Mosfellingur - 29.11.2018, Page 49

Mosfellingur - 29.11.2018, Page 49
Aðsendar greinar - 49 Það borgar sig að versla í heimabyggð Mosfellingar og nærsveitaMenn HÁHOLTI 14 SÍMI 586 1210 Aldrei meira úrval af jólaseríum og gluggaskrauti JÓLIN ERU KOMIN Í BYMOS Veriðvelkomin Við lifum á tímum skyndibita og skynditísku. Þegar við opnum blöð- in, eyðum tíma á fésbók eða vöfrum um á alnetinu er endalaust verið að kynna okkur fyrir nýjustu tísku. Það þykir algjörlega saklaust að kaupa sér nýjasta stílinn, jafnvel þó að fataskápurinn sé troðfullur. Það eru ný mynstur, ný snið, nýir litir sem koma í búðirnar reglulega og þá finnst mörgum erfitt að vera í tísku síðasta árs. Eða hvað? Ég þekki fólk sem kaupir nær aldrei nýjar vörur umhverfisins vegna, byrjar fyrst að skoða það sem það vantar í t.d. Kolaportinu eða búðum Rauða krossins. Margar af mín- um uppáhaldsflíkum í gegnum tíðina hafa verið fundnar í búðum góðgerðasamtaka í þeim borgum sem ég hef búið í. Börnin mín ólust upp í fötum sem ég keypti fyrir lítið fé í sams konar búðum. Samt voru þau alltaf fín, enda rata föt þeirra sem eyða miklu fé í föt til t.d. Rauða krossins. Í Mosfellsbæ er haldinn reglulegur skiptimarkaður á barnafötum þar sem fólk getur komið með þær flíkur sem börnin þeirra hafa vaxið upp úr og fengið stærri flíkur sem þau passa í. Þetta er algjörlega frábært tækifæri, en mjög fáir nýta sér þennan skiptimarkað. Hvers vegna skyldi það vera? Líklega er það vegna þess að fólk gerir sér ekki grein fyrir þeim umhverfisáhrifum sem fatafram- leiðsla veldur. Tökum t.d. hettupeysu úr bómull. Það þarf yfir 10.000 lítra af vatni til að framleiða peysuna! Það væri nóg drykkjarvatn fyrir 13 manns í ár! Það þarf 15.000 lítra af vatni til að framleiða gallabuxur. Fataiðnaðurinn er í topp 5 sætum þess iðnaðar sem mengar mest í heiminum - og er þar í hópi með olíuframleiðendum. Eitt hundrað milljarð- ar nýjar flíkur eru framleiddar árlega. Bóm- ull er nýtt í 43% af flíkum sem eru seldar í Evrópusambandinu. Á bómullar- ökrum er notað skordýraeitur sem mengar vatn og er skaðlegt fyrir þá sem vinna á ökrunum. Efnin eru lituð með litarefnum sem skaða þá sem vinna við litunina og mengar vatn. Í Indónesíu, þar sem 400 fataverksmiðjur er að vinna á bökkum Citarum-ánnar, er að finna eitruðu þungmálmana kvika- silfur, kadmíum, blý og arsenik. Aralvatn í Kazakhstan hefur stórminnkað vegna áveituvatns til bómullarræktunar. Þegar við kaupum okkur ódýran skyndi- bómullarbol sem er aðeins notaður í nokk- ur skipti og lendir síðan í gámi í Sorpu, erum við ekki að borga fyrir allan þann kostnað sem til féll við framleiðslu bolsins. Við borgum ekki fyrir umhverfisáhrifin, heilsuáhrifin eða samfélagsáhrifin. Algjör vitundarvakning er nauðsynleg til þess að fá fleiri til að hugsa sig um tvisvar áður en skroppið er í búð til að kaupa enn eina flíkina. Á Íslandi getum við staðið okkur miklu betur, verslað í búðum sem selja notuð föt eða tekið þau í skiptimarkaði Rauða