Mosfellingur - 08.01.2015, Blaðsíða 8

Mosfellingur - 08.01.2015, Blaðsíða 8
 - Fréttir úr bæjarlífinu8 Almennar og sérstakar húsaleigubætur VirÐing jákVæÐni framsækni umhyggja Athygli er vakin á að samkvæmt lögum um húsaleigubætur nr. 138/1997 skal endurnýja umsókn um húsaleigubætur árlega í upphafi árs og gildir umsóknin til ársloka eða jafnlengi og gildistími húsaleigusamnings. Samkvæmt reglum Mosfellsbæjar um sérstakar húsaleigubætur skal endurnýja umsóknir um sérstakar húsaleigubætur samhliða almennum húsaleigubótum, gildir umsókn aldrei lengur en sex mánuði og eða jafnlengi og gildistími húsaleigusamnings. Reglur vegna sérstakra húsaleigubóta er hægt að nálgast á mos. is/samþykktir og reglur/húsaleigubætur sérstakar. Umsækjendur um almennar og sérstakar húsaleigubætur í Mosfellsbæ eru minntir á að skila umsókn og fylgiskjölum fyrir árið 2015 á www.mos.is/íbúagátt eða í þjónustuver Mos- fellsbæjar, Þverholti 2 í síðasta lagi 16. janúar 2015. Húsnæðisfulltrúi Mosfellsbæjar Gufufélag Mosfellsbæjar hélt að vanda aðalfund sinn á gamlársdag í sundlauginni að Varmá. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa, sem fram fóru undir traustri stjórn andlegs leiðtoga og djákna, Sigurjóns Ásbjörnsson- ar, voru þrír félagar sæmdir heiðursorðum. Handhafi forsetavalds, Guðjón Kristinsson, veitti forseta félagsins, Val Oddssyni, keðju stórmeistara fálkaorðunni með krossi. Forseti veitti á móti aðalritara stjörnu stór- krossriddara fálkaorðunnar. Þriðju orðuna afhenti forseti til formanns orðunefndar, Ólafs Sigurðssonar. Ólafur hlaut riddara- kross fálkaorðu. Þess má geta að Ólafur var skipaður í embætti formanns orðunefndar fyrr á aðlfundinum en um er að ræða nýtt embætti innan félagsins. Bæjarstjóri verndari félagsins Að meðtöldum forseta eru embættis- menn félagsins fjórtán um þessar mundir og stendur ekki til að fækka þeim, þvert á móti, enda félagsmenn margir. Að vanda virti forseti Gufufélagsins, Valur Oddsson, öll mótframboð að vettugi og situr því áfram í embætti eins og síðustu rúma tvo áratugi. Í ræðu í lok aðalfundar þakkaði forseti félagsmönnum stuðninginn í það embætti sem hann hefur sinnt af auð- mýkt en festu. Forseti þakkaði jafnframt bæjarstjóra Mosfellsbæjar, Haraldi Sverrissyni, fyrir stuðning sinn við félagið og þá virðingu sem hann sýndi því með því að taka þátt í aðalfundi en bæjarstjóri Mosfellsbæjar á hverjum tíma er um leið verndari Gufufé- lagsins. Haraldur sýndi Gufufélaginu mikla hluttekningu um mitt ár þegar krúnudjásn félagsins, sjálf Morgunblaðsklukkan, hvarf sporlaust úr gufubaðsklefanum í sundlaug- inni að Varmá. Klukkan kom í leitirnar um síðir, forseta og félagsmönnum til mikils léttis. Fjárhagurinn með miklum blóma Fjárhagur Gufufélagsins er með miklum blóma eins og undanfarin ár. Þó voru tekn- ar dramatískar ákvarðarnir varðandi sjóði félagsins og fjárfestingar þess eins og lesa má m.a. um í reikningum þess. Þar segir m.a. „Þegar efnahagur og stjórn Norður- Kóreu var komin í jafnvægi ákvað stjórn Gufufélagsins að róa á ný mið og flytja fjármuni yfir í gjaldmiðil sem líklegur er til að standa af sér þann óstöðugleika sem einkennir fjármálamarkaði í dag. Fyrir valinu varð Úkraína enda nafn gjaldmiðils þeirra, hrynja, afar spennandi að glíma við. Það var eins og við manninn mælt að þegar við vorum búnir að skipta öllu okkar fé í hrynjur þá snarféll rúblan og síðan norska krónan í kjölfarið.“ Söngmálastjóri stjórnar fjöldasöng Í lok aðalfundar stjórnaði Guðmundur Guðlaugsson, söngmálastjóri, fjöldasöng félagsmanna, af röggsemi. Hefðbundnar veitingar voru á aðalfundi, harðfiskur og smjör. Auk þess var bryddað upp á þeirri nýjung að bera fram þurrkað grindhvalakjöt og saltað grindhvalakjöt vegna vaxandi tengsla Gufufélagsins við bræður okkar í Færeyjum. Mæltust veit- ingarnar afar vel fyrir. Að aðalfundi loknum gengu félagsmenn tandurhreinir til móts við nýtt ár, fjölskyld- um sínum til mikillar gleði og ánægju. Aðalfundur Gufufélags Mosfellsbæjar haldinn á gamlársdag • Þrír félagar heiðraðir Heiðursorður Gufufélagsins Erum byrjaðir að fhend 2015 árgerðina! Við sérpöntum allar gerðir bíla