Mosfellingur - 08.01.2015, Síða 4
www.lagafellskirkja.is
Sunnudagur 11. janúar
Kl. 11:00 Guðsþjónusta í Lágafellskirkju.
Sr. Skírnir Garðarsson.
Sunnudagur 18. janúar
Kl. 20:00 Taize guðsþjónusta
í Lágafellskirkju.
Sr. Ragnheiður Jónsdóttir.
Sunnudagur 25. janúar
Kl. 11:00 Guðsþjónusta í Mosfellskirkju.
Sr. Skírnir Garðarsson.
Prjónasamvera
í safnaðarheimilinu
Fyrsta prjónasamvera ársins verður í
kvöld, fimmtudaginn 8. janúar.
Allir velkomnir - allar nánari upplýsingar
er hægt að sjá á heimasíðu kirkjunnar.
www.lagafellskirkja.is
Sunnudagaskólinn
hefst 11. janúar kl. 13:00
(eftir jólafrí)
kirkjustarfið
- Bæjarblaðið í Mosfellsbæ64
HelgiHald næStu vikna
Styrktartónleikar
á þriðjudagskvöld
Þriðjudagskvöldið 13. janúar
verða haldnir styrktartónleikar
fyrir Brynju Hlíf Hjaltadóttur.
Tónleikarnir fara fram í Hlégarði og
hefjast kl. 20. Miðaverð er 1.500 kr.
Brynja Hlíf, sem er 16 ára gömul,
lenti í alvarlegu mótorhjólaslysi í
Noregi í október. Hún stundar nú
endurhæfingu á Grensás. Brynja
Hlíf var í einlægu viðtali í jólablaði
Mosfellings og ætlar sér að komast
á fætur ný.
Öll innkoma á tónleikana rennur
í styrktarsjóð Brynju og fjölskyldu
hennar. Fjöldi listamanna munu
stíga á stokk og má þar nefna Kaleo,
Bubba Morthens, Dimmu, Vio,
Kalla Tomm og fleiri.
Sendiherra Kína
í Mosfellsbæ
Zhang Weidong sendiherra Kína
á Íslandi kom í heimsókn í Mos-
fellsbæ og hitti Harald Sverrisson
bæjarstjóra. Weidong var skipaður
sendiherra í haust og hefur því
nýlega hafið störf á Íslandi. Hann
var nokkuð fróður um Mosfellsbæ
og hafði lesið bækur eftir Halldór
Laxness og hlustað á tónlist eftir
Ólaf Arnalds. Sendiherranum var
fært að gjöf konfekt frá Hafliða
Ragnarssyni við þetta tilefni.
Útskriftarhátíð Framhalds-
skólans í Mosfellsbæ fór fram
föstudaginn 19. desember
s.l. við hátíðlega athöfn í nýju
húsnæði skólans við Háholt 35.
Framhaldsskólinn var
stofnaður haustið 2009. Sex
námsbrautir eru við skólann og
er fjöldi nemenda við skólann
um tvö hundruð og sextíu.
Skólameistari er Guðbjörg
Aðalbergsdóttir. Að þessu sinni
voru sex nemendur brautskráð-
ir, fimm nemendur af félags- og
hugvísindabraut og einn nem-
andi af opinni stúdentsbraut.
Mosfellsbær veitti Guðrúnu
Evu Bjarkadóttur viðurkenn-
ingu fyrir hæstu einkunn á
stúdentsprófi.
Útskriftarhátíð Framhaldsskólans í Mosfellsbæ • Sex nemendur brautskráðir um jólin
Brautskráning frá fMOs
NýstúdeNtar ásamt
skólameisturum
Tveir starfsmenn Áhaldahússins til áratuga voru
kvaddir föstudaginn 19. desember.
Viðar Ólafsson hóf störf hjá Mosfellsbæ árið 1980 og
er eflaust sá starfsmaður Mosfellsbæjar sem náð hefur
hvað mestum starfsaldri og hefur unnið undir stjórn sjö
bæjarstjóra.
Viðar hefur verið mjög farsæll í starfi og haft að
leiðarljósi slagorð bæjarins, þjónusta í þína þágu. Viðar
hefur og verið tengiliður við OR m.a. vegna álesturs
hitaveitumæla um alla byggð.
Erlingur Friðgeirsson hóf störf hjá Mosfellsbæ árið
1983 og hefur því starfað hjá Mosfellsbæ í 30 ár. Erlingur
hefur sinnt sínu starfi af eljusemi og dugnaði. Erlingur
varð fyrir því óláni að slasast við vinnu sína í febrúar
2013 og hætti formlega störfum í ágúst s.l. vegna þess.
kr. 2 ltr.
Nýtt í Bónus frá Örnu
kr. 200g. kr. 125g. kr. 1 ltr.
kr. kg.
kr. 200g
kr. 2 ltr.
Nýtt í Bónus frá Örnu
kr. 200g. kr. 125g. kr. 1 ltr.
kr. kg.
kr. 200g
Að venju verður þorrablót Aftureldingar
haldið laugardaginn 24. janúar í íþrótta-
húsinu að Varmá. Borðapantanir fara fram
í vallarhúsinu fimmtudaginn 15. janúar kl.
19:30-20:30. Þetta er í áttunda sinn sem
blótið er haldið í þessari mynd og verður
dagskrá með hefðbundnu sniði.
„Miðasala er í afgreiðslunni að Varmá og
hefur gengið nokkuð vel. Það er orðin hefð
hjá mjög mörgum Mosfellingum að mæta
á blót og eiga skemmtilega kvöldstund
með sveitungum sínum og sá hópur fer
ört stækkandi. Í fyrra var uppselt og stefnir
í það sama í ár,“ segir Rúnar Bragi Gunn-
laugsson forseti þorrablótsnefndar.
Stefanía ásamt einvala liði
Að þessu sinni er það hin geðþekki
Gunnar á Völlunum sem fer með veislu-
stjórn og strákarnir í Kókos munu taka vel
á móti veislugestum. Svo mun Rokkabillý-
bandið ásamt Stefaníu Svavars, Eyþóri Inga
og Björgvini Halldórssyni sjá um fjörið.
„Geiri í Kjötbúðinni mun sjá um matinn,
auk hins hefðbundna þorramatar mun
hann bjóða uppá lambalæri og bearnaise
en það mæltist vel fyrir í fyrra.“
Flottustu borðaskreytingarnar
„Það hefur skapast hefð fyrir því að hóp-
ar komi og skreyti borðin sín, það er mikill
metnaður lagður í skreytingarnar. Í fyrra
var það Súluhöfðinn sem hreppti titilinn en
dómarar áttu mjög erfitt með að gera upp
á milli. Hópar og einstaklingar geta komið
á blótsdegi kl. 12:30-14 og skreytt borðin,“
segir Rúnar Bragi að lokum og vonast til að
sjá sem flesta Mosfellinga og velunnara á
þorrablótinu.
MOSFELLINGUR
keMur næst út
29. janúar
mosfellingur@mosfellingur.is
Viðar og Erlingur í Áhaldahúsinu
kvaddir eftir
áratuga starf
Haraldur Sverrisson bæjarstjóri, Viðar Ólafsson, Erlingur Friðgeirsson
og Þorsteinn Sigvaldason forstöðumaður Áhaldahússins.
Þorrablót Aftureldingar verður haldið laugardaginn 24. janúar • Í fyrra var uppselt
Hafa gaman með sveitungum