Mosfellingur - 08.01.2015, Page 22

Mosfellingur - 08.01.2015, Page 22
Þjónusta við mosfellinga - Aðsendar greinar22 Snyrti-, nudd- & fótaaðgerðastofan Líkami og sál Þverholti 11 - s. 566 6307 www.likamiogsal.is Verið hjartanlega velkomin! Þverholti 3 - Sími: 566-6612 FÓTAAÐGERÐASTOFA MOSFELLSBÆJAR Tek að mér alla krana- og krabbavinnu Útvega allt jarðefni Vörubíll Þ.b. Klapparhlíð 10 Þorsteinn 822-7142 Hlín Blómahús • Kjarnanum • Mosfellsbæ • Þverholt 2 • Sími: 566 8700 Finndu okkur á facebook.com Blómabúðin Hlín Bestu kveðjur Sonja Riedmann sjúkraþjálfari Sjúkraþjálfun Mosfellsbæjar Skeljatanga 20 5668520 Óskum öllum börnum og unglingum góða byrjun á nýju skólaári. Munið að fara varlega í umferðinni og ávalt nota hjálma þegar þið hjólið. Sjúkraþálfun Mosfellsbæjar veitir almenna þjálfum og ráðgjöf. Hægt er að bæta lífsgæði og lengja líf okkar með hollu líferni. Heilsuklúbburinn byrjaði síðastliðið vor og ætlum við að halda áfram með spennandi efni ykkar þáttöku og fyrirlestrum. Skráning : sonja.riedmann@gmail.com eða í síma 5668520 fyrir 15. September. Leiðarljós okkar er : Ný Byrjun eða á ensku New Start. www.newstart.com Bestu kveðjur Sonja Riedmann Sjúkraþjálfari Sjúkraþjálfun Mosfellsbæjar Skeljatanga 20 s. 566 8520 Gleðilegt ár Við höfum boðið upp á ráðgjöf og námsskeið um bætta heilsu og breyttan lífsstíl, næsta námskeið hefst mánud. 12. janúar kl. 18. Gleðilegt heilsuár kæru Mosfellingar! Nú er komið að þeim tímapunkti að við horfum til enn frekari uppbygging- ar í okkar heilsueflandi samfélagi m.t.t. bættrar heilsu og lífsgæða íbúa. Eins og allir vita horfðum við sérstaklega til næringar og mataræðis á síðasta ári og munum gera áfram en nú bætist hreyf- ing og útivist við og er gerð aðgerða- áætlunar á lokametrunum. Aukum hreyfingu, eflum styrk og þol Stærsta markmiðið er að sjálfsögðu að auka hreyfingu og efla styrk og þol íbúa á öllum aldri til að sporna m.a. við kyrrsetu sem hefur farið stigvaxandi um heim allan á undanförnum árum og áratugum. Þetta gerum við best með því að auka áhuga og aðgengi að hreyfingu í samfélag- inu. Nýting íþróttamannvirkja Eins og fram kom á íbúafundum við gerð greiningarskýrslu verkefnisins þá eru íbúar al- mennt ánægðir með íþróttaaðstöðu í bænum en gott má alltaf bæta. Kannski leynast ýmis tæki- færi varðandi enn betri nýtingu íþróttamann- virkjanna og þá jafnvel fyrir nýja mark- hópa? Nýting útivistarsvæða Mosfellsbær hefur löngum verið þekkt- ur fyrir mikil útivistarsvæði, fjölmargar gönguleiðir og fallega náttúru. Við vilj- um vekja enn frekari athygli, bæði bæj- arbúa og annarra, á þessum þáttum og setja fram markvissar leiðir til að auðvelda fólki að njóta útvistarsvæðanna og auka þar með nýt- ingu þeirra. Aukin hreyfing = bætt heilsa Það eru gömul sannindi og ný að hreyfing hef- ur áhrif á líkamlega, andlega og félagslega heilsu okkar og vellíðan. Því hvetjum við þig eindregið til að taka þátt í þessari vinnu með okkur, leggja þitt af mörkum með persónulegan ávinning að leiðarljósi en það er ekki verra ef þú virkjar aðra með þér. Sjáumst á hreyfingu! Ólöf Kristín Sívertsen Stjórnarformaður Heilsuvinjar og verkefnisstjóri Heilsueflandi samfélags í Mosfellsbæ Hreyfing og útivist 2015 Í frétt í Morgunblaðinu 2. janúar á nýju ári fjallaði blaðamaðurinn Guð- mundur Sv. Hermannsson um það hve lengi íslensk ungmenni læra heima og bar slíkt saman við m.a. börn frá Kína, Bandaríkjunum, og öðrum ríkjum innan OECD. Ræddi Guðmundur við Þórð Hjaltested formann Kennara- sambands Íslands er taldi mikla um- ræðu hafa átt sér stað um gildi heimanáms og að það væru kröfur foreldra almennt að námið verði mest klárað í skólanum, ekki heima eða a.m.k. dregið stórlega úr heimanámi. Í fréttinni mátti lesa að efnhagur foreldra skiptir máli m.a. þar sem börn hinna efnuðu hefðu betri kost að finna afdrep til að læra. Einnig segir í rannsókn OECD