Litli Bergþór - 01.12.2014, Page 3
Litli-Bergþór 3
Ritstjórnargrein
Umræða um heilbrigðismál er all nokkur um þessar mundir. Læknar hafa
farið í verkfallsaðgerðir til að knýja á um bætt kjör en einnig þykir þeim
aðbúnaði á Landspítala Háskólasjúkrahúsi ábótavant, bæði hvað varðar
húsnæði og tækjabúnað.
Þetta leiðir hugann að stöðu mála á okkar slóðum. Húsnæði fyrir
heilsugæslu er nýlegt og gott og annar aðbúnaður þar með ágætum. Ekki
hefur verið skortur á starfsfólki og því má segja að heilsugæslan sé í góðum
málum hvað þetta varðar. Álag á lækna hefur minnkað við að bráðaþjónustu
utan dagvinnutíma er að mestu sinnt á bráðadeildinni á Selfossi. Líkur eru
því á, að þessi þjónusta verði áfram í svipuðu horfi og verið hefur. Það var
einnig gott mál að félagsþjónustan fékk inni hjá heilsugæslunni en það skapar
tækifæri til að vinna saman að ýmsum málum sem snerta þesssi svið bæði
hvað varðar umönnun aldraðra í heimahúsum og barnavernd.
Það mál sem nú virðist brýnast er hjúkrunarvist aldraðra. Á
Blesastöðum eru fjögur hjúkrunarrými og átta vistrými fyrir rólfæra.
Engin önnur vistunarúrræði eru fyrir þennan hóp á þessu svæði. Eins
og flestum er kunnugt hafa þeir sem þurfa á þessari þjónustu að halda
orðið að fara annnað svo sem á Hellu eða Kumbaravog. Öll rök mæla með
því að sveitarfélögin hér á svæðinu ættu að vera fær um að reisa og
reka hjúkrunarheimili sem gæti annað þörf fyrir þessa þjónustu.
Þetta mál hefur lengi verið í umræðu og hafa margir svo sem
Lionsklúbbar og kvenfélög ályktað að nauðsynlegt sé að sinna þessu
sem fyrst. Ekki má láta gamlan hrepparíg spilla málinu né heldur
aðrar úrtöluraddir um smáatriði sem litlu skipta þegar á reynir. Þeir
sem hafa þurft að sjá sína nánustu flutta í önnur héruð hafa vitnað
um þessa reynslu og aðrir sem um það hugsa hljóta að sjá, að við
svo búið má ekki standa. Til eru rannsóknir sem sýna að umönnun
aldraðra er önnur ef þeir sem veita þjónustuna þekkja viðkomandi
frá því áður og minnast hans sem fullfrísks einstaklings.
Ekki er verra fyrir samfélagið að hjúkrunarheimili er nokkuð stór
vinnustaður og eykur á fjölbreytni atvinnulífs á svæðinu. Það er því ekki
annað að gera en vinda sér í málið og vinna að þessu hratt og örugglega.
PS
Ég er nú alveg
laus við allan
hrepparíg.