Mosfellingur - 12.01.2007, Blaðsíða 4

Mosfellingur - 12.01.2007, Blaðsíða 4
Þakka samstarfi ð Til nemenda minna í 6. SHG Varmárskóla 2005-2006 og foreldra þeirra. Gleðilegt ár, takk fyrir ánægjulegt samstarf á liðn- um árum. Innilegt þakklæti fyrir hlýja jólakveðju og frábæra jólagjöf sem við Björgvin hlökkum til að nota. Þið eruð alveg einstök. Kveðja Sesselja. Mosfellingum fj ölgar ört Samkvæmt nýjustu tölum Hagstofu Íslands eru Mosfellingar nú orðnir 7.501. Íbúum hefur því fjölgað um tæplega 400 á einu ári. Á þessu ári er því líklegt að íbúafjöldinn fari vel yfi r 8.000. Jón Kalman hlýtur viðurkenningu Rithöfundurinn Jón Kalman Stefánsson hlaut hina árlegu viðurkenningu Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins nú á dögunum. Viðurkenningunni fylgdi 600.000 króna styrkur. Þá er bók Jóns, Sumarljós og svo kemur nóttin tilnefnd til bókmennta verðlauna Norðurlandaráðs 2007 en þau verða veitt í byrjun mars. Leituðu hjálpar í nærliggjandi hús Birgir brenndist á andliti en var í hönskum sem komu í veg fyrir bruna á höndum. Strákarnir tóku í sun dur tvær vítistertur og settu púðrið úr þeim í plastpoka. Síðan gerðu þeir gat á pokann og kveiktu í með skelfi legum afl eiðingum. Birgir segir að þeir félagarnir hafi ekki gert sér grein fyrir því hversu kraftmikil sprengjan myndi verða. Strax eftir sprenginguna leituðu drengirnir eftir hjálp í nærliggjandi húsum og stuttu síðar kom sjúkrabíll sem fl utti þá á slysadeild Reykjavíkur. Undraverður bati á húðinni Birgir Örn gisti í nokkra daga á Barnaspítala Hringsins ásamt öðrum drengnum en sá þriðji slapp það vel að ekki þurfti að leggja hann inn á spítala. Faðir Birgis, Birgir Haralds- son, segir að sár sonar síns hafi gróið hratt og undravert hversu fl jótt húðin er búin að jafna sig. „Það er alveg ótrúlegt að sjá muninn á síðustu dögum. Það er líka borið á húðina Móa jurtasmyrsli í tíma og ótíma og þetta smyrsli hefur reynst frábærlega við að græða sárin. Þá á starfsfólk spítalanna okkar hrós skilið fyrir vel unnin störf.” Birgir segir einnig að það sé ótrúlegt að allir drengirnir hafi sloppið við augnskaða. Víti til varnaðar Birgir Örn segist hafa lært mikið á þessari dýrkeyptu lexíu. Menn eigi ekki að fi kta við sprengjugerð því lítið þurfi til þess að illa fari. Það sé vonandi að fólk nýti sér lífsreynslu hans sem víti til varnaðar. „Ég mun aldrei gera neitt svona aftur á ævinni enda var sársaukinn ólýsanlegur”, sagði Birgir Örn við blaðamann Mosfellings. Of mörg slys af þessu tagi Á hverju ári verða alltaf slys af völd um fl ugelda. Það er afar nauðsynlegt að foreldrar brýni fyrir börnum sínum hversu hættulegt það getur verið að fi kta með eldfi m efni og fl ugelda. Menn hugsa alltaf að svona lagað geti ekki komið fyrir mann sjálf an heldur einungis aðra. Mikilvægast er að fræða ungmennin um virkni og skaðsemi þess að fi kta með fl ugelda. agust@mosfellingur.is Jólatrén í Hamra- hlíð bjarga jólunum Mikil eftir- spurn var fyrir jólatrjám fyrir jól- in. Svo mikil var hún að allsstaðar á höfuðborgar- svæðinu voru trén uppseld rétt fyrir jól, nema hjá Skógræktarfélagi Mosfells- bæjar. Mikið var því um fólk í Hamra hlíðinni á Þorláksmessu og aðfangadag og vonandi að sem fl estir hafi náð sér í jólatré. Formaður félagsins er Elísabet Kristjánsdóttir. Með ólíkindum að