Mosfellingur - 29.11.2018, Síða 4
www.lagafellskirkja.is
kirkjustarfið HelgiHald næstu vikna
sunnudagur 2. desember
1. sunnudagar í aðventu
kl. 11:00 Guðsþjónusta
í Lágafellskirkju - Sr. Arndís Linn.
Kl. 13:00 Sunnudagaskóli í Lágafells-
kirkju. Umsjón: Berglind og Þórður.
Miðvikudagur 5. desember
kl. 14:00 Hátíðarstund félagsstarfs
aldraðra á Eirhömrum.
Báðir prestar.
sunnudagur 9. desember
2. sunnudagar í aðventu
kl. 13:00 Sunnudagaskóli
í Lágafellskirkju.
Umsjón: Berglind og Þórður
Kl. 20:00 Aðventukvöld í Lágafellskirkju.
Báðir prestar.
Miðvikudagur 12. desember
kl. 13:30 Helgistund á Eirhömrum.
Sr. Arndís Linn.
Fimmtudagur 13. desember
kl. 20:00 „Syngjum saman uppáhalds
aðventu- og jólasöngva“.
Söngstund á aðventu í Lágafellskirkju.
Umsjón: Þórður Sigurðarson, organisti.
sunnudagur 16. desember
3. sunnudagur í aðventu
kl. 11:00 Aðventustund barnastarfsins.
Berglind, Þórður og sr. Ragnheiður
Jónsdóttir.
- Fréttir úr bæjarlífinu64
Aðventutónleikar
Diddúar í 21. sinn
Aðventutónleikar Diddúar og
drengjanna hafa verið sérstakur
tónlistarviðburður í menningarlífi
Mosfellsbæjar í rúma tvo áratugi.
Tónleikarnir verða haldnir í
Mosfellskirkju miðvikudaginn 12.
desember kl. 20. Diddú syngur
ásamt blásarakvartett sem skipaður
er einvalaliði. Margir Mosfellingar
og gestir hafa árvisst sótt litlu
sveitakirkjuna í Mosfellsdal heim
af þessu tilefni, enda eru tónleikar í
Mosfellskirkju á jólaföstu orðnir
ómissandi hluti af undirbúningi
fyrir helgihald jóla.
Lopi 38 - Ístex gefur
út nýja prjónabók
Árlega gefur Ístex út uppskriftabók
undir nafninu Lopi. Bækurnar
hafa verið mjög vinsælar og selst
í mörg þúsund eintökum. Nú er
komin út glæsileg bók, Lopi 38,
með fjölbreyttri hönnun fyrir alla
fjölskylduna eftir Védísi Jónsdóttur.
Viðtökur hafa
verið frábærar og
hefur Ístex vart
undan í fram-
leiðslu litanna
í vinsælustu
flíkurnar. Kvöld-
vöktum hefur því
verið bætt við til
að anna eftirspurn. Bókin er einnig
komin út á ensku og kemur fljótlega
út á þýsku. Védís er einn femsti
prjónahönnuður okkar hérlendis
og hefur hannað fyrir Ístex, Vogue
knitting, Rammagerðina og fleiri.
Hún hannar einnig alla litaflóruna
í Lopa, Kambgarni og Spuna og
er mikil gleði í herbúðum Ístex að
endurheimta Védísi hönnuð eftir
búsetu hennar erlendis. Lopi 38 fæst
þar sem lopi er seldur og inniheldur
22 uppskriftir úr Léttlopa, Plötulopa,
Einbandi, Álafosslopa og Bulkylopa.
Síðastliðin níu ár hefur Creditinfo greint rekstur
íslenskra fyrirtækja árlega og birt lista yfir þau
fyrirtæki sem hafa sýnt fram á framúrskarandi
og stöðugan árangur í rekstri.
Þessi fyrirtæki eiga það sammerkt að vera
ábyrg í rekstri og skapa þannig sjálfbær verð-
mæti fyrir hluthafa og fjárfesta. Að þessu sinni
hljóta 857 fyrirtæki viðurkenningu eða um 2% af
öllum skráðum fyrirtækjum á Íslandi.
Hvað gerir fyrirtæki framúrskarandi?
• Fyrirtækið er í lánshæfisflokki 1-3
• Ársreikningi skilað lögum samkvæmt
fyrir 1. september
• Fyrirtækið er virkt skv. skilgreiningu Creditinfo
• Framkvæmdastjóri skráður í fyrirtækjaskrá RSK
• Rekstrartekjur að lágmarki 50 milljónir króna
2017 (nýtt skilyrði)
• Rekstrarhagnaður (EBIT > 0) síðustu
þrjú rekstrarár
• Jákvæð ársniðurstaða síðustu þrjú rekstrarár
• Eiginfjárhlutfall hærra en 20% síðustu
þrjú rekstrarár
• Eignir yfir 100 milljónir króna 2017, 90 millj-
ónir króna 2016 og 80 milljónir króna 2015.
Hér til hliðar má sjá þau mosfellsku fyrirtæki
og framkvæmdastjóra þess sem komust á lista.
167 Fagverk verktakar ehf.
Vilhjálmur Þór Matthíasson
278 Hásteinn ehf.
Jónas Henningsson
294 Reykjabúið ehf.
Kristín Sverrisdóttir
299 Síld og Fiskur ehf.
Sveinn Vilberg Jónsson
324 Sleggjan Þjónustuverkstæði
Guðmundur Björnsson
384 Nonni litli ehf.
Ragnar Þór Ragnarsson
455 Borgarplast hf.
Haukur Skúlason
462 Ísfugl ehf.
Jón Magnús Jónsson
519 Blettur ehf.
Snæbjörn Hólm Guðmundsson
602 Mosfellsbakarí ehf.
Hafliði Ragnarsson
696 Á. Óskarsson og Co ehf.
Ágúst Óskarsson
721 Útungun ehf.
Jón Magnús Jónsson
726 Alefli ehf.
Magnús Þór Magnússon
743 Nýja bílasmiðjan hf.
Ágúst Þór Ormsson
786 Laxnes ehf.
Haukur Hilmar Þórarinsson
840 Sigurplast ehf.
Jóhanna Egilsdóttir
857 Bílapartar ehf.
Bára Einarsdóttir
fyrirtæki í mosó
Fyrirtæki í Mosfellsbæ á lista Creditinfo eru nú 17 talsins
framúrskarandi fyrirtæki
þrjár viðurkenningar til reykjabændavilhjálmur hjá fagverk verktökum
Bókasafnið hefur boðið börnum að koma í safnið og lesa sér til ánægju fyrir sérþjálfaða hunda. Á myndinni má sjá Ástu, Skottu og Söru
skemmta sér vel við lesturinn. Það er Sara sem les fyrir Skottu meðan eigandinn Ásta situr hjá. Eins og sjá má er greinilega eitthvað
spennandi að gerast í bókinni. Hundar frá Vigdísi - Vinum gæludýra á Íslandi hafa heimsótt Bókasafnið og lagt við hlustir.
Hundar sem Hlusta
M
yn
d/
Ra
gg
iÓ
la