krossins. Þið eruð öll velkomin á skipti- fatamarkað í húsnæði Rauða kross Mos- fellbæjar í Þverholti 7 á miðvikudögum frá 13-16 (13-18 eftir áramót) þar sem unnt er að skipta á fötum á börn 12 ára og yngri. Þannig getið þið orðið umhverfisvinir og um leið kennt börnunum ykkar að láta sig umhverfið varða. Þess má geta að fatamarkaðurinn verður einnig í Kjarna þann 1. desember ásamt fleiri góðum gestum. Tilvalið til að gera jólainnkaupin á hagkvæman og vistvænan máta. Kristín Vala Ragnarsdóttir, meðstjórnandi hjá Rauða kross Mosfellsbæjar Leyndarmál tískunnar Íslendingar geta lagt sitt af mörk- um til að auka bindingu og minnka losun gróðurhúsalofttegunda. Við getum minnkað losun með því að keyra bílinn minna, nota minna plast, minnkað matarsóun og fleira. Við getum einnig stuðlað að aukinni bindingu koltvísýrings úr andrúmslofti. Skógrækt og landgræðsla stuðla að auk- inni bindingu og endurheimt votlendis stuðlar að minni losun frá mýrum. Við getum tekið þátt í ýmsum leiðum til að kolefnisjafna okkur, en sú leið sem lítið hefur verið rætt um er að stuðla að aukinni kolefnisbindingu með kaupum á íslenskum jólatrjám. Íslensk jólatré eru að mestu leyti greni og fura, en það eru trjátegundir sem binda töluvert mikið kolefni þar sem þetta eru yfirleitt hraðvaxta tegundir. Algengt er að fyrir hvert jólatré sem keypt er séu gróðursett 30 tré í staðinn. Búast má við að 15 af þeim séu aftur tekin sem jólatré eða verði fyrir áföllum, grisjuð burt o.s.frv. Það þýðir að hin 15 ná að vaxa og verða jafnvel yfir 20 metrar á hæð þegar fullum vexti er náð eftir áratugi. Reikna má með að meðaljólatréð sé búið að binda tæpt kíló af kolefni á vaxtarskeiði sínu. Þau tré sem plantað er í staðinn munu á vaxtarskeiði sínu binda yfir 5 tonn af kolefni. Með kaupum á íslensku jólatré er því verið að stuðla að framtíðar kol- efnisbindingu upp á a.m.k. 5 tonn kolefnis! Meðalstór fjölskyldubíll sem ekinn er 17.000 km á ári losar 2150 kg af koltvísýringi út í and- rúmsloftið á hverju ári og samsvarar það 580 kg af hreinu kolefni út í andrúmsloftið. Þetta þýðir að kaup á einu jólatré stuðlar að framtíðar kolefnisbindingu á við 9 ára akstur bíls! Að sjálfsögðu eru margir óvissuþættir í þessu reikningsdæmi, en það er hins vegar engin óvissa falin í því að þú getur farið út í Hamrahlíðarskóg, keypt þér í íslenskt jóla- tré og stuðlað þannig að bindingu kolefnis til framtíðar. Er það ekki flott jólagjöf? Jólatrjáasala Skógræktarfélags Mosfells- bæjar hefst sunnudaginn 9. desember kl. 13 með opnun jólaskógarins í Hamrahlíð. Hvetjum við alla til að mæta og taka þátt í skemmtuninni - og að sjálfsögðu að kaupa íslenskt tré úr skóginum. Jólakveðja, Björn Traustason Skógræktarfélagi Mosfellsbæjar Viltu stuðla að aukinni kolefnisbindingu með kaupum á íslensku jólatré? Næsti heimaleikur í íþróttahúsinu að Varmá AftureldiNg - gróttA Olísdeild karla í handknattleik suNNudAgur 2. desember kl. 17:00

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.