Mosfellingur - 21.12.2017, Qupperneq 30
Arna Rún í banda
ríska háskólagolfið
Kylfingurinn Arna Rún Kristjáns-
dóttir samdi á dögunum við háskóla
í bandaríska háskólagolfinu en hún
gengur til liðs við Grand Valley State
University haustið 2018. Arna Rún
útskrifast úr Verzlunarskóla Íslands
núna í vor og heldur til Bandaríkj-
anna seinni part ágústmánaðar.
Þetta er frábært tækifæri fyrir Örnu
Rún til þess að æfa golfið við bestu
mögulegar aðstæður og sameina
í leiðinni golf og nám. Á mynd-
inni má sjá Örnu Rún ásamt Davíð
Gunnlaugssyni, íþróttastjóra GM.
- Íþróttir30
LAUGARDAGINN 20. JANÚAR 2018 · ÍÞRÓTTAHÚSIÐ AÐ VARMÁ
ÞORRABLÓT
AFTURELDINGAR
ÁSAMT HLJÓMSVEIT TOMMA TOMM
Gísli EinarssonVEISLUSTJÓRI
MAGNI . SALKA SÓL
& EYÞÓR INGI
MATSEÐILL
HANGIKJÖT · SALTKJÖT · SVIÐASULTA · SVIÐAKJAMMAR · GRÍSASULTA · LIFRAPYLSA · BLÓÐMÖR · HRÚTSPUNGAR · LUNDABAGGI · HVALUR
HÁKARL · HARÐFISKUR · SÍLD · RÚGBRAUÐ · FLATKÖKUR · HEITUR UPPSTÚFUR M/KARTÖFLUM · KÖLD RÓFUSTAPPA
HEILGRILLAÐ LAMBALÆRI Í VILLIJURTAKRYDDLEGI · KARTÖFLUGRATÍN · FERSKT SALAT · RJÓMALÖGUÐ SVEPPASÓSA OG BERNEAISE
HÚSIÐ OPNAR KL. 19:00 – BORÐHALD HEFST KL. 20:00 · MIÐAVERÐ 8.400 KR.
MIÐI EFTIR KL. 23:30 - Í FORSÖLU 2.000 KR. - VIÐ INNGANG 3.000 KR.
EINUNGIS HÆGT AÐ TAKA FRÁ SÆTI GEGN KEYPTUM MIÐA - 20 ÁRA ALDURSTAKMARK
ALLUR ÁGÓÐI RENNUR TIL BARNA- OG UNGLINGASTARFS AFTURELDINGAR
MIÐASALA HEFST 12. JANÚAR KL. 18:00 Á HVÍTA RIDDARANUM
TRÍÓIÐ
KÓKOS
tekur á
móti
gestum
Fjöldasöngur
MAGNI &
TOMMI
Sverrir Haraldsson, afrekskylfingur úr GM,
var við keppni í Orlando á Flórída dagana
16.–17. desember.
Mótið var leikið á Lake Buena Vista
vellinum við Disney en mótið var hluti af
Premier Junior Golf mótaröðinni. Sverrir
lék fyrri hringinn á 71 höggi, einu höggi
undir pari. Að loknum fyrri hringnum var
Sverrir í öðru sæti, 3 höggum á eftir efsta
manni.
Sverrir fór vel af stað á lokahringnum og
var orðinn jafn í efsta sæti að loknum 13
holum. Á 18. flöt átti Sverrir svo rúmlega
eins metra langt pútt fyrir sigri. Púttið fór
í miðja holu og glæsilegur sigur staðreynd.
Sverrir lék hringina tvo á einu höggi undir
pari (71-72).
Frábær mæting á jólaballi GM
Gleðin var ríkjandi í Kletti á sunnudag-
inn, en þá fór fram jólaball GM. Foreldra-
ráðið stóð fyrir veitingasölu þar sem gest-
irnir gátu styrkt barna-og unglingastarfið og
gætt sér á vöfflum og heitu súkkulaði. Mæt-
ingin var frábær, en um 70 manns á öllum
aldri mættu og áttu góða stund saman.
Þvörusleikir og Stúfur mættu á svæðið,
öllum til mikillar ánægju, en þeir bræður
tóku dansinn með börnunum í kringum
jólatréð. Næst kom í ljós að þeir voru með
góðgæti í pokanum sínum fyrir börnin sem
voru að sjálfsögðu öll búin að haga sér vel
og fengu því nammi áður en þau héldu
heim í jólaundirbúninginn með fjölskyld-
unni.
Loks kvöddu jólasveinarnir og sögðust
bíða spenntir eftir jólaballi næsta árs. GM
þakkar fyrir frábæra þátttöku og óskar fé-
lagsmönnum og bæjarbúum gleðilegra
jóla.
Yfirþjálfarar landsliða og landsliðsþjálfarar í
hópfimleikum hafa valið úrvalshóp vegna Evr-
ópumótsins í hópfimleikum 2018.
Alls mættu tæplega 200 iðkendur á úrtöku-
æfingarnar og er Fimleikadeild Aftureldingar
óendanlega stolt af af því að eiga fjóra iðkend-
ur á þessum lista:
Emma Sól Jónsdóttir, María Líf Magnúsdótt-
ir, Mia Viktorsdóttir og Eyþór Örn Þorsteinsson
Þess má geta að þessir krakkar eru einnig öll
þjálfarar hjá Aftureldingu auk þess sem fjórir
þjálfarar til viðbótar urðu fyrir valinu en sum af
þeim hófu einmitt fimleikaferil sinn hjá Aftur-
eldingu. Þetta eru þau Alexander Sigurðsson,
Bjarni Kristbjörnsson, Guðjón Snær Einarsson
og Viktor Elí Sturluson.
Fyrsta úrvalshópaæfingin verður haldin
27. janúar hjá Stjörnunni Ásgarði.
Fjögur í úrvalshóp frá Aftureldingu
emma sól maría líf mia eyþór örn
Kylfingurinn Sverrir Haraldsson úr GM keppti í Orlando á Flórída um miðjan desember
Sverrir sigraði glæsilega í Flórída
sverrir haraldsson jólaball í kletti