Mosfellingur - 12.01.2007, Síða 10

Mosfellingur - 12.01.2007, Síða 10
Í eldhúsinu hjá Unni ömmu hefur „brúna tertan” aldrei dottið úr fyrsta sæti vinsældarlistans hjá yngstu kynslóðinni. Þó börnin hafi stækkað og verið til í að prófa aðrar sortir, þá tóku ömmubörnin við og nú eru það langömmubörnin sem gera alltaf ráð fyrir að Unnur amma sé með „brúnu tertuna” nýbakaða á borðinu. Hér kemur uppskriftin af „brúnu tertunni” óbreytt frá árinu 1967. Svampterta 125 gr. smjörlíki 155 gr. sykur 3 egg 125 gr. hveiti 1 og ½ tsk. ger 1 msk. kakó 3 msk. heitt vatn Smjörlíki og sykri hrært saman í hrærivél. Bætið einu eggi út í í einu. Þar næst er hveiti, geri og kakói bætt við. Að endingu fer vatnið út í deigið. Setjið svo deigið í tvö form. Hitið ofninn í 150 gráður og bakið í um það bil korter. Krem 50 gr. smjörlíki 100 gr. fl órsykur 1 eggjarauða Vanilludropar. Brúna tertan hjá Unni Í eldhúsinu Kremið hrært saman og sett á milli tertubotnanna. Arna Dís Kristjánsdóttir og Gestur Baldursson eignuðust stúlkubarn 2. janúar Fyrsti Mosfellingur ársins 2007 kom í heiminn 2. janúar klukkan 17.04. Það var falleg stúlka og vóg hún 16 merkur og var 51 cm að lengd við fæðingu. Foreldrar hennar eru þau Arna Dís Kristjánsdóttir og Ges- tur Baldursson. Fæðingin gekk að vel að sögn Örnu og heilsast þeim mæðgum vel. Þe- gar að blaðamann Mosfellings bar að garði var nýbúið að ákveða nafn stúlkunnar og er það opinberað fyrst hér og nú í Mosfellingi að nafn hen- nar verður Maríana Mist. Fjölskyldan í Arnartanganum er nú fi mm manns en fyrir áttu þau Arna og Gestur tvær stúlkur, Birgittu Sunnu og Elísabetu Lilju. Á myndinni má sjá Elísabetu og Maríönu í faðmi foreldra sinna en Birgitta Sunna var að heiman. Mos- fellingur færði fjölskyldunni fallegan blómvönd frá Hlín í Blómahúsinu og óskar þeim velfarnaðar á komandi árum. Fyrsti Mosfellingur ársins 2007 Heyrst hefur... ...að World Class verði með líkamsræktarstöð í Lækjarhlíð ...að fótboltahetjan Gunni Borgþórs fari á kostum í nýjasta myndbandinu hjá strákunum í svörtum fötum, Paradís ...að Herdís og Elli séu komin heim frá Færeyjum, en hvað þau voru að gera þar veit enginn ...að miklar sprengingar hafi blossað úr áramótabrennunni og m.a. lúðrasveitin mátti fótum sínum fjör að launa ...að hægt sé að hækka og lækka botninn í innisundlauginni í Lækjarhlíð eftir þörfum ...að margir hafi komist í hann krappann fyrir jólin þegar ljóst var að ekki var hægt að kaupa hamborgarhrygginn hjá Geira í Nóatúni ...að flugeldasýningin á áramótabrennunni hafi verið næstum helmingi dýrari en á þrettándabrennunni ...að Njalli njálgur sé mjög vinsæll á leikskólum bæjarins þessa dagana ...að Feldurinn sé að deita ...að flestir Mosfellingar séu 42 ára gamlir samkvæmt nýjustu tölum ...að flestir fimleikaþjálfarar hjá Aftureldingu hafi sagt upp á dögunum og standi í stappi við stjórn deildarinnar ...að íþróttamenn Mosfellsbæjar æfi báðir utan bæjarins um þessar mundir ...að íbúar í Túnunum séu orðnir langþreyttir á truflaðri útvarpstíðni vegna Úlfarsfells ...að Sigga Gangó sé enn að ...að hestamenn séu flestir komnir með hrossin í hús ...að Erlingur hafi verið álfakóngur á þrettándanum í 100. skiptið ...að löggan komi til með að vera á göngu um bæinn á næstunni við löggæslu en það er liður í nýjum áherslum lögreglustjóra ...margur verði af aurum api Sendið okkur slúður... SMS í síma 694-6426 mosfellingur@mosfellingur.is Mosfellingur - Fréttir, bæjarmál og aðsendar greinar10 Strengdir þú áramótaheit? Ljósm. Ágúst

x

Mosfellingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.