Mosfellingur - 23.02.2017, Síða 27
2 fyrir 1
á ís
alla þriðjudaga
HÁHOLT 14 - 270 MOSFELLSBÆ - SÍMI 566 8043
HE
IM
ILIS
MA
TU
R
Í H
ÁD
EG
INU
AL
LA
VI
RK
A D
AG
A
www.mosfellingur.is - 27
Glórulaus grasblettur
Íbúi Gerplustræti hafði samband og
sagðist tala fyrir hönd nágranna sinna
í götunni og vildi benda á slysagildru.
Þannig væri að þrenging á götunni
væri afar illa skipulögð. Um er að ræða
grasblettinn hægra megin við göngu-
stíginn á myndinni. Bletturinn væri
orðinn mjög sóðalegur og engin skilur
tilgang hans. Hefur það komið fyrir að
bæði sjúkrabíll og öskubíll hafi fest sig
þarna. Íbúar skilja ekki hvað bærinn
sé að hugsa með þessu skipulagi eða
skipulagsslysi. Íbúar hafa komið sín-
um kvörtunum til bæjarins en ekkert
gerist. Vonast er til að hægt sé að kom-
ast að farsælli niðurstöðu fyrir íbúa
götunnar. Réttast væri að fjarlægja
grasblettinn alfarið í stað þess að bílar
keyri þarna upp á og eyðileggi.
ORÐIÐ ER LAUST...
Hér gefst lesendum kostur á að
láta skoðanir sínar í ljós í stuttu máli.
Okkar snilld
Bærinn á hrós skilið fyrir þetta lýðræð-
isverkefni sem sett hefur verið á lagg-
irnar. Okkar Mosó er vonandi komið
til að vera og hugmyndunum sem ekki
fara í úrslit haldið til haga. Merkilegt
hvað margir hafa sent inn hugmynd
og greinilegt að íbúar vilja hafa áhrif á
sitt nærumhverfi. Ég fór einmitt að líta
í kringum mig og svipast um eftir ein-
hverju sem mætti betur fara. Ég hlakka
til að sjá úr hvaða hugmyndum verður
hægt að kjósa og vonandi verður settur
ennþá meiri peningur í þetta verkefni
á næsta ári.
Kjartan
Búsetu- og þjónustudeild Mosfellsbæjar, ásamt þremur búsetukjörnum í
Mosfellsbæ og Félagsstarfinu á Eirhömum eru að innleiða Þjónandi leiðsögn,
Gentle teaching.
Hugmyndafræðin byggir á grunnhugmyndum um gagnkvæm tengsl og
að öll séum við háð hvert öðru á einn eða annan hátt. Þjónandi leiðsögn
gerir kröfur til þess að starfsmaðurinn horfi inn á við og nýti það góða sem
býr innra með hverjum manni. Að hann finni leiðir til að gefa af sér hlýju og
umhyggju í garð annarra.
Sýna umhyggju og kærleika
Þjónandi leiðsögn byggir á fjórum grunnstoðum - að upplifa sig örugga, fá
umhyggju og kærleika, veita umhyggju og kærleika og að vera þátttakandi.
Verkfæri hugmyndafræðinnar eru fjögur: hendur okkar, orð, augu og nær-
vera. Þannig nýtir starfsmaðurinn sjálfan sig til þess að sýna umhyggju og
kærleika í garð þeirra sem hann vinnur með. Það gerir hann t.d. með því að
horfa blíðlega, tala rólega, snerta af nærgætni, og vera til staðar, hér og nú.
16 manna hópur var í tvo daga 19. og 20. janúar á mentor/leiðtoga þjálfun
hjá Kristni Má Torfasyni og Arne Friðrik Karlssyni.
Innleiða nýja hugmyndafræði
Þjónandi leiðsögn
leiðtogaþjálfun
hjá kristni og arne