frá USA og Evrópu Þverholt 6 - 270 Mosfellsbæ - Sími 534 4433 - Fax 534 4430 isband@isband.is - www.isband.is • Nýr og enn öflugri en áður • Dísel 440hö • Öflugur pallbíll Nýr Ford F350 Verð frá kr. 8.650.000 • Nýtt útlit að utan sem innan • Stórglæsilegur pallbíll Verð frá kr. 9.350.000 Komdu til okkar og kynntu þér málið, erum að taka niður pantanir. Verð frá kr. 9.350.000 Nýr Dodge Ram 3500 • Nýtt útlit og flottari innrétting • Dísel 390 hö • Öflugur pallbíll Opið alla virka daga frá kl. 10-18, laugardaga frá kl. 11-15 Nýr GMC 3500 Erum byrjaðir að afhenda 2015 árgerðina! Við sérpöntum allar gerðir bíla frá USA og Evrópu Þverholt 6 - 270 Mosfellsbæ - Sími 534 4433 - Fax 534 4430 isband@isband.is - www.isband.is • Nýr og enn öflugri en áður • Dísel 440hö • Öflugur pallbíll Nýr Ford F350 Verð frá kr. 8.650.000 • Nýtt útlit að utan sem innan • Stórglæsilegur pallbíll Verð frá kr. 9.350.000 Komdu til okkar og kynntu þér málið, erum að taka niður pantanir. Verð frá kr. 9.350.000 Nýr Dodge Ram 3500 • Nýtt útlit og flottari innrétting • Dísel 390 hö • Öflugur pallbíll Opið alla virka daga frá kl. 10-18, laugardaga frá kl. 11-15 Nýr GMC 3500 Erum byrjaðir að afhenda 2015 árgerðina! Við sérpöntum allar gerðir bíla frá USA og Evrópu Þverholt 6 - 270 Mosfellsbæ - Sími 534 4433 - Fax 534 4430 isband@isband.is - www.isband.is • Nýr og enn öflugri en áður • Dísel 440hö • Öflugur pallbíll Nýr Ford F350 Verð frá kr. 8.650.000 • Nýtt útlit að utan sem innan • Stórglæsilegur pallbíll Verð frá kr. 9.350.000 Komdu til okkar og kynntu þér málið, erum að taka niður pantanir. Verð frá kr. 9.350.000 Nýr Dodge Ram 3500 • Nýtt útlit og flottari innrétting • Dísel 390 hö • Öflugur pallbíll Opið alla virka daga frá kl. 10-18, laugardaga frá kl. 11-15 Nýr GMC 3500 Erum byrjaðir að afhenda 2015 árgerðina! Við sérpöntum allar gerðir bíla frá USA og Evrópu Þverholt 6 - 270 Mosfellsbæ - Sími 534 4433 - F x 534 4430 isband@isband.is - www.isband.is • Nýr og enn öflugri en áður • Dísel 440hö Öflugur pallbíll Nýr Ford F350 Verð frá kr. 8.650.000 • Nýtt útlit að utan sem innan • Stórglæsilegur pallbíll Verð frá kr. 9.350.000 Komdu til okkar og kynntu þér málið, erum að t ka niður pantanir. Verð frá kr. 9.350.000 Nýr Dodge Ram 3500 • Nýtt útlit og flottari innrét ing • Dísel 390 hö Öflugur pallbíll Opið alla virka daga frá kl. 10-18, laugardaga frá kl. 11-15 Nýr GMC 3500 Taize-guðsþjónusta í Lágafellskirkju Taize-guðsþjónusta fer fram í Lágafellskirkju sunnudaginn 18. janúar kl. 20. Í nær tvo áratugi hefur kirkjan haldið slíkar uppákomur að kvöldlagi og fara þær fram nokkrum sinnum yfir vetrartímann. Áhersla er lögð á einfalt form og einfaldan söng og gegnir endur- tekning sálmanna sérstöku tilbeiðslu- og íhugunar- hlutverki. Gjarnan eru fengnir til liðs þekktir tónlistarmenn, sem undirstrikar vægi tónlistarinnar í athöfninni. Að þessu sinni leikur fiðluleikarinn snjalli Hjörleifur Vals- son með kirkjukórnum. Arnhildur Valgarðsdóttir verður á orgelinu og prestur er sr. Ragnheiður Jónsdóttir. Þetta er blaðið mitt er lausnarorðið Fjölmörg svör bárust við jólakross- gátu Mosfellings og Hvíta Riddarans sem birtist í blaðinu fyrir jólin. Rétt lausnarorð er: Þetta er blaðið mitt. Tveir heppnir vinn- ingshafar hafa verið dregnir út og fá þeir 5.000 kr. gjafabréf á Hvíta Riddarann sem staðsettur er í Háholti. Vinnings- hafarnir eru: Sigríður Magnúsdóttir, Hjarðarlandi 1 og Þórdís Torfadóttir Klapparhlíð 18. Gjafabréfin fáið þið send á næstu dögum. Guðjón Kristinsson, Valur Oddsson og Ólafur Sigurðsson voru sæmdir heiðursorðum á gamlársdag. - Jólakrossgáta32 Verðlauna krossgáta Mosfellingur og Hvíti Riddarinn bjóða upp á jólakrossgátuna 2014 vegleg verðlaun jó la Vegleg verðlaun í boði Hvíta Riddarans Dregið verður úr innsendum lausnarorðum og fá 2 heppnir vinningshafar 5.000 kr. gjafabréf frá Hvíta Riddaranum. Sendið lausnarorðið sem er í tölusettu reitunum, 1-17, á netfangið krossgata@mosfellingur.is eða Mosfellingur, Spóahöfða 26, 270 Mosfellsbæ. Merkt „Jólakrossgáta”. Skilafrestur er til 4. janúar.

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.