Mosfellingur - 22.12.2011, Qupperneq 33
- Jólahugvekja32
gleðileg jól www.isband.iswww.100bilar.is
Óskum bæjarbúum gleðilegra jóla
og farsældar á nýju ári.
Þökkum viðskiptin á árinu.
Farvegur kærleikans í heiminum
Aðventan er senn á enda, myrkasta skammdeg-
ið gengið í garð og bjartasta ljósið framundan,
sjálf jólin. Við minnumst sögunnar um nýfædda
barnið í Betlehem, sögu sem við höfum væntan-
lega öll heyrt svo oft áður. En hvað táknar þetta
barn sem er grundvöllurinn að boðskap jólanna?
Hvað er það í boðskapnum sem fær okkur til að
horfa á lífið í sínu víðasta samhengi og hvetur
okkur til að koma auga á hin raunverulegu gildi
í lífinu? Hvað er það í boðskap jólanna sem er svo mik-
ilvægt?
Eitt það mikilvægasta og dýrmætasta í lífi sérhverrar
manneskju eru tengslin sem hún á við annað fólk. Það
er okkur mikilvægt að vera í einlægum og heiðarlegum
samskiptum hvert við annað og að geta deilt með hvort
öðru bæði sorg og gleði, vanmætti og sigrum. Við þurf-
um ekki annað en hlusta á reynslu þeirra sem upplifa
einangrun, einelti og útskúfun til að skilja að án jákvæðu
tengslana við annað fólk, visnum við og deyjum.
Það sem einkennir helst þennan margbreytilega og
oft annasama tíma aðventu og jóla eru umfram allt sam-
skiptin sem við eigum við hvort annað, við okkar
nánustu, ættingja og vini og samferðarfólk nær
og fjær. Við hugsum hvert til annars þegar við
skrifum á jólakort, sendum jólakveðjur og velj-
um gjafirnar. Við notum tímann til að safnast
saman undir ýmiskonar formerkjum á jólafund-
um og tónleikum, í jólaföndri eða bakstri, jóla-
bingói eða hlaðborði, jólaboði eða balli. Jól og
aðventa eru þar af leiðandi líka tilfinningaríkur
tími því þau gera okkur einstaklega meðvituð um tengsl-
in sem við eigum við aðrar manneskjur, gæði þeirra eða
jafnvel skort á þeim. Séu samskipti okkar heil og nærandi
er næsta víst að við göngum til móts við þennan tíma
með birtu í hjarta sem nær að lýsa upp skammdegið og
útrýma myrkrinu.
Að sama skapi gildir að ef samskipti okkar við okk-
ur sjálf, annað fólk og jafnvel Guð eru löskuð eða hafa
rofnað er hætt við að við séum uppteknari af myrkrinu
innra með okkur, finnum litla gleði og eigum erfitt með
að skynja birtu jólanna framundan. Hvergi verður okkur
þetta ljósara en þegar við syrgjum og söknum og tökumst
á við jólahátíðina án þeirra sem við elskum.
Kjarni þess sem fagnaðarerindi jólanna boðar okkur er
kærleikur – kærleikur sem verður til í samskiptum. Ný-
fædda barnið sem við horfum til í Betlehem er óskrifað
blað, nýtt upphaf sem ber með sér fyrirheit um ótal lit-
brigði mannlegra samskipta. Það eru fyrirheit jólanna.
Jólasagan minnir okkur á að kærleikur Guðs verður til í
jákvæðum samskiptum okkar mannanna, Guð er í tengsl-
unum, við erum farvegur Guðs í heiminum. Guð hefur
gert okkur ábyrg fyrir því að finna kærleikanum farveg á
sem flestum stöðu og sem víðast í mannlegu samfélagi.
Til þess höfum við óþrjótandi tækifæri. Það er boðskapur
jólanna.
Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól og kærleiksrík sam-
skipti á nýju ári !
Arndís G. Bernhardsdóttir Linn,
guðfræðingurJólahugvekja
Flugumýri 16d
s. 577-1377 / 896-9497
www.retthjajoa.is