Mosfellingur - 13.01.2011, Blaðsíða 4

Mosfellingur - 13.01.2011, Blaðsíða 4
Geir Rúnar Birgisson tók á dögunum við rekstri Kjötkompanísins á Grensás- vegi 48 í Reykjavík. „Þetta kom alveg óvænt til núna í desember, ég stökk bara á þetta. Var búinn að leita lengi að húsnæði í Mosó en aldrei fundið neitt sem hentaði“ segir Geir Rúnar. Hann segir þó ekki útilokað að hentugt húsnæði finnist í Mosó í framtíðinni. Starfaði 17 ár í Nóatúni í Mosfellsbæ Geir starfaði í kjötborðinu í Nóatúni í Mosfellsbæ í 17 ár og kann því vel til verka en hann starfaði nú síðast í tækjasölu fyrir kjöt- og fiskiðnað. Búðin heitir núna Kjötkompaníið en nafninu verður ef til vill breytt fljótlega. Auk glæsilegs úrvals af kjöti býður hann upp á sósur, forrétti, eftirrétti og fleira. Einnig er góða aðstaða á staðnum til þess að sinna veisluþjónustu og stórum fyrirtækjum og hópum. Geir segir að þetta sé eitt flottasta kjötborð landsins og býður Mosfellinga sérstaklega velkomna. Sunnudagurinn 16. janúar Fjölskylduguðsþjónusta í Lágafellskirkju kl. 11. Sunnudagurinn 23. janúar Taize - guðsþjónusta í Lágafellskirkju kl. 20. Sunnudagurinn 30. janúar Guðsþjónusta í Mosfellskirkju kl. 11. Sunnudagaskólinn er í Lágafells­ kirkju á sunnudögum kl. 11. Sjá nánar um safnarstarf Lágafellssóknar á heimasíðu kirkjunnar: www.lagafellskirkja.is HeLgiHaLd NæStu vikNa www.lagafellskirkja.is kirkjustarfið Karen Rúnarsdóttir ráðin útibússtjóri Karen Rúnarsdóttir hefur verið ráðin í stöðu útibússtjóra Íslandsbanka í Mosfellsbæ. Karen hefur frá árinu 2009 starfað sem viðskiptastjóri einstaklinga í útibúi Íslands- banka að Suðurlandsbraut en þar áður starfaði hún sem forstöðumaður í markaðsdeild Íslandsbanka og síðar á útibúasviði þar sem hún bar m.a. ábyrgð á mótun og eftirfylgni með sölustefnu útibúasviðs bankans. Áður en hún réð sig til Íslandsbanka árið 2006 gegndi hún starfi framkvæmastjóra Noron ehf og bar þar ábyrgð á rekstri verslana ZARA á Íslandi. Hún er með BSc gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Karen tekur við af Sigríði Jónsdóttur en hún tekur við starfi umboðsmanns viðskiptavina hjá Íslandsbanka af Þórleifi Jónssyni sem lætur af störfum 1. mars n.k. eftir langt og farsælt starf hjá bankanum. - Fyrsti Mosfellingurinn 201164 Lóðaleigusamningur gerður við PrimaCare Bæjarstjóri Mosfellsbæjar og framkvæmdastjóri Prima Care ehf. hafa undirritað samninga um lóð vegna fyrirhugaðrar byggingar Prima Care á einkasjúkrahúsi og hóteli í Mosfellsbæ. Um er að ræða tvo samninga, annars vegar lóðarleigusamning þar sem gert er ráð fyrir lóðarleigu samkvæmt gjaldskrá Mosfellsbæjar og hins vegar kaupréttarsamning þar sem Prima Care er veitt heimild til þess að kaupa lóðina á tilteknum tíma- punkti og að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Um er að ræða stofnun einkarekins liðskiptasjúkrahúss og hótels fyrir erlenda sjúklinga í Mosfellsbæ. Undirbúningur verk- efnisins hefur verið í gangi sl. tvö ár og hillir nú undir að hönnun spítalans geti hafist. Alls er gert ráð fyrir 80-120 rúma sjúkrahúsi með fjórum skurðstofum sem anna mun 3-5 þús. aðgerðum á ári. Markhópurinn er fyrst og fremst bandarískir sjúklingar. Á myndinni má sjá Gunnar Ármannsson framkvæmdastjóra Prima Care og Harald Sverrisson bæjarstjóra. Á nýársdag kl. 16.48 fæddist fyrsti Mosfellingur ársins 2011. Það var stúlka sem mældist rúmar sextán merkur og fór fæðingin fram á sjúkrahúsinu á Akranesi. Foreldrar hennar eru Ragnheiður Þorvaldsdóttir og Ari Hermann Oddsson og búa þau í Kvíslartungu. Fyrir eiga þau hjónin tvo drengi þá Kristján Hrafn og Odd Carl. Mosfellingurinn og ljósmóðurinn Hafdís Rúnarsdóttir tók á móti stúlkunni og að sögn hennar gekk fæðingin hratt og vel fyrir sig og mæðgurnar eru við góða heilsu. „Það er alveg yndislegt að geta fylgt barni eftir í heimaþjónustu eins og ég er að gera núna því þá hafa þegar myndast tengsl við foreldrana en svo skemmtilega vill til að ég þekkti þessa fjölskyldu áður þar sem ég var með yngri son þeirra í heimaþjónustu árið 2007.” Margir foreldrar úr Mosfellsbæ leggja leið sína á fæðingardeild- ina á Akranesi en aldrei fyrr í nær 60 ára sögu sjúkrahúsþjónust- unnar hafa fæðingar verið jafnmargar og á nýliðnu ári en 359 börn fæddust á deildinni. Fæðingum fjölgaði um rífleg 30% frá árinu 2009 en þá komu í heiminn 273 börn sem líka var metfjöldi. Óskírð Aradóttir kom í heiminn á sjúkrahúsinu á Akranesi kl. 16.48 á nýársdag 2011 fyrsti Mosfellingur ársins Frá vinstri: Hafdís ljósmóðir, Kristján Hrafn, Ragnheiður, Ari Hermann, Oddur Carl og óskírð Aradóttir. Mynd/Ruth SÓkN Í SÓkN – LiFaNdi SaMFÉLag Vertu með í sókninni! Mosfellingurinn og kjötiðnaðarmaðurinn Geir Rúnar Birgisson opnar á Grensásvegi geir rúnar opnar kjötbúð Í kjötbúðinni hjá Geira færð þú alvöru steikur, tilbúna rétti og veisluþjónustu. laugardagskvöldið 22. janúar 2011

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.