Mosfellingur - 13.01.2011, Qupperneq 26
Óþolandi veggjakrot
Krotið á Bæjarleikhúsinu okkar er
orðið óþolandi. Þetta kostar alltaf
málningu og ergir okkur sem erum
að vinna við leikhúsið og gefum
allan okkar tíma og borgum oft
með okkur í starfinu þar. Trúlega
eru þetta unglingar sem þykir þetta
“flott” en okkur þykir þetta ljótt.
Með bestu kveðju og ósk um gott
nýtt ár.
Leikari
ORÐIÐ ER LAUST...
Hér gefst lesendum kostur á að
láta skoðanir sínar í ljós í stuttu máli.
- Aðsendar greinar26
Sumarferð
eldri borgara
Sumarferð Félagsstarfs eldri
borgara í Mosfellsbæ 4.-6. júlí
Lagt verður af stað frá Eirhömrum
í Mosfellsbæ mánudaginn 4.
júlí og ekið um Suðurland að
Búrfellsvirkjun. Þaðan verður
haldið um virkjanasvæðin að
Vatnsfellsvirkjun, og Versölum
og upp á Sprengisand um slóðir
Fjalla-Eyvindar í Nýjadal, þar sem
snætt verður nesti. Þaðan haldið í
Tómasarhaga, um Kiðagilsdrög, að
Aldeyjarfossi, niður Bárðardal og að
Stórutjörnum við Ljósavatn þar sem
snæddur verður kvöldverður og gist.
Þriðjudaginn 5. júlí verður lagt af
stað eftir morgunverð frá Stóru-
tjörnum og ekið að Goðafossi, um
Fljótsheiði og Aðaldal að Mývatni,
um Námaskarð og niður Hólssand
að Dettifossi, niður í Ásbyrgi þar
sem snætt verður nesti. Síðan um
Tjörnes til Húsavíkur og aftur til
Stórutjarna þar sem snæddur verður
kvöldverður og gist aðra nótt.
Miðvikudaginn 6. júlí eftir morg-
unverð verður ekið til Akureyrar,
þaðan til Dalvíkur, Ólafsfjarðar, um
Héðinsfjarðargöng til Siglufjarðar,
um Haganesvík og Fljót til Sauð-
árkróks þar sem snæddur verður
hádegisverður. Síðan um Þverfjall til
Blönduóss, um Holtavörðuheiði og
Borgarfjörð til Mosfellsbæjar.
Þetta er ferðalýsingin í stórum
dráttum. Það skal sérstaklega tekið
fram að stoppað verður á öllum
áhugaverðum stöðum og áfangar
hafðir sem þægilegastir fyrir þátt-
takendur.
Verð á mann verður kr. 40.000.-
Það er nóg um að vera í Fram-
haldsskólanum í Mosfellsbæ. Nem-
endur eru að vinna að fjölbreyttum
verkefnum yfir önnina. Í upphafs-
áfanga í ensku, 2A05, er lögð rík
áhersla á að nemendur vinni fjöl-
breytt verkefni og eitt af þeim verk-
efnum er að nemendur voru beðn-
ir um að skrifa bréf til 10. bekkinga
hér í bænum til að kynna skólann. Tíðar
heimsóknir 10. bekkinga í skólann voru
kveikjan að verkefninu. Nemendur voru
beðnir um að segja frá því sem þau töldu
vera kosti skólans. Nemendur stóðu sig
með prýði og verkefnin komu vel út. Hér
eru nokkur dæmi um svör þeirra:
“For starters it has no tests at all, your
final grade will be determined purely by
how well you do in class and your assign-
ment turn-ins. It also has other qualities
such as but not limited to: nice teaching,
good teaching methods, much (but
not complete) computer use and
more.”
“Not only does this school have
unique, interactive assignments.
But also a close knit group of kids,
this being such a small school and
all. The teachers are also great, very
helpful and clearly know how to do
their job.”
“If you like a good education, no exams
and good teachers FMOS might be the right
school you. Like I said before in FMOS
there are no exams which means you have
to be in charge of how well you want to
learn. You have to finish your homework
and attend classes. The good thing about
that is you can almost always finish your
homework during school-hours so you
have a lot of free time. The courses are not
too hard but not too easy so you can learn
something. You can always get help if you
need from your teachers.”
“Few students are in FMOS so that is
really positive you know everyone in the
school and it is really good to learn here….
We have special time called “verkefnatím-
ar” than we can come if we want to learn
our homework or something we did not
understand in class. All the teachers are
available that time to help you.”
