Mosfellingur - 13.01.2011, Blaðsíða 24

Mosfellingur - 13.01.2011, Blaðsíða 24
Kristján Helgi kjörinn karatemaður ársins Karatesamband Íslands hefur út- nefnt Krisján Helga Carrasco sem æfir karate hjá karatedeild Aftur- eldingar karatemann ársins 2010. Hann er landsliðsmaður í karate og keppir í báðum greinum karate; Kata og Kumite. Kristján Helgi hefur náð góðum árangri á árinu bæði innanlands og utan en hann hefur keppt bæði í unglingaflokkum og fullorðinsflokkum. Helsti árangur Kristjáns á árinu er Bikarmeist- aratitill fullorðinna og Grand Prix meistari unglinga, Íslandsmeistari í Kata unglinga ásamt þremur verð- launum á erlendum mótum. Samstarfssamningur knattspyrnudeildar Í Eldingu, blaði knattspyrnudeildar, sem kom út í desember 2010 var kynntur til sögunnar samstarfs- og styrktarsamningur deildarinnar. Í honum felst að Afturelding, fyrirtæki sem og einstaklingar, gera með sér heiðursmannasam- komulag um samstarf sem miðar að fjárhagslegum stuðningi við Aftureldingu. Markmið samnings- ins er að styðja við samfélagslegar skyldur beggja aðila og leggja rækt við knattspyrnuiðkun í Mosfellsbæ. Starf knattspyrnudeildar er gríðar- lega metnaðarfullt er miðast við að koma Aftureldingu í fremstu röð á komandi árum. Til þess að svo megi verða þurfa bæjarbúar og fyrirtæki að leggja sitt að mörkum. Nánari upplýsingar má finna á www.afturelding.is eða hjá Rúti Snorrasyni, rutur@afturelding.is Sigrún með Zumba­ partý á föstudögum Á föstudaginn kl 18.00 byrja opnir Zumba partý tímar í World Class. Zumba eru einföld spor sem eiga rætur sínar í salsa, afro, bollywood og disco. Allir geta verið með án þess að vera með dansgrunn, enda er aðaláherslan lögð á stuð og skemmtun. Mosfellingurinn Sigrún B. Ingvadóttir einkaþjálfari mun sjá um tímana, en hún hefur nú lokið námi og hefur öðlast alþjóðleg kennararéttindi í Zumba. - Íþróttir24 Skilti Límmiðar Fánaprentun Gluggamerkingar Seglborðar Bílamerkingar NÝTT FÁNAEFNI Silkiprent er fyrsta fyrirtækið til að framleiða útifána á Íslandi. Frá upphafi hafa allar breytingar á útifánum komið frá Silkiprenti. Nú er en ein nýjungin komin, sérinnflutt nýtt efni í útifána frá Frakklandi sem kemur í staðin fyrir gataða efnið sem við höfum notað í mörg ár. Þetta efni hefur alla sömu eiginleika og eldra efnið en það eru engin göt í því, sem þýðir margfalt vandaðari prentun. Efnið er léttara og gefur betri endingu og liturinn er jafn sterkur báðum megin. Hafið samband við sölumenn okkar í síma 544 2025. Afgreiðum fána samdægurs. Silkiprent | Melabraut 19 | 220 Hafnarfjörður | 554 2025 | www.silkiprent.is | silkiprent@silkiprent.is ÞESSI FYRIRTÆKI HAFA ÁKVEÐIÐ AÐ NOTA NÝJA EFNIÐ FRÁ SILKIPRENT Vinsamlegast berist til markaðsstjóra Handboltastrákar fæddir ´94 og ´95 tóku þátt í Norden Cup mótinu í Svíþjóð sem fór fram á milli jóla og nýárs. Þetta mót er óopinbert norður- landamót félagsliða yngri flokka og er meisturum og sterkustu liðum hvers lands boðin þátttaka í mótinu ár hvert. Aftureldingu var boðin þátttaka fyrir Íslands hönd í ár vegna góðs árangurs liðsins í keppnum hér heima á síðasta tímabili. Í hverjum aldursflokki keppa 16 lið frá öllum norðurlönd- unum og náðu strákarnir frábærum árangri í mótinu og höfnuðu í 4. sæti. Spilaðir voru 6 leikir á 4 dögum þannig að álagið var mikið á þennan fámenna hóp. Strákarnir urðu efstir í sínum riðli og unnu þar á meðal glæst- an sigur gegn sænsku meisturunum í þessum aldursflokki 28-20. Dýrmæt reynsla fyrir strákan Okkar menn fóru alla leið í undanúrslit og spiluðu til verðlauna um 3. sætið í mótinu gegn sænska stórliðinu Skövde. Sá leikur tapaðist naumlega með einu marki eftir framlengdan leik og var það vissulega svekkjandi, en það gleymdist fljótt því árangur- inn var engu að síður mjög góður. Strákarnir vöktu mikla athygli á mótinu fyrir skemmtilegan og góðan handbolta, og flotta framkomu innan vallar sem utan. Þátttaka í þessu gríðarlega sterka móti á eftir að reynast þessu sterka og efnilega liði dýrmæt reynsla í framtíðinni og á eftir að styrkja þá í baráttunni um meistaratitla á mótum hér heima á næstu árum. Efnilegir handboltastrákar úr Aftureldingu fóru á Norðurlandamót félagsliða í Svíþjóð Frábær árangur á Norden Cup

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.