Mosfellingur - 29.11.2018, Blaðsíða 30

Mosfellingur - 29.11.2018, Blaðsíða 30
 - Safnaðarbréf Lágafellssóknar30 2. desember 1. sunnudagar í aðventu Kl. 11:00 Guðsþjónusta í Lágafellskirkju - Sr. Arndís Linn. Kl. 13:00 Sunnudagaskóli í Lágafellskirkju. Umsjón: Berglind og Þórður. 5. desember Miðvikudagur Kl. 14:00 Hátíðarstund félagsstarfs aldraðra á Eirhömrum. Báðir prestar. 9. desember 2. sunnudagar í aðventu Kl. 13:00 Sunnudagaskóli í Lágafellskirkju. Umsjón: Berglind og Þórður. Kl. 20:00 Aðventukvöld í Lágafellskirkju - Báðir prestar. 12. desember Miðvikudagur Kl. 13:30 Helgistund á Eirhömrum. Sr. Arndís Linn. 13. desember Fimmtudagur kl. 20:00 „Syngjum saman uppáhalds aðventu- og jólasöngva“ . Söngstund á aðventu í Lágafellskirkju. Umsjón: Þórður Sigurðarson, organisti. Syngjum og njótum þess að vera saman. Stund fyrir alla fjölskylduna. 16. desember 3. sunnudagur í aðventu Kl.11:00 Aðventustund barnastarfsins. Berglind, Þórður og sr. Ragnheiður Jónsdóttir. Aðventustund barnastarfsins verður sunnu- daginn 16. desember kl. 11:00 í Lágafellskirkju. Við ætlum að syngja saman jólalög, heyra um aðventukransinn og hlusta á jólasögu. 23. desember 4. sunnudagur í aðventu Kl. 14:00 Hátíðarstund á Hjúkrunarheimilinu Hamrar. Sr. Ragnheiður Jónsdóttir. 24. desember Aðfangadagur jóla kl.13:00 Jólasamvera með börnum í Lágafellskirkju - Berglind, Þórður og sr. Ragnheiður Jónsdóttir. Kl.18:00 Aftansöngur í Lágafellskirkju - Sr. Ragnheiður Jónsdóttir. Kl. 23.30 Miðnæturguðsþjónusta í Lágafellskirkju - Sr. Arndís Linn. 25. desember Jóladagur Kl. 14:00 Hátíðarguðsþjónusta í Lágafellskirkju - Sr. Arndís Linn. Kl. 16:00 Hátíðarguðsþjónusta í Mosfellskirkju - Sr. Arndís Linn. 31. desember Gamlársdagur Kl. 17:00 Aftansöngur á gamlársdag í Lágafellskirkju - Sr. Ragnheiður Jónsdóttir 6. janúar 2019 Kl. 11:00 Fjölskylduguðsþjónusta og sunnu- dagaskóli í Lágafellskirkju. Sr. Arndís Linn. Aðventan er handan við hornið. Hún er tími sterkra hefða og tilfinninga og hún hefur frá upphafi líka verið tími til að líta inn á við. Hún er tími íhugunar og sjálfskoðunar þar sem við undirbúum okkur andlega undir að taka á móti frelsandi boðskap trúarinnar. Í kirkju og samfélagi undirbúum við komu Jesú Krists og jólanna með margskonar áherslum. Með fyrsta sunnudegi í aðventu hefst nýtt kirkjuár í kirkjunni og framundan er tími gleði og eftir- væntingar. Í safnaðarstarfinu breytist taktur- inn, fermingarbörnin taka sér frí frá fræðsl- unni og í staðinn fyllist Lágafellskirkja af börnum á öllum aldri. Börnum sem koma með skólunum sínum í kirkjuheimsóknir eða leika söguna um fæðingu Jesú fyrir hvort annað. Allt starfið í kirkjunni miðar að því tengja okkur hinum mikilvæga kærleiks- og gleðiboðskap jólanna. Í desem- ber gerum við það á margvíslegan hátt, m.a. með árlegu aðventukvöldi og aðventustundum fyrir unga fólkið en líka með þeirri nýjung að við bjóðum til söngstundar í Lágafellskirkju þar sem sungnir verða jólasöngvar og sálmar. Við bjóðum þér athvarf í fjölbreyttu helgihaldi í kirkj- um okkar á aðventu. Athvarf til að kyrra hugann, styrkja trúna og tengslin við Guð og náung- ann. Vertu velkomin(n). Guð gefi ykkur öllum innihaldsríka aðventu.  Meðkveðjufráprestum  ogstarfsfólkiLágafellssóknar. Helgihaldið í Lágafellssókn á aðventu og um jól og áramót 2018 Helgihald Lágafellsóknar á aðventu og jólum Aðventukvöld Lágafellssóknar annan sunnudag í aðventu 9. desember klukkan 20:00 verður hið árlega aðventukvöld í Lágafellskirkju. Meðal tónlistarflytjenda eru: Nemendur úr Listaskóla Mosfellsbæjar, Einar Clausen, Sigrún Harðardóttir og Kristín Lárusdóttir ásamt Kirkjukór Lágafellssóknar. Organisti og tónlistarstjórnandi er Þórður Sigurðarson. Sr. Ragnheiður Jónsdóttir og sr. Arndís Linn leiða stundina. Ræðumaður kvöldsins er Hilmar Gunnarsson. Kaffiveitingar verða í safnaðarheimilinu að aflokinni dagskrá í kirkjunni í Þverholti 3, 3. hæð. allir hjartanlega velkomnir – Lágafellssókn Söfnun fermingarbarna Fermingarbörnin í Lágafellssókn gengu í hús í Mosfellsbæ þann 8. nóvember og söfnuðu 182.323 kr. sem nægir fyrir einum brunni með hreinu vatni. Fyrir hönd Hjálparstarfs kirkjunnar viljum við sérstaklega þakka fermingarbörnunum fyrir söfnunina og íbúum Mosfellsbæjar fyrir að taka vel á móti þeim og leggja þessu verkefni lið með peningagjöf. Brunnur er sannkallaður heilsubrunnur og dugir í áratugi. Í þorpi í Eþíópíu tekur lífið stakkaskiptum með nýjum brunni. Hreint vatn fyrir allt að 600 manns forðar fólki frá sjúkdómum, léttir vinnuálagi af konum og gefur þeim tíma til að sinna matvælarækt og uppeldi og stúlkur fá tíma til að fara í skóla. Hafið þökk! Sr.RagnheiðurJónsdóttir,sóknarprestur Athvarf til að kyrra hugann á aðventunni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.