Litli Bergþór - 01.12.2014, Page 4
4 Litli-Bergþór
Facebook
Ritstjórn vill benda lesendum Litla-Bergþórs á Facebook síðu blaðsins. Gaman væri
ef fólk rifjaði upp gamlar sögur úr sveitinni - setti inn gamlar (og nýjar) myndir með
skýringum á við hvaða tilefni þær eru teknar og hverjir eru á þeim. Kannski verður
til grein í Litla-Bergþóri úr svona innleggi á síðuna.
Kveðja, ritstjórn Litla-Bergþórs.
Formannspistill
Í ár eru 35 ár liðin frá því að útgáfunefnd var kosin á
aðalfundi Ungmennafélags Biskupstungna til að koma
fréttum félagsins á framfæri. Fyrsta tölublað Litla –
Bergþórs kom út 5. mars 1980 og var það vélritað og
svo ljósritað. Í blaðinu sem var 14 blaðsíður mátti
finna auglýsingar frá Ungmennafélaginu, fréttir frá
HSK þingi, umsögn um félagsvist U.M.F Bisk og einnig
nokkrar skemmtilegar vísur eftir Jóhannes á Litla –
Fljóti og Björn í Úthlíð.
Frá þessu fyrsta tölublaði fór boltinn að rúlla. Þrjú
tölublöð voru gefin út árlega og blaðið stækkaði. Í
seinni tíð hefur blaðið verið gefið út tvisvar á ári vegna
aukins prentkostnaðar.
Litli – Bergþór er fyrir löngu orðið eitt helsta kennileiti sveitarinnar og hefur ritnefnd þess
fært sveitungum fréttir, fróðleik, viðtöl, úrslit íþróttamóta auk mynda sem hafa gert blaðið enn
veglegra.
Það var því mjög ánægjulegt þegar ritnefnd Litla – Bergþórs og Ungmennafélag
Biskupstungna fengu Menningarverðlaun Bláskógabyggðar árið 2014 fyrir 34 ára útgáfu
Litla – Bergþórs og bókina Ungmennafélag Biskupstungna 100 ára saga. Fyrir þessa
viðurkenningu færum við Menningarnefnd Bláskógabyggðar miklar þakkir.
Að auki langar mig að þakka þeim fjölmörgu aðilum sem komu að sveitahátíðinni „Tvær úr
Tungunum“ nú í sumar. Fjölmargir gestir lögðu leið sína í Reykholt þann 16. ágúst og tókst
hátíðin í alla staði mjög vel. Þessi hátíð er greinilega komin til að vera og vonast ég til að sjá
sem flesta þann 15. ágúst 2015.
Lesendum óska ég gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári og þakka fyrir gott og viðburðarríkt
ár.
Smári Þorsteinsson formaður Umf. Bisk.