Mosfellingur - 23.02.2017, Qupperneq 6
Eldri borgarar
Þjónustumiðstöðin
Eirhömrum
Fram undan
í FélagsstarFinu
minnum Á
Við minnum á að félagsstarf Mosfellsbæj-
ar er alls ekki bara fyrir eldra fólk, öryrkjar
og atvinnlausir eru sérstaklega velkomir
líka. Aðstaða er góð hjá okkur og um að
gera að nýta hana, koma saman og hafa
það gaman og rjúfa félagslega einangrun
BingÓ-BingÓ
Föstudaginn
24. feb kl.
13:30 verður
skemmtilegt
bingó haldið
í borðsal.
Spjaldið kostar
300 kr. Kaffi
og meðlæti selt í matsal á 400 kr. Flottir
vinningar.Gerum okkur glaðan dag og
tökum þátt í frábæru bingói :)
leirnámskeið Fríðu
Nýtt leirnámskeið byrjar mánudaginn 13.
mars kl. 10:00-14:00 í 4 skipti, alls 16 klst.
Fullt hefur verið á öll námskeiðin hingað
til. Leiðbeinandi er Fríða. Lágmarksþátt-
taka 6-8 manns. Fyrstur kemur, fyrstur
fær. Endilega skráið ykkur í síma 586-
8014/698-0090 eða á elvab@mos.is
glerbræðslunámskeið
Loksins laus pláss, við erum farin að skrá
á glernámskeið Fríðu sem byrjar 17.
mars og er á föstudögum kl. 10:00-14:00
í 4 skipti, alls 16 klst. Kennari er Fríða
Sigurðardóttir.
Lágmarksþátttaka 6-8 manns. Fyrstur
kemur, fyrstur fær, plássin eru mjög fljót
að fara.
Endilega skráið ykkur í síma 6980090 eða
á elvab@mos.is
gaman saman verður næst 24. feb.
og 10. mars, allir velkomnir á fimmtu-
dögum kl. 13:30.
Félagsvist verður næst 4. og 18. mars,
kl. 13:00 á föstudögum, allir velkomnir.
Minnum á að Kanasta er
alltaf spilað annan hvern
fimmtudag kl. 13:30,
næst 2. mars.
BridgE er spilað alla
miðvikudaga
kl. 13:00. Endilega komið
og verið með.
gÖnguHÓPurinn fer þriðjudaga,
föstudaga og laugardaga kl 11:00 frá
Eirhömrum, allir velkomnir með.
EnsKa fyrir byrjendur á vorönn 2017
Á þessu námskeið verða helstu
málfræðiatriði kynnt og
farið yfir orðaforða sem
nýtist í daglegu lífi.
Lögð verður áhersla á
hlustun og tjáningu.
Áhersla á talað mál,
helstu málfræðiatriði,
hagnýtan orðaforða
og menningu enskumælandi landa.
Hefst 6. mars kl. 16-17. Verð kr. 10.000
fyrir 4 vikur.
sPÆnsKa fyrir
byrjendur og lengra
komna á vorönn 2017
Á þessu námskeið
verða helstu málfræði-
atriði kynnt og farið yfir
orðaforða sem nýtist í daglegu lífi.Lögð
verður áhersla á hlustun og tjáningu.
Áhersla á talað mál, helstu málfræðiatriði,
hagnýtan orðaforða og menningu
spænskumælandi landa. Hefst 7. mars kl.
16-17. Verð kr. 10.000 fyrir 4 vikur.
- Fréttir úr bæjarlífinu6
Félag aldraðra
í mosfellsbæ og nágrenni
famos@famos.is
www.famos.is
Tengja Helgafells
hverfi við Reykjalund
Mosfellsbær vinnur nú að gerð
göngustígs milli Helgafellshverfis
og Reykjalundar, með stígagerð
og uppsetningu göngubrúar yfir
Skammadalslæk. Stígurinn, sem
er malarstígur, mun liggja frá enda
Snæfríðargötu og tengjast stígakerfi
Reykjalundar. Tilgangurinn er
að bæta samgöngur gangandi
fólks milli Helgafellshverfis og
Reykjahverfis, meðal annars
aðgengi nýrra íbúa í Helgafellshverfi
að almenningssamgöngum við
Reykjalund. Vagn nr. 15 ekur frá
Reykjalundi að Háholti og um Álfa-
tanga og Baugshlíð niður í Ártún,
að Hlemmi og alla leið í vesturbæ
Reykjavíkur. Gert er ráð fyrir því að
framkvæmdum við nýja stíginn ljúki
á næstu dögum.
Bjarki dregur sig í hlé
Fyrir skemmstu kom út 30. árgangur
ársritsins Dalalæðunnar sem Íbúa-
samtökin Víghóll í Mosfellsdal gefa
út. Blaðið
fjallar um
hagsmuna-
mál Dalbúa
og ýmislegt
sem tengist
sögu Dalsins
og mannlífinu
þar. Bjarki
Bjarnason
hefur ritstýrt
Dalalæðunni
frá upphafi og á myndinni heldur
hann á elsta og nýjasta tölublaðinu.
