Mosfellingur - 12.01.2007, Blaðsíða 7

Mosfellingur - 12.01.2007, Blaðsíða 7
ELDRI BORGARAR Stór og sterkur athafnamaður Hjalti „Úrsus” Árnason er Mosfellingur ársins Hjalti „Úrsus” Árnason er Mos- fellingur ársins 2006. Þetta er í ann- að sinn sem þessi heiðurstitill er veittur af bæjarblaðinu Mosfellingi en Sigsteinn Pálsson, fyrrverandi bóndi á Blikastöðum, hlaut titilinn fyrir ári síðan. Hjalti er einn mesti afreksmaður landsins í kraftlyftingum og hefur unnið til fjölda titla sem slíkur, bæði hérlendis sem og erlendis. Undan- farin ár hefur hann lagt metnað sinn í að skrásetja sögu eins þekktasta afl raunamanns Íslands, Jóns Páls Sigmarssonar. Mynd hans, sem ber heitið „Þetta er ekkert mál”, er mest sótta heimildamynd sem gerð hefur verið á Íslandi og er meðal annars tilnefnd til Edduverðlaunanna. Hátt í 12.000 manns hafa séð þessa heim- ildamynd sem hefur vakið mikla ath- ygli. Mikill áhugi er meðal erlendra kvikmyndargerðarmanna að fá hana sýnda. Sala myndarinnar hérlendis í formi DVD er þegar komin í gullsölu sem er ótvírætt merki þess að myndin hafi fallið í góðan jarðveg. „Það er von mín að minningin um Jón Pál, þennan frábæra félaga og vin, gleymist aldrei”, sagði Hjalti. Að lokum vildi Hjalti bæta við að sú nafnbót að vera Mos- fellingur ársins væri sannur heiður. Mosfellingur óskar Hjalta velfarn- aðar og til hamingju. Myndlistaskólinn í Reykjavík með útibú á Korpúlfsstöðum Fjölbreytt námskeið í boði Starfi ð felst í stuðningi við hreyfi hamlaðan dreng. Viðkomandi þarf að geta hafi ð störf hið fyrsta. Laun skv. kjarasamningi LN og Stamos. Upplýsingar gefa Jóhanna Magnúsdóttir, skólastjóri í síma 525-9200 eða 896-8230 og Sigríður Johnsen skólastjóri í síma 896-8210. Umsóknum skal skilað á skrifstofu skólans eða senda í tölvupósti á netföngin: johannam@lagafellsskoli.is eða sigridur@lagafellsskoli.is Mosfellsbær - Þverholti 2 - sími: 525 6700 - www.mos.is Starfsmaður óskast í 70-100% starf Nú um áramótin fengu for- eldrar og aðstandendur fi mm ára barna í Mosfellsbæ sent bréf frá bæjarstjórn. Innihald bréfsins hef ur vafalaust glatt við takendur en efni þess var að nú um ára mótin var fi mm ára deild leikskólanna í Mosfellsbæ gerð gjaldfrjáls. Bréfi ð var undirritað af Karli Tómassyni, forseta bæjarstjórnar, og Ragn- heiði Ríkharðsdóttur bæjarstjóra. Karl sagði þetta stór tímamót í bæjarfélaginu og það væri gaman að Mosfellsbær væri eitt fyrsta bæjarfélag landsins til að koma þessu mikla framfararskrefi í framkvæmd. „Þetta eru tímamót sem allir ættu að fagna” sagði Karl Tómasson. Gjaldfrjáls 5 ára deild um áramót MOSFELLINGUR Hjalti Árnason tekur við nafnbótinni Mosfellingur ársins úr höndum Hilmars Gunnarssonar ritstjóra Mosfellings. Með á myndinni er Brynja Hlíf dóttir Hjalta. ÁRSINS Forseti Íslands Hr. Ólafur Ragnar Gríms- son var meðal gesta á forsýningu heimil- damyndar Hjalta um Jón Pál. Á myndinni sýnir Hjalti forsetanum hvering steinatök fara fram. 7Fréttir, bæjarmál og aðsendar greinar - Mosfellingur Valdimar Léó sagði sig úr Samfylkingunni á dögunum en er ekki hættur í pólitík Hefur áhuga á Frjálslyndaflokknum Vinirnir Jón Páll og Hjalti að taka við verðlaunum úr höndum Mark Ten eftir sigur í heimsmeistarakeppni. Myndin er tekin í Montreal, Kanada árið 1986. Valdimar Leó stendur á tímamótum. Hættur í Sam- fylkingunni en ekki í pólitík.

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.