Mosfellingur - 19.03.2010, Page 8

Mosfellingur - 19.03.2010, Page 8
Framkvæmdasýsla ríkisins fyrir hönd mennta­ og menn­ ingarmálaráðuneytisins og Mosfellsbæjar bauð til opinn­ ar hönnunarsamkeppni um Framhaldsskólann í Mosfellsbæ. Um er að ræða u.þ.b. 4000 m² byggingu sem staðsett verður í miðbænum nánar tiltekið við Háholt. Alls bárust 40 tillögur í samkeppnina og er gert ráð fyrir því að dómnefnd tilkynni úrslit um miðjan apríl. Fram­ haldsskólinn í Mosfellsbæ kennir sig við auðlindir og umhverfi í víðum skilningi og verða þær áherslur samfléttaðar við skólastarfið. Átta kórar halda saman tónleika Einstakt sönglíf ríkir í Mos­ fellsbæ og fá sveitarfélög geta státað af jafn ríkri kórastarfsemi. Átta kórar í Mosfellsbæ/Kjalar­ nesi halda sameiginlega tónleika í Kjarnanum sunnudaginn 21. mars. Markmiðið með tónleik­ unum er að vekja athygli á þessu mikla kórstarfi, leyfa almenningi að kynnast fjölbreyttri starfsemi kóranna og efla samstarf á milli þessara söngaðila. Í Mosfellsbæ eru starfræktir tveir barnakórar, tveir kven­ nakórar, sex blandaðir kórar og einn karlakór. Kórarnir sem taka þátt í tónleikunum eru: Álafosskórinn, kórstjóri Helgi R. Einarsson; Barnakór yngri deild­ ar Lágfells­ og Varmárskóla, kórstjóri Berglind Björgúlfsdótt­ ir; Kammerkór Mosfellsbæjar, kórstjóri Símon H. Ívarsson; Karlakór Kjalnesinga, kórstjóri Páll Helgason; Mosfellskórinn, kórstjóri Vilberg Viggósson; Skólakór Varmárskóla, kórstjóri Guðmundur Ómar Óskarsson; Karlakórinn Stefnir, kórstjóri Gunnar Ben og Vorboðarnir, kórstjóri Páll Helgason. Þegar átta kórar leggjast á eitt, má búast við mjög áhugaverðum tónleikum. Á efnisskránni verða lög frá öllum heimshornum. 8 - PrimaCare byggir sjúkrahús í Mosfellsbæ 40 tillögur að nýjum framhaldsskóla Hálft ár er liðið frá því að Mos­ fellsbær og PrimaC­are skrifuðu undir viljayf­irlýsingu um byggingu einkarekins liðskiptasjúkrahúss og hótels í Mosfellsbæ. Mosfell­ ingur hitti Gunnar Ármannsson, framkvæmdastjóra PrimaC­are, til að forvitnast um stöðuna á verkefn­ inu og horfurnar á að hugmyndin verði að veruleika. V iið ætlum að taka fyrstu skóflu­stunguna þann 1.1.11 og gera fyrstu aðgerðina 12.12.12,” segir Gunnar Ármannsson, fram­ kvæmdastjóri PrimaCare fullur eld­ móðs og bjartsýni þegar hann er spurður um hvernig miði áfram í því metnaðarfulla verkefni að koma á fót einkasjúkrahúsi sem sérhæfir sig í liðskiptaaðgerðum fyrir útlend­ inga. „Auðvitað er þetta ekki í höfn, en við erum á réttri leið,” segir Gunn­ ar. Fyrstu vikuna í mars hitti Gunnar fulltrúa allra þeirra fyrirtækja sem PrimaCare er í samstarfi við. Fund­ urinn markaði upphafið að átta vikna verkefni sem felst í því að laða fleiri frumfjárfesta að hugmyndinni um stofnun einkarekins liðskipta­ sjúkrahúss og hótels í Mosfellsbæ sem ætlað er erlendum sjúklingum eingöngu. „Næstu mánuðir eru nánast próf­ steinn um það hvort okkur takist að láta þessa hugmynd verða að veru­ leika,” segir Gunnar. Fjármagnið frá viðbótar frumfjárfestum er ætlað til þess að vinna hugmyndina á það stig að hægt verði að laða að erlenda fagfjárfesta til að fjármagna bygg­ ingu sjúkrahússins og rekstur þess á upphafsstigum. „Við erum fyrst og fremst að leita til íslenskra fjárfesta á þessu stigi,” segir Gunnar. „Okkur hefur tekist að safna yfir eina mill­ jón dollara en eigum enn nokkuð í land til þess að ljúka fjármögnun þess sem upp á vantar til að kosta þá vinnu sem eftir er.” Sjúkrahúsin tvö geta stutt hvort annað Talsverð umræða hefur verið um annað einkarekið sjúkrahús hér á landi, sem fyrirhugað er