Í Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ reyn-
um við að mæta þörfum nemenda okk-
ar með verkefnamiðuðu námi og áherslu
á fjölbreyttar kennsluaðferðir. Við höf-
um leiðsagnarmat að leiðarljósi; engin
stór lokapróf heldur símat yfir önnina. Í
kennslukönnun skólans í haust kom það
fram að nemendur eru almennt ánægðir
með skólann.
Helena María Smáradóttir
enskukennari í FMoS
Hvernig myndir þú kynna skólann þinn?
Gleðilegt árið!
Langar að byrja á að lýsa
yfir ánægju minni yfir hversu
Mosfellingar voru duglegir að
skreyta hús sín og garða með allri
þessari fallegu jólalýsingu um
hátíðina. Guðdómlegt að ganga um
bæinn og skoða alla ljósadýrðina.
Endilega haldið áfram á þessari
braut um næstu jól og áramót. Ekki veitir
af í þessu skammdegi.
Varðandi skrif meirihlutans um
lagfæringu á grein sem frú Hanna
Bjartmars skrifaði um hækkandi laun
bæjarstjórans í þarsíðasta blaði og ég lýsti
vandlætingu minni á í síðasta tölublaði
langar mig barasta hreint og beint til að
fara fram á að bæjarstjóri og meirihluti
upplýsi mig um hver nákvæmlega
eru mánaðarlaun bæjarstjórans
með ÖLLUM hlunnindum og
einnig kjörinna fulltrúa? Það
hljóta að vera opinber gögn er það
ekki, þar sem við skattborgararnir
erum að greiða ykkur laun? Það
eru greinilega að koma þarna
fram afar villandi skilaboð og eftir
að hafa lesið grein meirihlutans í síðasta
tölublaði verð ég barasta að segja að ég er
enn forvitnari fyrir vikið. Get barasta ekki
kyngt því ef bæjarstjóri og fulltrúar séu á
einhverjum ofurlaunum þegar álögur eru
hækkaðar á okkur og ýmis þjónusta skert.
Einnig rámar mig í að
Framsóknarflokkurinn hafi verið að gera
það að umtalsefni í blaðagrein Mosfellings
korteri fyrir síðustu kosningar að laun
bæjarstjórans hafi hækkað óheyrilega
þegar núverandi bæjarstjóri tók við völdum
á miðju síðasta kjörtímabili. Vona að mig
misminni ekki? Er ekki bara hreinlegast að
upplýsa fólk? Hljóta að vera fleiri en ég sem
velta þessu fyrir sér! Einnig...hverjir eru í
þessu Kjararáði sem meirihlutinn vísar svo
mikið til í síðasta blaði? Er það eitthvað ráð
á vegum sveitarfélagsins eða hvað?
Einnig sló það mig í síðasta tölublaði að
sagt var frá því að hefjast ætti handa við að
reisa nýjan framhaldsskóla í Mosfellsbæ
núna á árinu, en ég bara spyr sjálfa mig
og ykkur meirihlutann höfum við virkilega
efni á því að fara að reka enn einn nýjan
skólann í bæjarfélaginu okkar miðað við
ástandið í dag?
Með kveðju og vinsemd.
Hólmfríður D. Magnúsdóttir
Enn um kjör bæjarstjórans
Það var gott og skynsamlegt skref
hjá Mosfellsbænum á sínum tíma
að gefa starfsmönnum sínum frítt
í sund. Sund er mjög góð líkams-
rækt sem flest allir geta stundað
sér til heilsubótar og ekki síst fólk á
efri árum. Sund reynir ekki á liða-
mótin og engin hætta er á íþrótta-
meiðslum. Að stunda sund, gufu-
bað og potta eykur mótstöðuafl líkamans á
móti alls konar pestum. Undirrituð
hefur – 7,9,13 – hvorki fengið kvef
né flensu í mörg ár og rek ég þetta
til reglulegra sundferða og útiveru
í öllum veðrum.
En nú er öldin önnur og stjórn
Mosfellsbæjar hefur afnumið frítt
sundkort fyrir starfsmennina sína.
Sparnaðurinn við þetta er auðvitað
enginn því rekstrarkostnaður á sundlaug-
unum verður sá sami. Jú, einhverjir munu
eflaust kaupa sér kort og eitthvað smávegis
mun koma inn í kassann. En eflaust munu
þessar ráðstafanir draga úr sundferðum hjá
mörgum, alveg örugglega hjá mér.
