Mosfellingur - 13.01.2011, Page 25
25Íþróttir og ungt fólk -
Þjónusta við mosfellinga
Vantar þig vinnu/aukavinnu?
Við leitum að duglegu og jákvæðu fólki,
sem vill taka stjórn á eigin framtíð.
Frábært tækiFæri
Kíktu á síðuna ef þú ert rétti aðilinn og fáðu frekari upplýsingar.
www.heilsufrettir.is/solosk
s: 891-9883
Við erum nú orðin þjónustuaðili
fyrir úrVinnslusjóð
þú getur komið með bílinn til okkar og fengið skilagrein
fyrir 15.000 króna úrvinnslugjaldi.
Gluggar
Útihurðir
Sérsmíði
...í réttum gæðum
Flugumýri 16d
s. 577-1377 / 896-9497
www.retthjajoa.is
a
MÚRVERK - FLÍSALAGNIR - ALMENN VIÐHALDSVINNA
f
FAGMENNSKA Í FYRIRRÚMI
Með átakinu Ungt fólk til athafna
(UFTA) sem ýtt var úr vör af félags- og
tryggingamálaráðuneytinu fyrri part
síðasta árs er markmiðið að aldrei skuli
líða meira en þrír mánuðir frá því að
einstaklingur á aldrinum 16-29 ára verður
atvinnulaus þar til honum er boðið starf,
námstækifæri, starfsþjálfun eða þátttaka
í öðrum verðugum verkefnum. Með
átakinu er verið að gefa ungum atvinnuleitendum
möguleika á að koma sér af stað í námi, öðlast
starfsréttindi eða kynnast nýjum starfsvettvangi,
sér að kostnaðarlausu.
Eitt af þessum verðugu verkefnum er
þátttaka í sjálfboðaliðastörfum innan RkÍ á
meðan á atvinnuleitinni stendur. Verkefnið er
samstarfsverkefni Rauða kross Íslands (RkÍ)
og Vinnumálastofnunar (VMST), byggt á
samstarfssamningi sem undirritaður var þ. 4.
febrúar 2010 og framlengdur um síðustu áramót.
Samningnum var ætlað að tryggja sjálfboðastörf,
fyrir allt að 180 atvinnuleitendur á landsvísu
en raunin varð að rúmlega tvöfalt fleiri komu til
RkÍ á síðasta ári. Af öllum þessum fjölda enduðu
ótrúlega margir í launuðum störfum.
Verkefnið á Reykjavíkursvæðinu fékk fyrst í stað
aðsetur í Rauðakrosshúsi Reykjavíkur í Borgartúni
25 sem þá var rekið af landsskrifstofu RkÍ, en
Reykjavíkurdeild RkÍ yfirtók rekstur hússins í
ágúst. Samhliða þessari breytingu á rekstri
Rauðakrosshússins í Rvk. var rekstur annarra
Rauðakrosshúsa á Stór-Reykjavíkursvæðinu einnig
efldur með það að markmiði að færa þjónustuna til
fólksins, þannig að fólk geti fengið samastað hjá RkÍ
í sínu bæjarfélagi. Þannig var opinber opnunartími
Rauðakrosshússins í Mosfellsbæ, sem er að
Þverholti 7, stóraukinn. Komið hefur upp
sú hugmynd að vera með opið hús einu
sinni í viku á Kjalarnesi og mega þeir sem
áhuga hafa á því gjarnan hafa samband
við RkÍ í Mosó. Allir eru velkomnir í
Rauðakrosshúsið í Mosfellsbæ.
Með eflingu Rauðakrosshúsanna
og auknum fjölda ungmenna í UFTA,
skapaðist grundvöllur fyrir því að bjóða
ungmennunum í verkefninu að velja sér stað-
setningu með tilliti til búsetu. Því hafa ungmenni
af Kjalarnesi, úr Kjós, Mosfellsbæ og austurhluta
Reykjavíkur sótt námskeið og fræðslu í UFTA
verkefninu í RkÍ-húsinu í Mosfellsbæ, Þverholti 7.
Með auknum fjölda ungmenna í verkefninu
skapaðist einnig þörfin fyrir meiri fjölbreytni
þar sem þeir sem velja sér RkÍ sem úrræði þurfa
að sinna ákveðinni mætingarskyldu til að halda
bótum og takmörk eru fyrir því hversu mörgum er
hægt að finna sjálfboðaliðastörf við hæfi. Áherslan
hefur því verið aukin á uppbyggjandi fyrirlestra,
aðstoð við atvinnuleit og starfsþjálfun.
Í öllu þessu getur bæjarfélagið þ.e. sveitarfélag-
ið, fyrirtækin og ekki síst fólkið innan sveitarfélags-
ins veitt ómetanlega aðstoð. Ég vil því hvetja alla
sem kunna að vera gjaldgengir í verkefnið UFTA
eða vita af einhverjum sem þannig er ástatt um
að hafa samband í síma 564-6035 eða koma við
í Rauðakrosshúsinu í Mosfellsbæ að Þverholti 7.
Einnig alla atvinnurekendur sem kunna að óska
eftir ungum starfsmönnum eða geta boðið upp á
starfsþjálfun fyrir ungmennin.
Kær nýárskveðja,
Hilmar Bergmann,
verkefnastjóri – Taktur, Kjósarsýsludeild RkÍ.
Ungt fólk til athafna
- fyrir unga fólkið og framtíðina!
Súrt silfur, gulli betra
Hluti leikmanna í meistaraflokki Aftureldingar tók um helgina þátt í Vodafone cup Iceland. Sigurlið
mótsins keppir fyrir hönd Íslands á Vodafone world cup í Abu Dhabi í mars. Á mótinu tóku þátt 72 lið
en það fór fram í Fífunni. Okkar menn áttu stórleik og sigruðu sinn riðil. Þeir unnu svo alla leiki sína
frá 32 liða úrslitum að úrslitaleiknum. Þar vantaði herslumuninn og töpuðu þeir 2-1 Það verður því að
bíða betri tíma að skreppa til Abu Dhabi hjá þeim enda kannski bara eigulegra að hafa fengið Nokia
síma í verðlaun fyrir 2. sætið.
Efnilegir handboltastrákar úr Aftureldingu fóru á Norðurlandamót félagsliða í Svíþjóð
Frábær árangur á Norden Cup