Mosfellingur - 22.02.2018, Síða 2
Áfram Afturelding
Umsjón: Birgir D. Sveinsson (birgird@simnet.is)
Í þá gömlu góðu...
VEFARINN - KLJÁSTEINN
Á árunum 1959-1977 var
gólfteppafyrirtækið Vefarinn
í Kljásteini við Þverholt.
Mosfellshreppur eignaðist
húsið 1977 og átti um skeið.
Íbúum fjölgaði mjög á þess-
um árum og Varmárskóli
tvísetinn og dugði ekki til.
Kannað var hvort nota
mætti Kljástein fyrir
barnakennslu en horfið var
frá því. Skólahljómsveitin
sem var í örum vexti varð að
víkja úr Varmárskóla og fékk
inni í Kljásteini. Foreldrar
nemenda lögðu á sig
ómælda vinnu við að gera
þetta iðnaðarhús kennsluhæft en starfið hófst þar á haustdögum
1978. Myndirnar sýna nokkra af þeim sem lögðu hönd á plóg. Nú
er bílasalan Ísband í Kljásteini.
MOSFELLINGUR
www.mosfellingur.is - mosfellingur@mosfellingur.is
Næsti Mosfellingur kemur út 15. mars
Útgefandi: Mosfellingur ehf., Spóahöfða 26, sími: 694-6426
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Hilmar Gunnarsson, hilmar@mosfellingur.is
Ritstjórn:
Anna Ólöf Sveinbjörnsdóttir, annaolof@mosfellingur.is
Ragnar Þór Ólason, raggiola@mosfellingur.is
Ruth Örnólfsdóttir, ruth@mosfellingur.is
Prentun: Landsprent. Upplag: 4.500 eintök. Dreifing: Pósturinn.
Umbrot og hönnun: Mosfellingur ehf.
Próförk: Ingibjörg Valsdóttir
Tekið er við aðsendum greinum á mosfellingur@mosfellingur.is
og skulu þær ekki vera lengri en 500 orð. Efni og auglýsingar
skulu berast fyrir kl. 12, mánudegi fyrir útgáfudag.
Mosfellingur kemur út að jafnaði á þriggja vikna fresti.
Í dag eru tæplega 100 dagar til sveitarstjórnarkosninga. Nú fer
helmingurinn af fólkinu að hrósa
öllu því sem vel hefur verið gert og
hinn helmingurinn að drulla
eins mikið og hann getur.
Nú þegar er búið að
stofna falsaða aðganga
á Facebook til að reyna
koma höggi á pólitíska
andstæðinga. Umræðan
á netinu verður
skrautleg fram á
vorið. Ég treysti
hinsvegar
Mosfelling-
um til að
vera málefnalegir og greina muninn á
réttu og röngu. Aðdragandi kosninga
getur verið skemmtilegur en líka oft á
tíðum leiðinlegur. Ég trúi því að þetta
geti orðið skemmtilegt.
Í næstu blöðum munum við kynna til leiks þau stjórnmálaöfl sem
bjóða fram krafta sína. Það stefnir í að
þau verði fleiri en nokkru sinni fyrr.
Að lokum langar mig að fagna nýstofnuðum samfélagssjóði
KKÞ. Flott hjá kaupfélagsfólki að
láta gott af sér leiða með þessum
hætti. Úthlutanir eiga eftir að verða
innspýting í okkar góða samfélag.
Kosningavorið hafið
Hilmar Gunnarsson, ritstjóri Mosfellings
www.isfugl.is
Fasteignasala Mosfellsbæjar • Kjarna • Þverholti 2 • 270 Mosfellsbær • S. 586 8080 • fax 586 8081 • www.fastmos.is • Einar Páll Kjærnested, löggiltur fasteignasali - Frítt, frjálst og óháð bæjarblað2
héðAN og þAðAN
Sigvaldi
SturlaugSSon
Birgir d.
SveinSSon
Frá vinStri: Pétur BjarnaSon, KaritaS
KriStjánSdóttir, guðmundur jóhanneS-
Son, Bjarney einarSdóttir, erlingur
KriStjánSSon og jón vigFúS BjarnaSon.
erlingur KriStjánSSon, Pétur BjarnaSon,
jón vigFúS BjarnaSon, grétar hanSSon, Kári
SigurBergSSon, einar PálSSon og Páll helgaSon
jóhann BjörnSSon