Litli Bergþór - 01.12.2014, Qupperneq 22
22 Litli-Bergþór
að vanda í góða veðrinu. Um kvöldið var réttaball í
Aratungu þar sem hljómsveitin Góðir Landsmenn
spiluðu fyrir dansi.
Samkvæmt Magnúsi Kristinssyni í Austurhlíð
heimtust 184 kindur í Eftirsafni þann 28. September, og
eftir það hafa heimst 42 kindur, þar af 5 aðkomukindur,
í mörgum ferðum fjárbænda inn á afréttinn.
Magnús í Austurhlíð sá um refaveiðar ásamt sonum
sínum í ár eins og undanfarin ár. Náðust 63 dýr á
14 genjum og voru grenin öll í byggð. Þar af voru
23 fullorðin grendýr, 7 hlaupadýr og 33 yrðlingar.
Eina dýrið sem vannst á afréttinum var stök læða
á Siggu-greni við Lambafellsver. Gamalt og gelt
hlaupadýr. Athygli vakti mikið safn af hálfétnum
og óétnum gæsarungum í greninu þótt engir væru
yrðlingarnir. Er þetta í fyrsta skipti sem ekkert finnst
í þekktum grenjum á afréttinum, frá efstu bæjum
að Svartárbotnum. Reyndar fannst síðar nýtt gren í
Miðveri austan Bláfells, af Eftirsafnsmönnum.
Ferjuslys við Iðu var rifjað upp á menningargöngu
þ. 18. sept. um sögusvið þess undir leiðsögn Skúla
Sæland. Sagt var frá andláti Runólfs Bjarnasonar
ferjumanns á Iðu og afdrifum fjölskyldu hans, en þann
18. september voru liðin 111 ár frá slysinu.
Átthagafræðinámskeið á vegum Bláskógabyggðar,
Grímsnes- og Grafningshrepps og Fræðslunets Suður-
lands um sögu og menningu þessara sveita, var haldið
dagana 25. september til 16. október. Fyrirlesarar voru
Bjarni Harðarson, Einar Á. Sæmundsen, Guðfinna
Ragnarsdóttir, Gunnar Karlsson, Jón M. Ívarsson,
Margrét Hallmundsdóttir, Margrét Sveinbjörnsdóttir
og Þorsteinn Tryggvi Másson. Alls voru 17 manns
skráðir til þátttöku.
Aðalfundur Björgunarsveitar Biskupstungna var
haldinn 22. september. Andrés Bjarnason formaður
gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Ný stjórn var kjörin:
Kristinn Bjarnason Brautarhóli formaður, Szymon
Maslak Laugarási, Heiða Pálrún Espiflöt, Ágústa
Sigurðardóttir Reykholti, S. Pétur Guðmundsson
Reykholti og Ingvi Þorfinnsson Spóastöðum.
Lýður Árnason læknir var ráðinn að Heilsu-
gæslustöðinni í Laugarási á haustdögum og tók til starfa
1. október. Á sama tíma minnkuðu læknarnir Pétur
Skarphéðinsson og Gylfi Haraldsson starfshlutfall sitt
í hálfa stöðu.
Ekki er þó síður fréttnæmt, að læknarnir Pétur og Gylfi
hafa nú þjónað íbúum Uppsveitanna í rúmlega 30
ár, Pétur hóf störf 1. júlí 1983 og Gylfi 5. október 1984.
Hefur það verið mikið lán okkar íbúanna að hafa slíka
öndvegislækna hér í læknishéraðinu eins lengi og raun
ber vitni. Vonandi fáum við að njóta starfskrafta þeirra
áfram sem lengst.
Uppskeruhátíð æskulýðsnefndar Loga var haldin í
Flúðahöllinni 9. október. Viðurkenningar voru afhent-
ar til þeirra er tóku þátt í reiðnámskeiðum og keppnum
auk þess sem Feykisskjöldurinn var afhentur. Var það
Sölvi Freyr Jónasson sem hlaut skjöldinn að þessu
sinni.
Íbúar uppsveitanna fengu óvænt tilkynningu í
farsíma sína 10. október frá almannavörnum þar sem
loftmengun fór yfir hættumörk vegna eldgossins í
Holuhrauni. Voru íbúar hvattir til þess að halda kyrru
fyrir innan dyra, loka gluggum og kynda upp hitann.
Tungnahjónin Elín Gunnlaugs-
dóttir og Bjarni Harðarson
héldu hátíðlega upp á átta
ára afmæli Bókakaffisins á
Selfossi 11. október og við
það tækifæri var formlega
tekið í notkun stækkað svæði
verslunarinnar, sem nú býður einnig
upp á ritföng og gjafavöru. Umsvif
þeirra aukast stöðugt og fyrir
þessi jól gefa þau út 15 bækur um
margvísleg málefni.
Á meðal jólabóka Bjarna og Elínar er
bókin Jólasaga úr Ingólfsfjalli eftir
Maríu Siggadóttur sem er myndskreytt
af Ellisif M. Bjarnadóttur í Laugarási.
Barnastarf hófst í Skálholtsdómkirkju
laugardaginn 11. október á vegum
prestakallsins. Samverustundir þessar
verða framvegis kl. 11 á laugardögum og
verða í umsjá Bergþóru Ragnarsdóttur
djáknanema og Jóns Bjarnasonar organista.
Skálholtsfélag hið nýja boðaði til opins fundar um
stöðu og horfur í Skálholti 13. október í Skálholtsskóla.
Framsögumenn voru Jón Sigurðsson, formaður
félagsins, og Kristján Valur Ingólfsson, vígslubiskup.
Rúmlega 20 manns sóttu fundinn og voru umræður
mjög opinskáar. Komu fram miklar áhyggjur
fundarmanna um fyrirhugaðar breytingar á rekstri
staðarins í þá veru að efla hann sem ferðaþjónustustað
á kostnað kirkjulegrar starfsemi.
Safnahelgi var haldin með glæsibrag fyrstu helgina
í nóvember. Á meðal viðburða var safnarasýning
Upplits í Héraðsskólanum á Laugarvatni sem var
ágætlega sótt.
Já – hann
Magnús. Sá hann
heima á Bláfellshálsi um
daginn að telja kindur.
Guðrún
Einarsdóttir
Laugarvatni
sýnir gesti
sýningarinnar
glæsilegt
uglusafn sitt.