Litli Bergþór - 01.12.2014, Side 20
Skálholtshátíð var haldin dagana 19.-20. júlí. Í
tengslum við hana var gengin pílagrímsganga um
Hreppana í fótspor Daða Halldórssonar og Ragnheiðar
Brynjólfsdóttur. Gengið var frá Stóra-Núpskirkju
fyrsta daginn og endað í Skálholti á þriðja degi.
Kaffi Mika stækkaði húsakynni sín í júlí sl.
eftir að eigendur þess Bozena og Michal Jozefik
keyptu Bjarkarhól og er nú pláss fyrir 130 manns í
veitingasalnum.
Fyrsta skóflustungan var tekin að dælustöð fyrir
Bláskógaveitu í Reykholti þ. 6. ágúst. Selás – Bygg-
ingar ehf. sér um framkvæmdir.
Sveitahátíðin Tvær úr Tungunum var haldin laugar-
daginn 16. ágúst í heiðskýru en vindasömu veðri. Hún
var ágætlega sótt og voru þar hefðbundin atriði á borð
við Gröfuleikni þar sem keppt var m.a. í því að opna
bjórflöskur. Sigurvegari varð Grétar Már Grímsson en
í öðru sæti lenti Ólafur Þór Þórðarson og í því þriðja
Hinrik Laxdal. Nú keppti líka í fyrsta skipti kona,
Sandra Óska Grímsdóttir, og veitti körlunum verðuga
keppni.
Umhverfisverðlaun Bláskógabyggðar voru
veitt Herði Bergsteinssyni og Elínu Bachmann
Haraldsdóttur, Ey á Laugarvatni, fyrir snyrtilegasta
heimilisgarðinn. Verðlaun fyrir snyrtilegasta
fyrirtækið hlutu Hildur Ósk Sigurðardóttir og Helgi
Jakobsson fyrir garðyrkjustöðina Gufuhlíð. Einnig
fengu Ragnheiður Jónasdóttir, Böðvar Þór Unnarsson
og Jónas Unnarsson sérstök hvatningarverðlaun fyrir
að hafa lyft grettistaki við fegrun lóðar Ljósalands í
Laugarási. HSK var með héraðsmót í starfsíþróttum á
sviði Aratungu þar sem keppt var í jurtagreiningu og
fuglagreiningu.
Kvenfélagið var með markað og kaffisölu ásamt
tombólu. Bjössi bolla mætti til að skemmta yngri
kynslóðinni en um kvöldið héldu Laddi, Eyjólfur
Kristjánsson, Þuríður Sigurðardóttir og Hljómsveit
Geirmundar Valtýssonar uppi fjörinu.
Landgræðsludagurinn var haldinn hátíðlegur 22.
ágúst. Farin var kynnisferð um Biskupstungnaafrétt
og Haukadalsskóg. Að lokum afhenti umhverfis-
og auðlindaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson,
Frá afhendingu
Umhverfisverð-
launa Bláskóga-
byggðar.
20 Litli-Bergþór
Veður seinnipart ársins einkenndist af mikilli úrkomu
í sumar og haust. Vorið var milt og gott gróðrarveður
frá apríllokum til enda júní. Þá fengu bændur stuttan
þurrk, en eftir það endurtók sagan sig frá í fyrra og var
fátt um þurrkdaga fyrr en í lok júlí. Þá birtist sólin loks
og langþráður þurrkur. Í ágúst voru þó nokkrir fallegir
sumardagar, en í lok ágúst fór aftur að
rigna og rigndi mikið í fjallvikunni.
Móðan frá eldgosinu, sem hófst í
Holuhrauni í lok ágúst, fór að gera
vart við sig þegar vindur var lítill eða
norðlægur. Haustið varð rigningarsamt,
svo garðyrkjubændur og kornbændur áttu
í vandræðum með að ná uppskeru sinni
sökum bleytu í ökrum. Í lok september fór að
kólna og hélt áfram að rigna eða slydda, þar
til viku af október, að loks gerði norðanátt
og nokkrar frostnætur. Hiti var um og undir
frostmarki seinnipart október og í byrjun
nóvember og úrkomulítið, en gosmóðuskýin
svifu að og frá og ollu mörgum óþægindum.
Eindæma hlýindi gerði svo í nóvember, og
fór hiti í 10-12°C dag eftir dag út mánuðinn.
Sá kafli endaði með óveðri, sem gekk yfir
landið 30. Nóvember. Desember heilsaði síðan með
snjókomu og þó nokkru frosti.
Elínborg Sigurðardóttir var kjörin formaður Kven-
félagasambands Suðurlands, SSK, á aðalfundi þess í
vor.
Helgi Sveinbjörnsson hélt ljósmyndasýningu í Hús-
dýragarðinum í Slakka í tilefni af 20 ára afmælinu.
Strandblakvöllur UMFL var vígður á Laugarvatni 4.
júlí eftir sjálfboðavinnu félagsmanna en sveitarfélagið
styrkti kostnað við völlinn.
Byggðaráð samþykkti 25. júlí að koma upp æfingasal
í gamla útibúi Landsbankans í Íþróttamiðstöðinni í
Reykholti. Kostnaður við verkið er áætlaður rúmlega
2,4 milljónir króna.
Samkór uppsveita Árnessýslu hélt í ferðalag á
Íslendingaslóðir í Kanada 31. júlí undir stjórn
Jóns Bjarnasonar organista. Kórinn sem samanstóð
af félögum úr fjórum uppsveitakórum, þ.a.m.
Skálholtskórnum, gerði víðreist um íslendingaslóðir
og söng fyrir Vestur-Íslendinga og fleiri gesti.
Nýr keppnisvöllur Hestamannafélagsins Trausta,
sem er austan við Laugarvatnsþorpið, var vígður 1.
ágúst. Félagsmenn hestamannafélagsins unnu við
framkvæmdina í sjálfboðavinnu og hlaut völlurinn
nafnið Þorkelsvöllur til heiðurs minningu Þorkels
Bjarnasonar.
Hvað segirðu til?
Móða? Puh -
hvað er þingeyskt
óloft að gera á Suður-
landi?