Það væri fróðlegt að reikna upp hve
mikið bara ein veikindavika hjá starfsmanni
kostar bæjarfélagið og hvort það muni nú
ekki borga sig frekar að hafa starfsfólkið
hraust og við góða heilsu.
Úrsúla Jünemann, kennari
Sundið er gott fyrir heilsuna
Í síðasta tölublaði Mosfellings
skrifa þrír fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins í bæjarstjórn Mosfells-
bæjar grein um laun bæjarstjór-
ans. Eins og alltaf þegar málefni
bæjarfélagsins eru til umræðu
valdi fulltrúi Vinstri grænna að
skipa sér á bekk með Sjálfstæðis-
mönnum og undirritaði greinina
ásamt þeim. Greinin er skrifuð undir því
yfirskini að verið sé að leiðrétta villandi
upplýsingar sem undirrituð á að hafa sett
fram í grein í Mosfellingi sem kom út 2.
desember s.l. Í grein fjórmenninganna er
því haldið fram að ég hafi vísvitandi farið
rangt með staðreyndir.
Mín grein fjallaði um nýjan ráðningar-
samning við bæjarstjóra Mosfellsbæjar
og tillögur sem Samfylkingin lagði fram
til breytinga á honum. Í grein sinni kjósa
fjórmenningarnir að tíunda breytingar sem
þau segja að orðið hafi á kjörum bæjarstjóra
frá 1. janúar 2009. Efni minnar greinar
var nýi ráðningarsamningurinn og sá litli
sparnaður sem í honum felst en ekki það
hvort bæjarstjóri hafi tekið á sig lítilsháttar
kjaraskerðingu á undanförnum tveimur
árum. Það hafa nær allir í þjóðfélaginu
þurft að gera. Fjórmenningarnir vilja
eflaust reyna að fegra myndina
með þessum málflutningi en það
réttlætir ekki þau ofurkjör sem
bæjarstjórinn nýtur enn samkvæmt
nýjum ráðningarsamningi. Í grein
fjórmenninganna er talað um
launaflokkatilfærslu.
Í gögnum sem meirihlutinn
lagði fyrir bæjarstjórn þegar
ráðningarsamningurinn var þar til umræðu
kemur skýrt fram að laun bæjarstjóra muni
hækka úr launaflokki 139 í launaflokk 141
líkt og laun ráðuneytisstjóra hafi gert. Það
kann vel að vera að niðurskurður á fastri
yfirvinnu bæjarstjórans hafi orðið til þess
að laun hans lækkurðu í raun en hækkun
grunnlaunanna hefur mildað þá lækkun
verulega. Í grein bæjarfulltrúa meirihlutans
segir að „launaflokkatilfærslan“ sé tilkomin
vegna þess að laun bæjarstjóra eru tengd
við laun ráðuneytisstjóra og að Kjararáð
hafi ákvarðað breytingarnar. Hér er látið
líta út fyrir að það sé einhvers konar
náttúrulögmál að laun bæjarstjóra fylgi
launum ráðuneytisstjóra.
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar getur samið
um laun bæjarstjóra á þeim forsendum
sem hún telur skynsamlegast og er alls
ekki bundin af því að miða launin við laun
ráðuneytisstjóra þó það hafi á einhverjum
tímapunkti verið talið heppilegt viðmið.
Það kemur úr hörðustu átt að væna mig
um að setja fram villandi upplýsingar.
Auk loðins orðalags eins og rakið hefur
verið hér að ofan beita fjórmenningarnir
fyrir sig prósentutölum án þess að fram
komi hvernig þær eru til komnar. Það er
reyndar fróðlegt að sjá að samkvæmt þeirra
eigin útreikningum lækkuðu hlunnindi
bæjarstjóra einungis um sem nemur 1% af
launum.
Í mínum huga er það alveg ljóst að grein
fjórmenninganna í síðasta Mosfellingi var
ekki skrifuð til að Mosfellingar hafi réttar
upplýsingar um málið eins og þar var haldið
fram. Tilgangurinn var fyrst og fremst að
slá ryki í augu bæjarbúa með því að reyna
að gera mig ótrúverðuga. Slík vinnubrögð
dæma sig sjálf. Allt slíkt er þó léttvægt í
stærra samhengi hlutanna. Eftir stendur
að á meðan lagður er til niðurskurður á
öllum sviðum í starfsemi bæjarins nýtur
bæjarstjórinn enn ofurlauna og ýmissa
hlunninda svo sem bifreiðar sem rekin er
á kostnað bæjarfélagsins.
Hanna Bjartmars Arnardóttir
Samfylkingin
Enn um laun bæjarstjóra