Litli Bergþór - 01.12.2014, Blaðsíða 8
8 Litli-Bergþór
LAUGARÁS I 1949
Helgahús (í fasteignaskrá heitir íbúð-
arhúsið nú Laugarás 3)
Laugarásjörðin varð læknissetur 1923. Allt til 1946
voru læknarnir með búskap á jörðinni, sá síðasti var
Ólafur H. Einarsson, sem var læknir frá 1932 - 1946.
Núverandi íbúðarhús var byggt 1949.
1946 - 1970 Helgi Indriðason (f. 30.01. 1914, d.
20.01. 1995) og Guðný Aðalbjörg Guðmundsdóttir
(f. 02.04. 1913, d. 17.04. 1993) (Gauja). Þegar þau
fluttu í Laugarás og tóku við búskapnum bjuggu þau
í kjallara læknishússins, en þegar ljóst var að Knútur
læknir þurfti á honum að halda, byggði Helgi nýtt
íbúðarhús og þangað fluttu þau Guðný 1949.
Helgi var bróðir Guðmundar Indriðasonar á
Lindarbrekku, frá Ásatúni í Hrunamannahreppi.
Guðný var systir Jóns Vídalín Guðmundssonar
sem bjó á Sólveigarstöðum frá 1953 - 1967. Jónína
Jónsdóttir, síðar á Lindarbrekku, var í kaupavinnu hjá
Helga um það leyti sem húsið var byggt. Fjósið og
hlaðan sem nú standa, ásamt íbúðarhúsinu voru byggð
á tíma Helga og Gauju undir
lok 6. áratugarins.
Þau hjón eignuðust ekki
börn, en fóstursonur þeirra
var Birgir Stefánsson (f.11.07.
1948) og kjördóttir þeirra var
Gróa Kristín (f. 02.01. 1952).
Helgi og Gauja brugðu búi,
aðallega vegna heilsuleysis
Helga, en einnig vegna þess
að hefðbundinn búskapur
fór ekki sérlega vel með ört
fjölgandi garðyrkjubýlunum.
Búskapur með skepnur
lagðist af í Laugarási þegar
þau fluttu til Reykjavíkur.
Þar starfaði Helgi í nokkur ár
til viðbótar. Í sumarleyfum
dvaldi fjölskyldan oft í
sumarbústaðnum litla á
Sigurðarstöðum.
Íbúðarhúsið í Laugarási
hefur verð leigt ýmsum eða
fylgt embætti hitaveitustjóra
frá því búskapur lagðist af.
1970 - 1975 Sverrir Ragn-
arsson og Karitas S. Melstað
(sjá Ösp)
1975 - 1980 Pétur Guð-
mundsson og Svandís Ottós-
dóttir (sjá Austurbyggð
C/24). Pétur var ráðinn til
að vera umsjónarmaður með
hitaveitunni. Þau byggðu
sér hús þar sem kallað er
Austurbyggð C og fluttu
þangað.
1980 - 1990 Benedikt
Skúlason og Kristín Sig-Helgahús á tveimur tímum.
Helgi
Indriðason.
Guðný Aðalbjörg
Guðmundsdóttir.