Litli Bergþór - 01.12.2014, Page 21
Litli-Bergþór 21
Gleðileg jól
og farsælt komandi ár
upplýsingar og borðApantanir í 486 1110 eða 896 6450
Þorfinni Þórarinssyni Spóastöðum og Eiríki Jónssyni
Gígjarhólskoti Landgræðsluverðlaunin 2014 fyrir
starf sitt að landgræðslumálum.
Strákarnir Gretar Bildsfells Guðmundsson,
Gústaf Sæland og Sölvi Freyr Jónasson urðu
Íslandsmeistarar í fótbolta 7 manna liða í 4. flokki
með Umf. Hrunamanna eftir útslitamót á Dalvík 23.
ágúst. Liðið vann alla sína leiki á mótinu og endaði
með markahlutfallið 18-1.
Hestamessa var haldin í Skálholti 24. ágúst. Hópreið
fór frá Reykholti til messunnar og að henni lokinni
bauð Hestamannafélagið Logi til messukaffis í
Skálholtsskóla.
Menningarganga var gengin um gamla Kóngs-
veginn 28. ágúst undir leiðsögn Geirþrúðar
Sighvatsdóttur á Miðhúsum og Bjargar Ingvarsdóttur
í Efstadal. Hátt í 50 manns gengu í blíðskaparveðri
frá Miðhúsum að Efstadal, þar sem göngumönnum
gafst kostur á að gæða sér á heimagerðum ís á
veitingastaðnum við fjósið.
Sigurjón Árnason, félagsráðgjafi, var ráðinn til
Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings 1. september
og verður hann með aðsetur á Heilsugæslustöðinni
í Laugarási þar sem hann þjónar uppsveitum og
Flóanum. Mun Sigurjón sinna félagslegri ráðgjöf,
barnavernd og fjárhagsaðstoð.
Nýir starfsmenn hafa verið ráðnir til sveitarfélagsins.
Pálmi Kragh var ráðinn til starfa sem húsvörður í
Aratungu frá og með 1. september, Elfa Birkisdóttir
var ráðin leikskólastjóri í Álfaborg, Steinunn Lilja
Heiðarsdóttir matráður í Aratungu og Kristín Ólafs-
dóttir henni til aðstoðar frá sama tíma.
Uppsveitahringurinn var haldinn 6. september
um leið og Hrunamenn héldu Uppskeruhátíð sína á
Flúðum. Hlaupnir og hjólaðir voru 10 km auk þess
sem hjólað var bæði í skemmtiflokki og keppnisflokki
46 km vegalengd.
Oddný Kr. Jósefsdóttir á Brautarhóli varð 60 ára
sunnudaginn 7. september og tók hún við kossum og
knúsum í Bjarnabúð þann dag og gaf fólki kaffi og
kökur í staðinn.
Anna Rósa Róbertsdóttir, ættuð frá Brún, hefur verið
ráðin sem söguritari hjá Vörubílstjórafélaginu
Mjölni til að skrifa sögu félagsins. Félagið er 73 ára
gamalt og hefur faðir Önnu Rósu, Róbert Róbertsson
frá Brún gegnt starfi framkvæmdastjóra félagsins
síðastliðin 20 ár, en hann gekk í félagið 1953. Róbert
verður níræður á þessu ári.
Tungnaréttir voru haldnar laugardaginn 13. septem-
ber og hófust kl. 9 um morguninn eins og venja er til.
Var safnið hátt í sex þúsund kindur og búið að draga
í sundur um kl 11.30. Tók þá við söngur og gleði