Mosfellingur - 08.01.2015, Side 18
- Íþróttir18
SkólaSkrifStofa moSfellSbæjar
Lesum!
Í Aðalnámskrá grunnskóla er tekið
fram að starfsfólk skóla, nemendur og
foreldrar myndi skólasamfélag í hverj-
um skóla og að mikilvægt sé að þessir
hópar vinni saman að mótun þess sam-
félags. Þar er litið á menntun nemenda
sem sameiginlegt og samábyrgt verkefni
heimila og skóla.
Í nútíma þjóðfélagi skiptir gott vald
á læsi sköpum fyrir lífsgæði hvers og
eins, enda er læsi grunnur að námi og
menntun. Því er grundvallaratriði að
lögð sé rækt við læsi á heimilum og á
öllum stigum menntakerfisins.
Á undanförnum áratugum hefur kom-
ið fram verulega aukin þekking á læsi.
Fræðimenn hafa fundið að sá stuðning-
ur, reynsla og samskipti sem barn finnur
í fjölskyldu sinni, hefur mikil áhrif á læs-
isnám þess. Jafnframt skiptir sögulestur,
reynsla barnsins af öðru prentuðu máli,
áhugi og viðhorf sem það skynjar inn-
an fjölskyldunnar, miklu máli og hefur
áhrif á nám þess. Ekki dugar að vinna
með læsi einangrað í skólum án tengsla
við aðra kima samfélagsins. Með því að
foreldrar leiti markvisst leiða til að nýta
læsi við mismunandi aðstæður eru lík-
ur á að börn öðlist betri færni í að skilja
ólíkan texta og sjái hagnýtt gildi læsis í
daglegu lífi.
Í upphafi árs er gott að setja sér mark-
mið og getur fjölskyldan sameinast t.d.
um að lesa eina bók á mánuði annað
hvort saman eða hver sína bók og sagt
svo hvert öðru frá. Heimsækjum bóka-
safnið, skiptumst á bókum við vini og
ættingja, lesum fyrir hvort annað, fyr-
ir gæludýrin, fyrir ömmu og afa. Full-
orðnir þurfa að sýna frumkvæði að því
að auka lestur inni á heimilum og vera
fyrirmyndir, því lestrarnám barnanna
okkar byggist á samvinnu heimilis og
skóla. Munum að börn læra það sem
fyrir þeim er haft.
Áhugaverður tengill: http://lesvefurinn.hi.is
Skóla
hornið
Knattspyrnudeild Aftureldingar og Papco
hafa framlengt og bætt í þann samning
sem fyrir var. Papco verður því einn af
helstu styrktaraðilum knattspyrnudeildar
næstu 5 árin og með merkingar á nýjum
búningum meistaraflokkana sem styttist í
að komi til landsins.
Það hefur verið farsælt samstarf á milli
Papco og Aftureldingar og hafa rauð-
klæddir knattspyrnuiðkendur sést víða í
bænum að selja wc pappír og aðrar vörur
frá Papco, og mun það að sjálfsögðu halda
áfram.
Á myndinni má sjá Óla Val fyrir hönd
knattspyrnudeildar og Alexander Kárason
fyrir hönd Papco handsala samninginn.
Kristján Helgi Carrasco og Telma Rut Frímannsdóttir voru á dögunum valin karatemaður
og karatekona ársins 2014. Kristján hlýtur titilinn fimmta árið í röð og Telma í annað sinn.
Kristján og telma
Yfirburðir í karate
Landslið karla í handbolta skipað leik-
mönnum yngri en 21 árs leikur í undan-
keppni HM um næstu helgi í Strandgötu í
Hafnarfirði. Leiknir verða þrír leikir og það
lið sem sigrar riðilinn fer á HM U-21 í Bras-
ilíu í sumar.
Afturelding er stolt af því að eiga sex leik-
menn í þessu liði sem er einstakt og mjög
ánægjulegt fyrir handboltabæinn Mosfells-
bæ. Leikmennirnir sem um ræðir eru Böðv-
ar Páll Ásgeirsson skytta og varnartröll,
Elvar Ásgeirsson leikstjórnandi og skytta,
Kristinn Elísberg Bjarkason hornamaður
og hraðaupphlaups-snillingur, Gunnar M.
Þórsson hornamaður og varnarrefur, Birkir
Benediktsson stórskytta og Sölvi Ólafsson
markvörður.
Leikirnir eru á eftirfarandi tíma:
Föstudagur 9. jan: Ísl-Litháen kl. 18:00
Laugardagur 10. jan: Ísl-Noregur kl. 14:00
Sunnudagur 11. jan : Ísl-Eistland kl. 16:00
Strákarnir eru að selja miða (helgar-
passa) á þetta mót og kostar miði sem gildir
fyrir tvo á alla leiki mótsins 5.000 kr.
Þetta verður hörku keppni og stórvið-
burður í handboltanum og eru Mosfell-
ingar og aðrir handboltaunnendur hvattir
til að mæta og hvetja íslenska liðið í þessu
móti.
knattspyrnudeild semur við
Papco til næstu fimm ára
Það var frábær stemning í lyftingasal Eld-
ingar á Gamlársmóti Kraftlyftingafélags
Mosfellsbæjar. 14 keppendur mættu til
leiks, 5 stelpur og 9 karlar, keppt var bæði í
ólympískum lyftingum og kraftlyftingum.
Árni Jakobson keppti bæði í ólymp-
ískum og kraftlyftingum, hann er bara 13
ára og sýndi frábær tilþrif. Björn Bjarnar-
son keppti í öldungaflokki 70 ára og eldri.
Hann lyfti 135 kg í réttstöðulyftu. Auður
Sonjudóttir var stigahæsti keppendinn en
hún keppir í -52 kg flokki. Hún lyfti 110 kg
í hnébeygju, 55 kg í bekkpressu og 110 kg í
réttstöðulyftu, samtals 275 kg.
4 vikna námskeið í kraftlyftingum hefst
12. janúar í kraftlyftingasal Eldingar.
Hjalti Úrsus Árnason, Auðunn Jónsson
og Grétar Hrafnson landsliðsþjálfari eru
leiðbeinendur, nánari upplýsingar hjalti-
ar@simnet.is.
Þjálfun eftir fæðingu og skvísupúl
NÝ 6 vikna námskeið að hefjast 13. janúar
Mömmutímar: þriðjudaga og fimmtudaga kl 13:00-14:00
Þjálfun eftir fæðingu barns
Skvísupúl: þriðjudaga og fimmtudaga kl 20:15-21:15
Fjölbreytt líkamsrækt fyrir konur á öllum aldri
Kennt í Eldingu líkamsrækt, Varmá.
Skráningar og fyrirspurnir í síma: 661-8020 eða dagmar@fullfrisk.com
www.fullfrisk.com
Þjálfun eftir fæðingu og skvísupúl
NÝ 6 vikna námskeið að hefj t 13. janúar
Mömmutímar: þriðjudaga og fimmtudaga kl 13:00-14:00
Þjálfun eftir fæðingu barns
Skvísupúl: þriðjudaga og fimmtudaga kl 20:15-21:15
Fjölbreytt líkamsrækt fyrir konur á öllum aldri
Kennt í Eldingu líkamsrækt, Varmá.
Skráningar og fyrirspurnir í síma: 661-8020 eða dagmar@fullfrisk.com
www.fullfrisk.com
Gamlársmót Kraftlyftingafélagsins
Sex leikmenn í u-21 liðinu
böðvar páll
björn bjarnarson
í öldungafloKKiauður