Bjarki lætur nú af störfum sem
ritstjóri blaðsins og sagði í viðtali
við Mosfelling: „Þetta er orðið
nokkuð gott, ég ákvað að stíga upp
úr ritstjórastólnum áður en ég yrði
elliær. En hyggst halda áfram að
vera æskuær,“ bætti hann við.
Hvíti Riddarinn býður upp á heimsendingarþjónustu • Betrumbættur matseðill í gagnið
Senda matinn heim að dyrum
Hákon Örn Bergmann eigandi Hvíta Ridd-
arans er ánægður með viðtökurnar við
breytingum á matseðlinum og heimsend-
ingarþjónustu sem staðurinn fór nýverið að
bjóða upp á.
„Það eru komnir nýir réttir á seðilinn,
steikur og fleira sem gerir okkur að meiri
veitingastað. Að sjálfsögðu eru ennþá allir
vinsælustu réttirnar okkar líka á sínum stað.
Við leggjum mikla áherslu á að maturinn
og þjónustan hjá okkur sé góð, ánægður
viðskiptavinur er besta auglýsinginn,“ segir
Hákon og bætir við að staðurinn fái góð
ummæli á Tripadvisor.
Frí heimsending til kl. 3 um helgar
„Við erum nýfarin að bjóða upp á heim-
sendingarþjónustu á öllum matseðlinum
okkar. Við bjóðum upp á þessa þjónustu
hér í Mosfellsbæ til að byrja með, en erum
jafnvel að skoða að bjóða Kjalnesingum
upp á heimsendingar ákveðna daga í viku.
Heimsendingin er frí ef pantað er fyrir
meira en 2.500 kr. Ég veit ekki til þess að
það séu fleiri staðir að senda heim allt það
sem er á matseðlinum hjá þeim. Enn sem
komið er eru pítsurnar vinsælastar í heim-
sendingu en þess má geta að við erum með
heimsendingu á þeim til kl. 3 á föstudags-
og laugardagskvöldum.“
Heimilismatur í hádeginu
Hvíti Riddarinn býður upp á heimilismat
í hádeginu og hlaðborð á föstudögum. „Það
er yfirleitt þétt setið hjá okkur í hádeginu og
við leggjum mikinn metnað í að vera með
góðan heimilismat á góðu verði. Á föstu-
dögum erum við með lambalæri, pítsur og
fleira og svo kaffi og kökur í eftirrétt.“
Það er heilmikið fram undan á Hvíta
Riddaranum. „Við reynum að vera með
fjölbreytta dagskrá hjá okkur. Næstu stóru
viðburðir eru kvennakvöld í byrjun mars,
FIFA-mót, Pubquiz, bingó og fleira,“ segir
Hákon að lokum.
Matseðil Hvíta Riddarans er hægt að
finna á Facebook-síðu staðarins.
Hvíti riddarinn bætir enn við
þjónustuna við mosfellinga
O K K A R M O S Ó
Í B Ú A K O S N I N G 2 0 1 7
Frábær þátttaka
í Hugmyndasöfnun
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
/
1
7
-0
1
8
9
TAKK FYRIR
Við þökkum góðar undirtektir bæjarbúa við hugmyndasöfnuninni.
Alls bárust 130 tillögur og stendur úrvinnsla nú yfir. Um 20 hugmyndir
fara í kosningu sem hefst 30. mars en þar geta allir íbúar Mosfellsbæjar,
16 ára og eldri, tekið þátt. Íbúar eru hvattir til að kynna sér hugmyndirnar
á vefnum www.betraisland.is.
Mosfellingurinn Guðrún Ýr, 21 árs, gaf á dögunum út sitt fyrsta lag
sem ber titilinn Ein.
„Ég byrjaði að læra jazzsöng fyrir um fjórum árum, en hef samt
verið í tónlist frá því að ég man eftir mér og lærði á fiðlu í mörg ár.
Vinir mínir, þeir Bjarki Sigurðsson og Teitur Helgi Skúlason, sem
mynda bandið Ra:tio sömdu lagið en ég samdi textann. Textinn
er mjög persónulegur og er saminn út frá líðan minni á ákveðnu
tímabili, ég hafði þörf fyrir að koma þessu frá mér.
Við erum rosalega ánægð með viðbrögðin við laginu en hægt er
að nálgast það á Spotify. Við erum nú þegar farin að vinna að stærri
verkefnum og áætlum að gefa út meira efni fyrir sumarið,“ segir
Guðrún Ýr en vert er að fylgjast vel með þessari efnilegu söngkonu.
Ung og upprennandi söngkona úr Mosfellsbæ
guðrún Ýr gEfur
út Sitt fyrSta lag