Mosfellingur - 07.04.2006, Blaðsíða 17
TV
ÍF
A
R
A
R
TV
ÍFA
R
A
R
Hallur og Matti í Pöpunum
Unga fólkið - Mosfellingur 17
Jæja, nú eru bara páskarnir að
hvolfast yfi r okkur. Tími útsvefns,
páskaeggjaáts, tjaldbúða á Þjóðar-
bók hlöðunni og máltíða með fjöl-
skyldunni. Þetta er kærkominn tími
sem sérhver býður velkominn til að
brjóta upp önnina eða fyrrihluta
vinnuárs.
Tími til að henda sér
kannski niður brekkur
Skálafells eða valsa um
í Mickey Mouse bol og
söndölum á Flórída.
En gekk þetta ekki
út á eitthvað annað...?
Jú, alveg rétt! Jesús frels-
ari mannkynsins var kross-
festur og dó fyrir syndir mannanna
í þessu yndislega fríi! Þetta virðist
vera staðreynd sem ekki er mikið
talað um í vellystingum páskamat-
arins. Og kaldhæðnin í þessu öllu
sam an er líklega sú, að þetta er einn
syndugasti tími ársins. Öll börnin
að springa úr græðgi því þau fá ekki
nema bara tíu páskaegg númer 23
og foreldrar eru að reyna að ýta á
alla veika punkta yfi rmannanna til
þess að kreista út allt það frí sem
hægt er að kúga út.
Að sjálfsögðu ýki ég þar sem ég
er dóttir föður míns, en svona lítur
þetta út fyrir mér þegar ég fer að
skoða málið. Og ekki get ég sagt að
ég og mín fjölskylda séum eitthvað
betri. Það er ekki liðinn áratugur
síðan við héldum okkar fyrstu páska
hér í Mosfellsbæ, að pabbi greip í
pönn una góðu og kvöldinu var bara
eytt eins og hverju öðru föstudags-
kvöldi með búrger og movie! En
það var nú kannski af sökum
uppskriftaskorts hjá ein-
stæðum gömlum pabba.
Mér fi nnst þetta sýna
svo vel hvað Ísland er
ótrúlega trúlaust land
í heild sinni og hvernig
Íslendingar eru ekkert að taka
þessu of alvarlega. Sem að ég tel
reyndar mikinn kost því að mín trú
er sú að Jesús hafi nú verið hinn
snjallasti kall sem sagði þessar
fínu dæmisögur og breytti þessu í
yfi rnáttúrulegt dæmi til að grípa hug
og athygli fólks. Þar má nefna sögu
vel vaxna og fallega stjörnuparsins
Adams og Evu.
Og þessu trúði ég öllu saman
þar til að ég hóf menntaskólagöngu
mína og jarðfræði bættist við í fl óru
skólafaga og reyndist þá raunin sú
að við komum af illa lyktandi og
hárugum öpum. Sem kann að skýra
mína mjög svo ókvenlegu og hárugu
handleggi. Ég hugga mig á
því að svona hafi normið
verið fyrir aðeins nokkrum
miljónum ára.
Þess vegna hvet ég þig,
kæri Mosfellingur, til þess
að þetta verði árið sem þú
gluggar í Biblíuna á páska-
dagsmorgun í stað þess að
horfa á morgunsjónvarp
barnanna með páska-
egginu. Aldrei að vita
nema góð lífsspeki hrynji
framan í mann þar eins
og út úr páskaegginu. ;)
Syndugasti tími ársins
Verður hátíð í Mosfellsbæ? Ó, já!
Hverju erum við að fara fagna öðru
en að vera Mosfellingar? Við ætlum
öll að skunda niður í íþróttahús og
stiðja Slææarann og félaga í meist-
arafl okki í handbolta. Hátíðarhöldin
halda svo áfram um kvöldið þegar
dúettinn og gleðigjafarnir Hljómur
ætlar að halda
hlöðuball á Lax-
nesi.
Allir að
mæta
Leikurinn
á laugar dag-
inn er gríðarlega
mikilvægur fyrir hand-
boltann. Við erum að berjast
um að vera í efstu átta og til
þess að eiga möguleika þurfum
við að sigra KA sem eru
einu stigi á undan okkur í
deildinni. Djöfull ætla ég
að vinna á þessum KA-
mönnum. Ég get lofað
því að það verður barist
til síðasta blóðdropa hjá
báðum liðum og ég lofa
því einnig að ég mun
ekki fara frá þessum leik
án þess að fá blóð á tennurnar. Hvort
sem það verður mitt eigið eða ekki.
Frábært framtak
Svo um kvöldið ætlum við öll að
fara upp í Laxnes og
fagna sigrinum og
fagna því að vera
Mosfelling ar. Hilmar
Gunnarsson og
Ágúst Bernharðs-
son hafa einir síns
liðs haldið uppi því
litla og í raun eina
félagslífi sem
hefur verið
að fi nna í
þessum
bæ eftir
að hið
sáluga
Lókal
var lagt
til hvílu.
Það er nú
ekki oft
sem það
er eitthvað
að gerast en
þeir félagar hafa
reglulega skemmt
fólki á Draumakaffi og öðrum sam-
komum. Stemmningin sem fylgir
þeim leynir sér ekki og lætur engan
ósnortinn. Ég tek að ofan fyrir þeim.
Því án þeirra væri bara ekki neitt að
gerast í þessum blessaða bæ.
Lókal-kvöld í sumar?
