Mosfellingur - 21.12.2017, Blaðsíða 28
- Íþróttir28
Árið 2017 var einstakt í sögu taekwondo-
deildar Aftureldingar. Aldrei hafa fleiri ið-
kendur verið skráðir, og er nú svo komið að
hún er stærsta deild landsins þegar horft er
til iðkenda á grunnskólaaldri.
Árangur iðkenda á mótum á sér enga
hliðstæðu í sögu deildarinnar, deildin eign-
aðist silfurverðlaunahafa á EM í bardaga,
Arnar Bragason, og hann vann einnig til
gullverðlauna á Opna bandaríska meistara-
mótinu. Það má með sanni segja að Arnar
hafi átt eitt sitt allra besta ár í greininni og
er deildin svo lánsöm að hann er yfirþjálf-
ari hennar og hefur leikið lykilhlutverk í
uppbyggingu deildarinnar undanfarin ár.
Tvö systurfélög í Reykjavík
Undanfarin misseri hafa tvö félög í
Reykjavík, ÍR og Fram, orðið nokkurs kon-
ar systurfélög Aftureldingar í taekwondo.
Kennarar deildarinnar hafa tekið að sér
alla kennslu hjá þeim félögum og eru ýms-
ir viðburðir haldnir sameiginlega, auk þess
sem beltaprófskröfur á milli félaganna hafa
verið samræmdar. Þetta fyrirkomulag hefur
mælst gríðarlega vel fyrir hjá öllum félög-
unum og er gaman að sjá hversu vel kepp-
endur, þjálfarar og aðstendendur vinna
saman og hjálpast að á mótum.
Sjálfsvarnarnámskeið kvenna
Á haustdögum var haldið 8 vikna sjálfs-
varnarnámskeið kvenna undir leiðsögn
Maríu Guðrúnar Sveinbjörnsdóttur, kenn-
ara við deildina. Námskeiðið var haldið öll
fimmtudagskvöld í október og nóvember og
var þátttakendum að kostnaðarlausu.
Mjög góð þátttaka var á námskeiðinu og
urðu margar konur frá að hverfa, en hins
vegar hafa kennarar námskeiðsins ákveðið
að endurtaka leikinn á vorönn og verður
opnað fyrir skráningar nú upp úr áramót-
um. Á námskeiðinu lærðu konurnar margs-
konar tækni við að losa sig úr ógnandi og
erfiðum aðstæðum og eins til hvaða ráða
er hægt að grípa til að verja sig þegar slíkt
reynist nauðsynlegt.
Foreldratímar
Bryddað var upp á þeirri nýjung í haust
að bjóða upp á sérstaka foreldratíma tvisvar
í viku og voru þeir tímar foreldrum iðkenda
að kostnaðarlausu. Tilgangur tímanna er
að kynna íþróttina fyrir foreldrum, bæði
með spjalli og eins með því að spreyta sig
í sportinu sjálfu, og auðvelda þeim þannig
að styðja við börn sín í íþróttinni. Það hef-
ur sýnt sig að börn sem taka þátt í sömu
áhugamálum og foreldrarnir eru mun
ólíklegri til að flosna upp úr því þegar þau
eldast. Þessi nýjung mæltist svo vel fyrir að
ráðgert er að þessir tímar verði fastur liður í
stundatöflu deildarinnar héðan í frá.
Nýir svarbeltingar
Í byrjun desember var haldið svartbelt-
ispróf þar sem fimm iðkendur deildarinn-
ar tóku próf undir vökulum augum lands-
liðsþjálfara Íslands í bardaga; hins frábæra
Chago Rodriguez Segura.
Ásthildur Emma Ingileifardóttir og Wikt-
or Sobczynski stóðust próf fyrir 1. poom
(sem er svart belti fyrir iðkendur sem ekki
hafa náð 15 ára aldri) og Steinunn Selma
Jónsdóttir stóðst próf fyrir 1. dan. María
Guðrún Sveinbjörnsdóttir stóðst próf fyrir
2. dan og Arnar Bragason 4. dan og er þar
með orðinn einn af þeim Íslendingum sem
lengst hafa náð í íþróttinni.
Öll stóðu þau sig með eindæmum vel á
prófinu, sem var bæði langt og strangt, og
voru það ansi margar spýtur sem þurftu að
sætta sig við mölbrot áður en yfir lauk.
Beltapróf í lok annar
Síðasta föstudag var haldið beltapróf
deildarinnar þar sem stór hópur iðkenda
uppskar árangur ástundunar annarinnar
og fékk nýtt belti til marks um framfarir sín-
ar í íþróttinni. Beltaprófið var sameiginlegt
með taekwondodeildum ÍR og Fram, og var
svo haldið sameiginlegt lokahóf deildanna
þar sem iðkendur fengu margs konar viður-
kenningar fyrir árangur á árinu, s.s. ástund-
un, hugrekki, framfarir og fleira.
Það er engum blöðum um það að fletta
að sú aðstaða sem deildin fékk afhenta fyr-
ir tæpum fjórum árum hefur gjörbylt starfi
deildarinnar og gert henni kleift að verða
ein sú stærsta á landinu, og sennilega ein
sú öflugasta.
Stórt teymi áhugasamra kennara sem
fylgjast grannt með iðkendum á æfing-
um, öflugt foreldrafélag og áhugasamir
aðstandendur hvetja iðkendur til dáða á
æfingum og lætur árangurinn ekki á sér
standa á mótum þar sem Afturelding sóp-
ar til sín miklum fjölda verðlauna á öllum
mótum sem haldin eru.
taekwondodeild Aftureldingar
Frábært ár að baki hjá
iðkendur að loknu
beltaprófi 15. desember
svartbeltispróf 2. desember