að fylgni sé á milli þess hve löngum tíma börn verja í heimanámið og þess hvernig þeim gengur í PISA-prófunum og þá einkum í stærðfræði. Þarna mátti einnig lesa að skipulag skólastarfs skipti miklu. Íslensk börn verja minni tíma í heimanám en börn í Tyrklandi, Ísrael, Frakklandi, Tælandi, Hollandi, Póllandi og svo má lengi telja. Þetta eru aðeins 4,1 stundir á viku sé miðað við 15 ára unglinga. Þarna verður að fara bil beggja. En að barn verji minna en einni klukkustund að meðaltali á dag í heimanám má teljast afburða lélegt en hitt er að börn verji um 14 stundum á viku eins og Kína er líklega helst til of strembið nema engar séu íþróttirnar. Ekki er hreyfingaleysið gott. Börn geta því fengið yfir sig nóg af námi sé þau þving- uð til langs heimanáms en það má einnig ofgera á hinn veginn þegar börn eru látin stunda of lítið heimanám. Hvar má finna meðalveginn? Hvað geta foreldrar gert þegar stefnir í að ís- lensk ungmenni verða ekki samkeppnisfær? Lengi má gott bæta og lengi getur vont versnað. Börn eiga að geta orðið samkeppnisfær í náttúru- greinum, stærðfræði og iðngreinum rétt eins og í málvísindum, íþróttafræðum, íþróttagr inum og bókmenntum sem og listum. Á sá sem er góður í stærðfræði að verða undir því auknar áherslur eru lagðar á að byggja yfir íþróttagreinar? Hvað með börn með sérþarfir? Áhersla á skólamál í Mosfellsbæ er í algjöru lágmarki um þessar mundir og þó svo að byggingar séu bæði dýrar, fari fram úr fjár- hagsáætlunum eins og einstök fimleika- hús, séu innan skipulags en utan fjárhags eru það foreldrar sem ávallt munu eiga lokaorðið. Eiga fjármunir sveitarfélaga að fara í sport hjá fullfrísku og vinnandi fólki innan meistaraflokka eða til barna í skóla og þeirra sem vilja stunda íþróttir en geta það ekki vegna fjarhagsstöðu foreldra sinna? Gott væri að foreldrar tækju upp þessa umræðu við mataborðið enda snýr þetta ekki aðeins um „leika og brauð“ eins og í Róm til forna. Foreldrasamfélagið á að gæta allra barna og sérstaklega þeirra sem minna mega sín, barna með sérþarfir og eiga í erfiðleikum með nám- ið. Niðurskurður sem skerðir þjónustu við slík börn m.a. vegna námsráðgjafar er til skammar. Þrengsli og skammtímalausnir í húsnæðismál- um með hávaðasömum matmálstímum þannig að það varði heilbrigði er afburða dapurt ástand. Sama má segja um slælega aðstöðu kennara og annarra starfsmanna sem er ekki bjóðandi í nú- tíma skólastarfi. Við tryggjum ekki eftirá í þess- um efnum. Kæru foreldrar í Mosfellsbæ. Það eruð þið sem þekkið börnin ykkar best og þarfir þeirra. Takið þátt í foreldrastarfi og styðjið málefni er snerta börnin ykkar, húsnæðismál skólanna, öryggis og gæðamál varðandi nám og aðstöðu barna. Foreldrar eiga aðeins að sætta sig við það besta fyrir börnin. Ríki og sveitarfélög gera þetta ekki allt fyrir okkur og ef við sinnum ekki eftirlitinu þá fara fjármunir í önnur og „vinsælli“ verkefni. Kynnið ykkur húsnæðismál skólanna í Mosfells- bæ, þrengslin, gæðamálin og álag á starfsmenn skólanna. Gætum einnig að heimanámi barn- anna enda lærdómurinn besta veganestið út í lífið. Njótið nýja ársins með börnunum ykkar og njótið þess einnig að taka þátt í foreldrastarfi. Gleðilegt ár, njótið heil. Sveinn Óskar Sigurðsson Talsmaður FGMOS, svæðisráðs grunnskólaforeldra í Mosfellbæ Hið opinbera, börnin og foreldrar Aðgangur ókeypis. Skráning í síma 5668520 eða 8200240. Sjúkraþjálfun Mosfellsbæjar er komin með heimasíðuna www.sjumos.is Þverholti 2 • Mosfellsbæ Fasteignasala Mosfellsbæjar Sími: 586 8080 www.fastmos.ishafðu samband E.BAC K M A N Einar Páll Kjærnested • Löggiltur fasteignasali Viltuselja... E .B A C K M A N www.fastmos.is 586 8080 Sími: Örugg og góð þjónusta Hafðu samband Einar Páll Kjærnested Löggiltur fasteignasali Fasteignasala Mosfellsbæjar • Þverholti 2 • S. 586 8080 • www.fastmos.is

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.