Mosfellingur - 19.03.2010, Síða 13
www.mosfellingur.is - 13
Samfés
Samféshátíðin 2010 var haldin í
Laugardalshöll helgina 5.6. mars.
Um það bil 5000 unglingar mættu
og þar á meðal 130 úr Mosó. Ball
var haldið föstudaginn 5. mars og
sjálf söngvakeppnin var haldin
laugardaginn 6. mars í beinni út
sendingu á Skjá 1. Félagsmiðstöðin
Igló úr Kópavogi sigraði söngva
keppnina með laginu Óli lokbrá. Á
ballinu var mikið um franska kossa
en einnig var stiginn lostafullur
dans. Fjórar unglingahljómsveitir
komu fram ásamt Ingó, Jeff who,
röppurunum Dabba T, Mc Gauta og
Geira LG. Að lokum steig íslenski
poppkóngurinn Páll Óskar á svið,
stúkan tæmdist og salurinn trylltist.
HrafnhildurMalenTraustadóttir
ogHebalindHalldórsdóttir9.EJ
Könnun á viðhorfi
til skólans og félags
miðstöðvarinnar
Tveir Nemendur i 9. BÁ gerðu
könnun á viðhorfi nemenda i eldri
deild Varmárskóla á skólanum og
félagsmiðstöðinni Bólinu. Könnun
in var framkvæmd á þemadögum
og voru nemendur í eldri deild
á aldrinum 1316 ára spurðir,
rannsakendur gættu að því að
hafa aldur og kyn að jöfnu við gerð
rannsóknarinnar.
Helstu niðurstöðurnar voru að
nemendurnir hafa mikla skoðun á
reglum skólans t.d varðandi notkun
síma í frímunundum og flestir
töldu að leyfa ætti notkun síma á
göngunum.
Niðurstöðurnar komu út þannig
að krökkunum finnst bara gaman i
skólanum og sérstaklega skemmti
legt að vera með öðrum krökkum.
Flest öllum krökkunum fannst
kennarnir bara mjög fínir og
niðurstaðan kom út þannig að
Halldór var talinn skemmtilegasti
kennarinn.
Nemendum finnst námsfögin mis
erfið en flestum fannst heimilis
fræði skemmtilegasta fagið og svo
stærfræði erfiðasta fagið.
Misjafnar skoðanir voru á hvernig
krökkunum fannst maturinn en
að meðaltali er hægt að segja að
maturinn sé ekki slæmur en ekki
svo góður.
Nemendurnir sögðu að félagslífið í
skólanum gæti verið betra en þegar
þau voru spurð um Bólið voru þau
ánægð með félagslífið þar og það
skemmtilegasta væri að vera með
krökkunum og fara i billjard.
KatrínSveinsdóttir
MagnearósSvansdóttir
Úthlutun styrkja
til efnilegra ungmenna
Öll ungmenni á aldrinum 14 til 20 ára,
með lögheimili í Mosfellsbæ,
sem skara fram úr og hafa sýnt
sérstaka hæfileika á sínu sviði
geta sótt um styrkinn.
Markmið Mosfellsbæjar með styrknum er
að koma til móts við þau ungmenni sem
geta ekki með sama hætti og jafnaldrar
þeirra unnið sumarvinnu hjá Mosfellsbæ
vegna mikils álags, skipulags eða annarra
sannarlegra þátta sem tengist íþrótt þeirra,
tómstundum eða listum. Þannig er það
vilji bæjarins að þau geti samhliða notið
sumarlauna líkt og jafnaldrar þeirra.
Styrknum er ekki ætlað að mæta útgjöld
um né er um að ræða verðlaunafé fyrir
unnin eða óunnin afrek. Styrkhafa er
heimilt að vera í launaðri vinnu nefndan
tíma, en þá skerðist styrkurinn í hlutfalli
við starfshlutfall.
Íþrótta- og tómstundanefnd hefur eftir-
farandi viðmið þegar styrkjum er úthlutað:
· Meðmæli þjálfara, kennara eða annars
leiðbeinanda umsækjanda sem fylgja skulu
með umsókninni. Þar skulu koma fram upp
lýsingar um ástundun, hæfileika, virkni og
framkomu umsækjandans.
· Fram skulu koma upplýsingar frá um
sækjanda hyggist hann þiggja launaða
vinnu á styrktímanum. Sé um slíkt að ræða
þarf að tilgreina starfshlutfall og hvort ósk
að er hlutastarfs hjá vinnuskóla bæjarins
og eða Mosfellsbæ.
· Gæta skal jafnræðis við val á styrkþegum
bæði hvað varðar kynferði sem og milli
listgreina og íþrótta og tómstundagreina.
Þessa jafnræðis skal gætt innbyrðis við
hverja úthlutun sem og á milli ára.
· Árlega veitir Íþrótta og tómstundane
fnd styrki til 35 einstaklinga, breytilegt
milli ára þar sem kostnaður fer eftir aldri
styrkþega og hvort um hlutfallsgreiðslur sé
að ræða.
Styrkurinn er greiddur sem laun frá
Vinnuskóla Mosfellsbæjar. Fyrir unglinga
í þeim árgöngum sem starfa í Vinnuskóla
num er greitt í samræmi við samþykktan
taxta hverju sinni og í jafn langan tíma og
samsvarar aldri hvers og eins. Ungmenni
sem eldri eru fá greidd laun í samræmi við
gildandi kjarasamninga, í jafn langan tíma
og Mosfellsbær veitir öðrum ungmennum
sumarvinnu.
Styrkþegi skal útfylla sérstaka skilagrein
og skila henni til Íþrótta og tómstunda
nefndar fyrir 20.ágúst. Hann skal þar gera
grein fyrir nýtingu tímans sem varið er í
það verkefni sem styrkt er.
Sótt er um styrkinn á vef bæjarins, www.mos.is.
Umsóknarfrestur er til 12.apríl 2010.
Nánari upplýsingar veitir Þjónusturver Mosfells
bæjar í síma 5256700 milli kl. 8:00 og 16:00.
Íþrótta og tómstundanefnd Mosfellsbæjar.
Íþrótta- og tómstundanefnd auglýsir eftir umsóknum
vegna úthlutunar styrkja til efnilegra ungmenna sem
leggja stund á íþróttir, tómstundir eða listir
VirÐing jákVæÐni framsækni umhyggja
Þemadagar í varmárskóla - fjölmiðlasmiðja var starfrækt og má sjá Þeirra afrakstur hér á síðum mosfellings
Þemadagar í varmárskóla