Þótt að Hljómur sé að gera það
gott þá saknar Slææ samt Lókal-
kvöldanna góðu. Þau voru óborgan-
leg og var samstaða unga fólksins
aldrei meiri. Ég heiti því að gera allt
sem ég get til þess að halda eitt slíkt
kvöld í sumar. Til heiðurs Lókal-
blaðinu sem var tímamótablað, ekki
bara í Mosó heldur bara á landinu
öllu...! Þótt það sé ekki til lengur þá
fi nnst mér ekkert að því að heiðra
minningu þess og ég efast ekki um
að allir bæjarbúar taki því fagnandi.
Ég meina þarna fóru nú margir ungir
Mosfellingar í sinn fyrsta sleik.
En að lokum segi ég bara áfram
Afturelding, áfram Hljómur og áfram
sleikur á Lókal-kvöldi.
Ásgeir „Slææ" Jónsson
Vill eiga langan og góðan
laugardag með Mosfellingum
asgeir@mosfellingur.is
Kara T
V
ÍF
A
R
A
R
TV
ÍFA
R
A
R
Pepperone, sveppir
og piparostur
Óskum eftir hressu starfsfólki!
Umsóknareyðublöð á staðnum
12“ - 999 kr.
16“ - 1299 kr.
Pizza mánaðarins
Pisa
Vegna fjölda áskoranna hef ég
loksins ákveðið að taka fram pennan
og tjá mig lítillega. Eftir að hinir penn-
arnir hófu skrif í þetta ágæta blað uxu
vinsældir þeirra hjá kvenþjóðinni
upp úr öllu valdi. Maður hefur heyrt
sögur af þessum gaurum þar sem
þeir eru hundeltir af stelpunum og þá
sérstaklega góðvini mínum og hand-
boltatröllinu Geira Slæ. Hann þarf að
fara huldu höfði út í búð til að versla
mjólk fyrir mömmu sína, kannski
með fake yfi rvaraskegg eða eitthvað
slíkt og hann þarf ávallt að ,,láta á
silent” á næturnar til að fá svefnfrið.
Athygli frá gagnstæðu kyni er yfi rleitt
af hinu góða en svona crazybitch
athygli er TOO MUCH. Þess vegna hef
ég ákveðið að koma ekki fram undir
nafni en mun þess í stað ganga undir
listamannanafninu Pablo.
Nú er nóg komið af þessu bulli
og yfi r í aðra sálma og í umfjöllunar-
efni mitt í þessari grein en það eru
DRAMADROTTNINGAR. Stelpur eru
algjörar dramadrottningar, það er
hreinlega eins og þær lifi fyrir dramað.
Allstaðar þar sem ég kem í námunda
við þessar elskur verð ég ætíð var
við eitthvert drama, hvort sem ég er
stadd ur í skólanum, á djamm inu,
í vinn unni eða í MOSÓ. Það eru
kannski orðum aukið að dramað sé
að tröllríða þjóðfélaginu en það er alla-
vega eitt hvað til í því. Dramadrottn-
ingum hefur fjölgað mjög síðari ár
og nú fyrirfi nnast dramadrottningar
í hverju horni og kima. Ég spái mjög
mikið í mannfólkið og þá sérstaklega
kvens urnar og veit því hvað ég er að
segja. Mér sýnist dramað vera á háu
stigi hér í Mosó og í sumum tilvikum
má líkja þessum vágesti við andleg-
an kvilla sem þörf er á að ,,lækna”
hvernig sem það er nú gert.
Uppsprettan að öllu þessu drama
kemur úr imbakassanum. Eins og
ung lingar eru gríðalega móttækilegir
og fl jótir að tileinka sér hluti úr sjón-
varpinu eru drottningarnar jafn fl jótar
að tileinka sér allt dramaruslið sem
kemur þaðan. Þættir á borð við One
tree hill, afsprengdar eiginkonur og
sex in the city eru stórhættulegir fyrir
stelpur sem innihalda dramadrottn-
ingargen og eru þar með næmar
fyrir svona skít.
Ég veit ekki hvort að
stelpum fi nnist það eitt hvað
cool að vera dramadrottn-
ing eins og strákum fi nnst
töff að eiga fl ottan bíl eða
vera vel dressaður.
Kannski er það þann-
ig meðal stelpn-
anna, að sú sem er
mesta dramadrottn-
ingin hljóti mestu
virðinguna, maður
spyr sig? Sem
karlmaður getur
maður ekki sett sig
í fl ókinn hugarheim drottninganna
og því næstum tilgangslaust að vera
með svona vangaveltur. Sem áhorf-
andi að dramaheimi drottninganna
fi nnst mér þetta oft á tíðum forvitni-
legt og spennandi, hálfgert raunveru-
leika sjónvarp þar sem skiptist í með
skini og skúrum. Maður kannski velt-
ir því fyrir sér hvort að ,,Gunna eigi
eftir að hata Jóu líka á morgun, því að
gaurinn sem afmeyjaði Gunnu fyrir 8
árum síðan svaf hjá Jóu um síðustu
helgi. Ég spái því samt að Gunna eigi
eftir að fyrirgefa Jóu strax í kvöld með
tárum og knúsi”.
Ég vona að dramað sé bara ein-
hver bóla sem muni springa innan
skamms. Stelpur! Góðar ráðleggingar
frá Pablo ; þetta er ekki cool og ekki
ógeslega töff skiluru. Chillidi bara
og ekki hleypa öllu í háaloft útaf
ekki neinu og fyrst fremst ekki
baktala vinkonur ykkar sem
þið umgangist daglega. Hættið
þið þssu drama og verið ekki
fólkinu í kringum ykkur til
ama! Pablo kveður með
ást og virðingu í hjarta
sínu, tileinkað öllum
dramadrottningum í
Mosó. ARR.
# Cool, ógeslega töff
skiluru mikið notað í
heimi drottninganna
stolið frá karaktern um
Silvíu Nótt.
Dramadrottningar