Mosfellingur - 23.02.2017, Page 2
Hér gætu komið
opnunartímar.
letur Footlight
Hér gætu komið
opnunartímar.
letur Footlight
Umsjón: Birgir D. Sveinsson (birgird@simnet.is)
Í þá gömlu góðu...
MOSFELLINGUR
www.mosfellingur.is - mosfellingur@mosfellingur.is
Næsti Mosfellingur kemur út 16. mars
Útgefandi: Mosfellingur ehf., Spóahöfða 26, sími: 694-6426
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Hilmar Gunnarsson, hilmar@mosfellingur.is
Ritstjórn: (blaðamenn og ljósmyndarar)
Anna Ólöf Sveinbjörnsdóttir, annaolof@mosfellingur.is
Ragnar Þór Ólason, raggiola@mosfellingur.is
Ruth Örnólfsdóttir, ruth@mosfellingur.is
Prentun: Landsprent. Upplag: 4.000 eintök. Dreifing: Pósturinn.
Umbrot og hönnun: Mosfellingur ehf.
Próförk: Ingibjörg Valsdóttir
Tekið er við aðsendum greinum á mosfellingur@mosfellingur.is
og skulu þær ekki vera lengri en 500 orð. Efni og auglýsingar
skulu berast fyrir kl. 12, mánudegi fyrir útgáfudag.
Mosfellingur kemur út að jafnaði á þriggja vikna fresti.
Það verður spennandi að fylgjast með uppbyggingu í miðbænum
á næstunni. Í skipulagskortunum
eru rúmlega 200 nýjar íbúðir. Auk
þess sem stærðarinnar hótel
mun rísa með tilheyrandi
þjónustu. Gamla kaup-
félagshúsið þarf ekki að
standa autt mikið lengur
en gert er ráð fyrir
íbúðum þar fyrir 50+.
Okkur hefur sárlega
vantað alvöru
miðbæ. Þá þarf
einmitt fólk
til að glæða
hann lífi og
halda uppi þjónustunni. Þetta er því
stórt skref í rétta átt, myndi ég halda.
Ráðherra tók við undirskriftum í vikunni. Iðunn fær hrós fyrir að
standa í þessu fyrir okkur. Því miður
held ég að þessari ákvörðun um
Heilsugæsluna verði ekki haggað. En
það verður þá ekki hægt að segja að
íbúar hafi ekki látið í sér heyra.
Handboltastrákarnir eru á leið í Höllina. Þeir leika gegn
Haukum á föstudaginn. Það sem
svona bikarveisla getur gert fyrir eitt
bæjarfélag. Það lifnar allt við eins og
að vori. Sjáumst!
Uppbyggjandi
Hilmar Gunnarsson, ritstjóri Mosfellings
www.isfugl.is
Fasteignasala Mosfellsbæjar • Kjarna • Þverholti 2 • 270 Mosfellsbær • S. 586 8080 • fax 586 8081 • www.fastmos.is • Einar Páll Kjærnested, löggiltur fasteignasali
héðan og þaðan
- Frítt, frjálst og óháð bæjarblað2
REYnIR PéTUR Í MoSFELLSSVEIT 1985
Árið 1985 vann Reynir Pétur Ingvarsson það mikla afrek
að ganga hringinn í kringum landið, alls 1.417 kílómetra.
Tilgangurinn var að safna áheitum til að byggja íþróttahús við
Sólheima í Grímsnesi. Reynir Pétur kom í Mosfellssveit 23. júní
og fékk góðar viðtökur eins og fréttin í DV, sem hér fylgir, ber með sér.