Mosfellingur - 22.02.2018, Side 10
- Fréttir úr bæjarlífinu10
Fimmtudaginn 15. febrúar var haldinn
formlegur stofnfundur Miðflokksins í
Mosfellsbæ. Fundurinn var haldinn á Hótel
Laxnesi.
Fjöldi manns sótti fundinn og var fimm
manna stjórn kosin og þrír varamenn.
Formaður stjórnar er Friðrik Ólafsson verk-
fræðingur. Stjórnin er kosin til bráðbirgða
eða fram að fyrsta formlega aðalfundi.
Fundurinn ákvað að stefnt skuli að því að
bjóða fram til bæjarstjórnar í Mosfellsbæ
og við val á lista verði uppstilling notuð.
Auglýst verður eftir áhugasömum aðilum
(sjá auglýsingu annars staðar í blaðinu).
Áhugasamir aðilar geta einnig haft sam-
band við formann félagins fridrik@meter.
is fyrir 26. febrúar.
Í tilkynningu frá flokknum segir að
Miðflokkurinn vilji virkja rödd fólks í Suð-
vesturkjördæmi og býður því fram til sveit-
arstjórnarkosninga sem fram fara laugar-
daginn 26. maí. Stefnt er að því að bjóða
fram í Mosfellsbæ, Kópavogi, Garðabæ,
Hafnarfirði og Seltjarnarnesi.
Ætla að bjóða fram í sveitarstjórnarkosningunum 2018
Miðflokkurinn formlega
stofnaður í Mosfellsbæ
hluti fundarmanna á
stofnfundi flokksins
í P r ó f k j ö r i o k k a r
S j á l f S t æ ð i S m a n n a
þ a n n 1 0 . f e b r ú a r
Takk fyrir
sTuðninginn
í fjórða sætið Hjúkrunarfræðingar óskast
Óskum eftir hjúkrunarfræðingum til starfa á hjúkrunarheimilið Hamra
í Mosfellsbæ. Um er að ræða fastar stöður og sumarafleysingar.
Vinnutími og starfshlutfall eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar veita: Kristín Högnadóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar (kristinh@eir.is)
og Edda Björk Arnardóttir mannauðsstjóri (edda@eir.is) í síma 522 5700.
Hjúkrunarheimili og öryggisíbúðir
Hlíðarhúsum 7, 112 Reykjavík, sími 522 5700
Kynntu þér flokkunarvefinn á flokkid.sorpa.is sorpa.is/plastipoka
Frá og með 1. mars geta íbúar Mosfellsbæjar sett
allt plast saman í lokuðum plastpoka í sorptunnuna.
Plastpokarnir verða flokkaðir vélrænt frá öðru rusli og
þeim komið til endurvinnslu.
Engar afsakanir og ekkert vesen —
annars fær umhverfið að kenna á því.
ENGAR AFSAKANIR
– ALLT PLAST Í POKA
Kynntu þér flokkunarvefinn á flokkid.sorpa.is sorpa.is/plastipoka
Frá og með 1. mars geta íbúar Mosfellsbæjar sett
allt plast saman í lokuðum plastpoka í sorptunnuna.
Plastpokarnir verða flokkaðir vélrænt frá öðru rusli og
þeim komið til endurvinnslu.
Engar afsakanir og ekkert vesen —
annars fær umhverfið að kenna á því.
ENGAR AFSAKANIR
– ALLT PLAST Í POKA
Á reitunum á milli Framhaldsskóla Mosfellsbæjar og
Krónunnar eru hafnar framkvæmdir við byggingu
verslunar- og íbúðarhúsnæðis.
Markmið gildandi deiliskipulags er að þétta og efla
miðbæ Mosfellsbæjar. Einnig að móta skjólsæla, þétta
og sólríka íbúabyggð auk verslunar og þjónustu og
styrkja þannig götumyndina. Svæðið er í hjarta bæjarins
og því lögð rík áhersla á metnað og vandaða hönnun við
gerð og frágang mannvirkja á svæðinu.
Allt að 105 íbúðir á milli FMOS og Krónunnar
Byggingarnar verða þriggja til fimm hæða háar og
verslanir verða á fyrstu hæð á þeim reit sem er næstur
Krónunni. Aðrar byggingar á svæðinu verða eingöngu
íbúðarhúsnæði og er gert ráð fyrir að unnt verði að
byggja allt að 105 íbúðir á þessum þremur reitum í
Bjarkarholti.
Framkvæmdir munu standa yfir næstu tvö ár og stefnt
verður að því að þeim verði að mestu lokið í árslok 2019.
Samgöngustígurinn meðfram Bjarkarholti mun á
meðan framkvæmdir standa sem hæst verða nýttur fyrir
bæði gangandi og hjólandi umferð en hann var áður
sérgreindur eftir samgöngumáta.
Á næstunni er fyrirhuguð vinna við lagnir í götunni
og má því gera ráð fyrir röskun á umferð á því tímabili.
Verslunar- og íbúðarhúsnæði rís í Mosfellsbæ • Þétta og efla miðbæinn • Áætlað að framkvæmdum ljúki í árslok 2019
Framkvæmdir hafnar í Bjarkarholti
Svona munu fjölbýlishúsin líta út sem nú eru í byggingu næst Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ. Deiliskipulagsuppdráttur af fyrirhuguðum byggingum á milli Framhaldsskólans (t.v.) og Krónunnar (t.h.)
miklar framkvæmdir standa
nú yfir í miðbæ mosfellsbæjar