Litli Bergþór - 01.12.2014, Síða 10
10 Litli-Bergþór
Molarnir er æskulýðsfélag kirkja í Skálholts-
prestakalli. Þær eru Torfastaðakirkja, Skálholts-
dómkirkja, Haukadalskirkja og Bræðratungukirkja,
Mosfellskirkja í Grímsnesi, Stóru-Borgarkirkja,
Búrfellskirkja, Miðdalskirkja, Úlfljótsvatnskirkja og
Þingvallarkirkja. Starfið er fyrir unglinga á aldrinum
13 – 16 ára, fædda ´98-‘01. Fundirnir eru haldnir
annan hvern mánudag í Skálholtsbúðum á milli kl.
20 og 22 og að sjálfsögðu eru allir velkomnir. Á
fundunum aðhafast krakkarnir ýmislegt og reynt er að
höfða til allra þegar kemur að dagskrá fundanna. Það
sem hefur verið á dagskrá hjá okkur í vetur eru meðal
annars hópleikir, spil, ljósmyndamaraþon, bíófundur
og þrautakeppni. Í molastarfinu nálgast unglingarnir
trúna með skemmtilegum og uppbyggilegum hætti.
Margir fundir eru framundan með fjölbreyttri og
skemmtilegri dagskrá.
Helgina 24. – 26. október fórum við saman á Landsmót
ÆSKÞ sem haldið var á Hvammstanga. Krakkarnir
söfnuðu sér að stórum hluta sjálfir fyrir mótinu með
fjáröflun sem haldin var í tengslum við mótið. Þar
komu saman krakkar frá æskulýðsfélögum um allt
land og í heildina voru þetta um 600 þátttakendur.
Molarnir kynntust krökkum frá hinum og þessum
landshlutum. Meðal annars sem var á dagskrá mótsins
voru kvöldvökur, grímuball, bænastundir, hópastarf,
kynfræðsla og hæfileikakeppni. Molarnir klæddu sig
upp sem bleiku slaufuna fyrir grímuballið og lögðu
mikinn metnað í búningana eins og sjá má á myndinni
hér til hliðar.
Þær Þórhildur Þórarinsdóttir og Sigríður K.
Halldórsdóttir tóku þátt í hæfileikakeppninni fyrir
Molana. Þær sungu lagið Tvær úr Tungunum, spiluðu
á hljóðfæri og stóðu sig eins og hetjur.
Molarnir fara í tvö ferðalög á ári. Fyrra ferðalagið er
Landsmótið sem er nýyfirstaðið. Staðsetning mótsins
breytist á hverju ári, og er það gert til þess að krakkarnir
fái að kynnast ýmsum stöðum á landinu t.a.m. verður
næsta landsmót haldið í Vestmannaeyjum. Seinna
æskulýðsmótið er Febrúarmótið. Febrúarmótið er
haldið árlega í Vatnaskógi og er það fyrir unglinga í
æskulýðsfélögum á höfuðborgarsvæðinu, á Selfossi
og í Skálholtsprestakalli.
Um starfið í ár sjá Konný Björg Jónasdóttir og Bríet
Inga Bjarnadóttir. Aðrir leiðtogar í Molunum eru Egill
Óli Helgason og Karen Lilja Loftsdóttir.
Molarnir æskulýðsfélag
Konný Björg Jónasdóttir
Þórhildur Lilja Þórarinsdóttir, Sölvi Freyr Jónasson,
Samúel Guðmundsson, Kristín Lilja Birgisdóttir, Þórdís
Elín Egilsdóttir, Sigríður K. Halldórsdóttir og Hjalti
Guðjónsson.
Aðalbjörg Elsa Sæland, Sverrir Örn Gunnarsson og
Alexander Óli Nóason.