Mosfellingur - 29.11.2018, Side 16

Mosfellingur - 29.11.2018, Side 16
 - Stærsti auglýsinga- og fréttamiðill í Mosfellsbæ16 Í sögulegu samhengi er það nú ekki svo ýkja langt síðan stórir hópar Íslendinga fluttust af landi brott í leit að betra lífi. Leiðin lá alla leið til Vestur- heims og í flestum tilfellum var með öllu ómögulegt að snúa aftur til gamla landsins. Allir kannast við sögur um heimþrá og rómantík og allmargir, ef ekki þjóðin öll, getur rakið ættir sínar til einhverra sem settust að vestur í Kanada eftir miklar hrakningar. Þetta eru spennandi og athyglis- verðar frásagnir og þær koma okkur við. Sammerkt öllu því fólki sem leggur land undir fót og flyst langar leiðir burt frá heimkynnum sínum er: leitin að betra lífi. Hér í Mosfellsbænum hafa búið Ís- lendingar og útlendingar hlið við hlið í sátt og samlyndi um langt skeið. Nú er svo komið að Mosfellsbær tekur við nýjum íbúum af erlendum uppruna nær í hverjum mánuði. Fólkið kemur úr öllum heimshornum, af mismunandi uppruna með mismunandi forsögur en hver og einn með sömu framtíðar- löngun, að lífið verði betra en það var áður. Á síðustu mán- uðum hafa ný börn byrjað í skólum Mosfells- bæjar í hverri viku. Börn sem þurfa ekki eingöngu íslensku- kennslu heldur einnig faðmlag til aðlögunar. Lettland, Lithá- en, Sýrland, Úganda, Gana, Pólland, Rússland, Afganistan, Kúrdistan, Slóvakía og fleiri og fleiri lönd eiga nú sína sendi- herra á mismunandi aldri í bænum. Verkefnin sem fylgja þessum nýja veruleika eru ærin. Börnin fá góða þjónustu í skólunum. Lítil stúlka frá Lettlandi með enga enskukunnáttu þarf aðra þjónustu en piltur frá fjarlægu landi sem er vel talandi á enska tungu. Þetta segir sig sjálft, en er sett hér fram til að varpa ljósi á þá staðreynd að hver einasti nýr erlendur einstaklingur þarf kennslu við sitt hæfi. Á mörgum heimilum heyra börnin aðeins sitt móðurmál sem þýðir að íslenskan er bara skólamál. Til þess að fyrirbyggja árekstra, fordóma og ein- angrun þurfa allir í þessu samfélagi að vita, skynja og skilja að markmið hvers og eins er nákvæmlega það sama. Það er leitin að hamingjunni. ElísabetBrekkan nýbúakennarivið  Varmárskólaí  Mosfellsbæ Örlítil hugleiðing um nýja íbúa frá fjarlægum slóðum skóla hornið fræðsluskrifstofa mosfellsbæjar kíkid á okkur á Facebook - roskvinnustofa@gmail.com - s: 6924005 RÖSK vinnustofa Sérhæfum okkur í prentun á persónulegum gjöfum - púdar - veggplattar - ísskápsseglar - Formiðdagur í kyrrð í Mosfellskirkju 8. desember og 15. desember milli kl 09:00 til kl. 11:00 “Gríptu daginn” - í kyrrð - Íhugun – kyrrð – útivera Á kyrrðardeginum förum við í hvarf og tökum okkur hlé frá daglegri önn. Þögnin og kyrrðin veita tækifæri til íhugunar, að mæta sjálfum sér og Guði, að sjá líf sitt í nýju ljósi, vinda ofan af og láta uppbyggjast og endurnærast á sál og líkama. Að ganga út út myrkrinu og inn í birtu dagsins. Umsjón hafa: Sr. Ragnheiður Jónsdóttir og sr. Arndís Linn Skráning í síma 566 7113 eða í gegnum netfangið: lagafellskirkja@lagafellskirkja.is Formiðdagur í kyrrð í Mosfellskirkju 8. desember og 15. desember milli kl. 09:00 til kl. 11:00 „Gríptu daginn“ - í kyrrð íhugun kyrrð útivera

x

Mosfellingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.