Litli Bergþór - 01.12.2014, Side 16
16 Litli-Bergþór
Gulli og ég í Matador sem var vinsælt að spila á þess-
um tíma.
nálgaðist og aðrar kenndir fóru að bæra á sér, breyttist
þetta viðhorf eins og gengur og vandamálin varðandi
stelpurnar hrönnuðust upp, mishratt þó.
Fuglafélagið Örninn var okkar fyrsta nálgun í
félagsmálum og margar ljúfar minningar tengjast
þessu tímabili. Við héldum fundi, böggluðum saman
fundargerðum og bjuggum til félagsfána. Lengi átti ég
þennan fána sem var grænn með stórum klossuðum,
hvítum stöfum, FFÖ. Áhuginn var mikill og bý ég enn
að ýmsu sem við uppgötvuðum á þessum árum um
háttalag mismunandi fugla. Þetta var tilefni til ferða
út í náttúruna, niður að Tungufljóti, upp á Fellsfjall
o.fl. til að sjá sem flesta fugla. Eitthvað finnst mér
samt í minningunni að við höfum að hluta misskilið
tilgang félagsins,
því að á fundum
marseruðum við
stundum með fánann
fremstan á löngu
priki og hrópuðum
slagorð. Ég gæti best
trúað að ein móðirin,
Helga í Birkilundi,
hafi haft áhrif á þetta
háttalag enda ávallt
með eindæma frjóar
hugmyndir og sjóuð
í mótmælagöngum
allt fram á þennan
dag. Í Birkilundi
giltu aðrar reglur
en á flestum öðrum
heimilum. Þar
máttum við gera
ýmislegt sem ekki
leifðist heima hjá
okkur og var lítið
verið að letja okkur
ef ímyndunaraflið
fór á flug.
Þegar ég lít til
baka þá hefði ég ekki
viljað missa af einu
einasta augnabliki
þessara ára. Frelsið
og umhverfið höfðu
svo sannarlega áhrif
á okkur til lífstíðar.
Því fór það svo að
þrátt fyrir að hafa
meira eða minna
sótt framhaldsskóla
og vinnu utan
sveitarinnar á
árunum 1968 –
1976, þá toguðu
átthagarnir stöðugt
og að lokum flutti
ég aftur í Reykholt
í ársbyrjun 1977.