sleppa við augnskaða Birgir Örn Birgisson 14 ára varð fyrir skelfilegri lífsreynslu á gamlárskvöld Þrír ungir Mosfellingar fóru óvarlega með fl ugelda nú um áramótin. Birgir Örn Birgisson og tveir félagar hans, bjuggu til heimatilbúna sprengju sem þeir kveiktu svo í á gamlárskvöld. Sprengjan sprakk í höndum þeirra og allir slösuðust drengirnir en mismikið þó. Mosfellingur - Fréttir, bæjarmál og aðsendar greinar4 Eins og mörgum er kunnugt er Mosfellsbær þátttakandi í sameigin- legu þróunarverkefni Lýðheilsustöðv- ar og sveitarfélaga sem nefnist „Allt hefur áhrif einkum við sjálf“. Markmiðið með verkefninu er að bæta lífshætti barna og fjölskyldna þeirra með áherslu á hreyfi ngu, bætt mataræði og andlega vellíðan. Stofnaður var stýrihópur í Mos- fellsbæ árið 2005 sem síðan hefur unnið að markmiðssetningu og aðgerðaráætlun vegna verkefnisins. Bæjarstjórn Mosfellsbæjar sam- þykkti aðgerðaráætlun stýrihópsins á fundi sínum þann 1. nóvember síðastliðinn. Með því varð Mos- fellsbær fyrsta sveitarfélagið, af þeim tuttugu og fi mm sem taka þátt í verkefninu, til þess að samþykkja aðgerðaráætlunina. Í aðgerðaráætluninni eru lagðar til leiðir til þess að ná þeim markmiðum sem sett eru fram í áætluninni. Til þess að markmiðunum verði náð er nauðsynlegt að virkja til samstarfs ýmsa aðila í sveitarfélaginu svo sem grunn- og leikskóla, foreldrafélög, eldri borgara, atvinnurekendur og alla þá aðila sem koma að íþrótta- og tómstundastarfi í Mosfellsbæ. Lýðheilsustöð mun sjá um mat á verkefninu en stöðumat var tekið á árunum 2005-2006. Þá voru sendir út spurningalistar til skólastjórn- enda leik- og grunnskóla, barna og unglinga í 6., 8. og 10. bekk og til for- eldra 11-12 ára barna. Niðurstöður þessara kannana má nálgast á heima- síðu Lýðheilsustöðvar: www.lyd- heilsustod.is. Kannanir verða síðan endurteknar á árunum 2007-2010. Lýðheilsustöð mun einnig standa fyrir fræðslu í sveitarfélögunum fyrir starfsmenn stofnana, foreldra og nemendur. Stýrihópur verkefnisins mun á næstu dögum blása til sóknar og hefj a aðgerðir. Aðgerðaráætlunin verður send til allra aðila sem ætlunin er að virkja til samstarfs. Mikil áhersla verður því lögð á að ná góðu samstarfi við grunn- og leikskóla og alla þá sem koma að íþrótta- og tómstundastarfi í Mosfellsbæ. Aðgerðaráætlunina má lesa í heild á heimasíðu Mosfellsbæjar www.mos.is. Þar er hnappur fyrir verkefnið sem heitir: Allt hefur áhrif einkum við sjálf. Að lokum. Nokkur heilræði eftir jólin: Borðum ávexti og grænmeti Ávaxta- og grænmetisneysla Íslendinga hefur aukist talsvert á undan förnum árum en hún þarf samt að vera mun meiri til að upp- fylla ráðleggingar um hollt mataræði. Íslendingar borða að meðaltali aðeins tæplega helminginn af því sem ráðlagt er, sem er að minnsta kosti 500 g á dag eða 5 skammtar sem oft er talað um. Skammturinn getur verið meðalstór ávöxtur eða um 100 g af grænmeti. Munið 5 á dag! Stundum hreyfi ngu sem veitir okkur vellíðan, miðað við getu og áhuga • Fullorðnir hreyfi sig rösklega í minnst 30 mínútur daglega • Börn hreyfi sig rösklega í minnst 60 mínútur daglega • Markmið fyrir fullorðna er að ná minnst 10,000 skrefum yfi r daginn Fyrir hönd stýrihópsins Sólborg Alda Pétursdóttir verkefnisstjóri Samstíga náum við árangri

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.