Mosfellingur - 19.03.2010, Qupperneq 16
Myndlistarsýning
í lágafellslaug
Ragnheiður Þorvaldsdóttir hef
ur sett upp myndlistarsýningu
í anddyri Lágafellslaugar. Sýn
ingin er opin
alla daga eða á
opnunartíma
sundlaugar
innar. Verkin
eru alls 15. Þau
spinna yfir vítt
myndefni t.d.
hesta, kindur,
náttúru og álfkonur. Ragnheiður
hefur sótt nám í Myndlistar
skóla Mosfellsbæjar. Sýningin
stendur til 7. apríl.
Söluaðilar tóbaks
virði lög og reglur
Fjölskyldusviði Mosfellsbæjar
hefur borist ábending um að
dæmi séu um að söluaðilar
tóbaks í Mosfellsbæ hafi selt
börnum undir 18 ára aldri tóbak
í andstöðu við ákvæði laga þar
um. Skaðsemi tóbaks á heilsu
er óumdeild og mikilvægt að
standa vörð um að börn ánetjist
ekki þeirri fíkn. Fjölskyldusvið
hefur sent bréf til söluaðila
tóbaks í Mosfellsbæ þar sem
þeir eru hvattir til að virða
ákvæði 8. gr. laga nr. 6./2002 um
tóbaksvarnir.
- Fréttir af fólki16
Myndasýningin Saga hljómsveitanna mun prýða veggi Cafe Kidda Rót
þegar veitingastaðurinn opnar í Háholtinu. Sýningin er í boði Landsbóka
safns Íslands. „Án stuðnings safnsins hefði sýningin ekki orðið að veruleika.
Sýningin er byggð upp á auglýsingum úr Morgunblaðinu og má þakka
blaðinu fyrir að hafa verið frumkvöðull í þeirri þjónustu við landsmenn og
hljómsveitir að auglýsa dansleiki og skemmtanahald í blaðinu,” segir Kiddi.
Sýningin spannar sögu allra hljómsveita sem auglýstu í blaðinu frá 1968
1988. Kiddi Rót fékk viðurnefni sitt einmitt á sínum tíma þegar hann var rótari
hljómsveita og viðlogandi tónlist frá 19721985.
„Við stefnum að því að geta opnað veitingastaðinn í vikunni fyrir páska. Nú
er verið að leggja lokahönd á staðinn,” segir Kiddi Rót og hlakkar greinilega til
að eiga viðskipti við Mosfellinga og nærsveitunga.
Hann er Heimsfrægur í mosfellsbæ
lúxus borgari með eggi, beikoni, iceberg, gúrkum og lauk ásamt frönskum 1040,-
Cafe Kidda Rót opnar vikuna fyrir páska í Háholti
kiddi opnar með sýningu
MOSFELLINGUR
Hvað er
að FréTTa?
seNdu okkur líNu...
mosfellingur@mosfellingur.is
Lionsklúbburinn Úa í Mosfellsbæ var stofnaður 10.
desember 2007. Fundir eru haldnir einu sinni í mánuði
frá september til maí. Þess utan er farið í gönguferðir
eða heimsókn í fyrirtæki og endað á kaffihúsi eða í
heimahúsi. Þetta er liður í að kynnast betur og hafa
gaman saman.
Klúbburinn hefur veitt styrki til góðgerðarmála í
Mosfellsbæ og nú nýlega í alþjóðarhjálparsjóð Lions
vegna jarðskjálftans á Haíti. Einnig til Alþjóðabjörgun
arsveitar Landsbjargar vegna hjálparstarfa þeirra á
Haíti. „Viljum við í Lionsklúbbnum Úu bjóða öllum
áhugasömum konum á kynningarfund sem haldinn
verður í Hraunhús Völuteig 6 hér í bæ þann 24. mars
kl. 20.”
Nánari upplýsingar er að finna á www.lions.is
heimasíðu Lionshreyfingarinnar, þar er hægt að velja
Lionsklúbbinn Úa.
Kynningarfundur hjá Lionsklúbbnum Úu
lions lætur gott
af sér leiða
Úurnar halda að jafnaði
fund einu sinni í mánuði.
70 ára kvenfélag í Kjósinni
Kvenfélag Kjósarhrepps hélt upp á 70 ára afmæli
sitt sunnudaginn 14. mars í Félagsgarði. Athöfnin
hófst með að formaður félagsins Hulda Þorsteins
dóttir í Eilífsdal flutti ávarp þar
sem hún rakti sögu og starf
félagsins. Oddviti Kjósarhrepps
flutti ávarp og færði félaginu
að gjöf f.h. íbúa Kjósarhrepps
þrjú spjöld þar sem fram kemur
saga félagsins og starf þess í
máli og myndum. Verða spjöld
in fest á vegg í Ásgarði.
Af tilefni af afmælinu
færði félagið ungbarnavernd
Heilsugæslunnar í Mosfells
umdæmi heyrnmælingartæki,
sem er fyrsta sinnar tegundar
að verðmæti kr. 250 þúsund og
sjúkraþjálfunardeild Reykjalundar meðferðarbekk að
andvirði kr. 300 þúsund.
Þá gaf félagið Bókasafni Kjósarhrepps vélritaðar
fundargerðabækur félagsins frá upphafi en vélritun
þeirra er nýlokið af tilefni afmælisins. Fundargerða
bækur félagsins voru afhentar Kvennasögusafni
Íslands til varðveislu.
Uppábúnar kvenfélags-
konur í afmæli félagsins.
Hulda Þorsteinsdóttir
formaður kvenfélagsins.