að hefji starf­ semi innan skamms á gamla vallar­ svæðinu svokallaða á Miðnesheiði. Aðspurður segist Gunnar sannfærð­ ur um að ef vel er að málum staðið geti sjúkrahúsin tvö stutt hvort við annað. „Eftirspurnin eftir aðgerð­ um er meiri en nægileg svo þessi tvö sjúkrahús geti haft nóg að gera, það er engin spurning. Í sameiningu getum við sett Ísland í fremstu röð við gerð liðskiptaaðgerða og að hér sé heilbrigðisþjónusta á heimsmæli­ kvarða,” segir Gunnar. Á áðurnefndum fundi samstarfs­ aðilanna var farið ítarlega yfir verk­ efnið og stöðu þess. Eitt þeirra atriða sem upp kom við skoðun ráðgjaf­ anna var að af margvíslegum ástæð­ um væri heppilegast fyrir verkefnið ef sjúkrahúsið yrði staðsett á landi of­ an Akra, vestan Hafravatnsvegar, en það er í eigu Mosfellsbæjar. „Í kjöl­ farið tókum við þá ákvörðun með fullri vitund allra hagsmunaaðila að velja sjúkrahúsinu þann stað,” segir Gunnar. vongóður um að verkefnið takist Aðspurður segir Gunnar erlendu samstarfsaðilana hafa mikla trú á að það takist að láta hugmyndina verða að veruleika. „Áður en við hittumst á þessum vinnufundi taldi ég miklar líkur á því að þetta tækist hjá okkur en eftir fundinn tel ég líkurnar enn meiri,” segir Gunnar. Hann segir að stærsta hindrunin sé enn sem áður framundan. „Þó svo að það hljómi eilítið öfugsnúið þá tel ég að það geti reynst okkur erfiðara að ná í litlu peningana en þá stóru.” Til marks um trú erlendu sam­ starfsaðilana á verkefninu nefnir Gunnar að Oppenheimer Invest­ ment hafi boðist til að vinna með PrimaCare undir þeim formerkjum að þeir fái ekki greitt fyrir en öll fjár­ mögnun er í höfn. Það sé nokkuð sem þeir leggi ekki í vana sinn enda um eitt virtasta ráðgjafarfyrirtæki á sviði fjármögnunar í heiminum að ræða með aðsetur í Sviss. Með sjálfbærni að leiðarljósi PrimaCare sjúkrahúsið og hótelið verður byggt og rekið með sjálfbærni og umhverfisvitund að leiðarljósi. „Það var ekki síst þess vegna sem okkur fannst Mosfellsbær rétti stað­ urinn fyrir þennan rekstur,” segir Gunnar. „Bæjaryfirvöld hafa markað sér skýra stefnu í umhverfismálum og einnig hvað varðar uppbyggingu á sviði heilsutengdrar þjónustu hér í Mosfellsbæ,” segir Gunnar. Við munum einnig horfa til um­ hverfisverndarsjónarmiða við hönn­ un og byggingu sjúkrahússins og hótelsins og þannig leggja okkur fram við að gera það í sem mestri sátt við umhverfið og náttúruna,” segir Gunnar. Einn samstarfsaðila PrimaCare, alþjóðlega verktakafyr­ irtækið Skanska, hefur sérhæft sig í byggingu á umhverfisvænu húsnæði og verður með yfirumsjón með þeim hluta verksins og veitir jafn­ framt vottun þess efnis. Ánægður með Mosfellinga Gunnar lýsir yfir mikilli ánægju með samstarfið við Mosfellsbæ til þessa, jafnt við meirihluta sem sam­starfsaðil­ar prim­aC­are • hill international • Shiboomi • op­p­enheimer investment • Skanska • Clifford Chance Gunnar Ármannsson framkvæmdastjóri PrimaCare er bjartsýnn á að einkarekið liðskiptasjúkrahús og hótel rísi í Mosfellsbæ Fyrsta aðgerðin gerð 12.12.2012 „Okkur hef­ur tekist að saf­na yf­ir eina millj­ón dollara en eig­um enn nokkuð í land til þess að lj­úka f­j­ármög­nun þess sem upp á vantar.” „Bæði er hér um að ræða hug­mynd sem byg­g­ir alf­arið á aðg­erðum á erlendum sj­úkling­um og­ hins veg­ar eru umhverf­is­ málin stór þáttur í við­ skiptahug­myndinni.” StaðSetningin Loftmyndir ehf. Gunnar Ármannsson framkvæmdastjóri Primacare er fullur bjartsýni. Áætluð staðsetning er í nágrenni Sólvalla, ofan Akra, í landi Mosfellsbæjar.

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.