starfsmenn
mosfellsbæjar
stóðu vaktina
fjölskylduskemmtun
á síðasta degi jóla
grýla og leppalúði jólasveinarnir
kveðja mosfellinga
álfadrottning
og -kóngur
kveikt á síðustu
stjörnuljósunum
gaman á brennuallskyns kynjaverur
M
yn
di
r/
Ra
gg
iÓ
la