Litli Bergþór - 01.12.2014, Page 23
Litli-Bergþór 23
Stjórn Límtrés-Vírnets er með í athugun að færa
yleiningarverksmiðjuna í Reykholti að Flúðum eða
í Borgarnes. Ástæðuna segja stjórnendur vera úreltan
búnað í verksmiðjunni.
Ferðamálaráð uppsveitanna hefur verð stofnað
Ásborgu Arnþórsdóttur til halds og trausts. Í
ráðinu verður einn fulltrúi frá hverju hinna fjögurra
sveitarfélaga í uppsveitunum.
Jón Bjarnason, Smári Þorsteinsson, Steinn Daði
Gíslason og fleiri héldu” héldu tónleika í fimm kirkjum
í október undir heitinu Orgelið rokkar. Þeir voru vel
sóttir og töluverð ánægja með þá. Voru aukatónleikar
því haldnir í Skálholti 17. nóvember.
Menntaskólinn að Laugarvatni hélt kynningardag
fimmtudaginn 6. nóvember fyrir grunnskólanemendur
og um kvöldið var haldin söngkeppni skólans, Blítt og
létt. Troðfullt var í íþróttahúsinu þar sem Elías Hlynur
Hauksson, Aron Ýmir Antonsson og Viðar Janus
Helgason unnu með laginu No diggity með Blackstreet.
Dómnefnd skipuðu Aðalheiður Helgadóttir, Karl
Hallgrímsson og Heimir Eyvindarson.
Ásborg Arnþórsdóttir ferðamálafulltrúi var heiðr-
uð á uppskeruhátíð Markaðsstofu Suðurlands 7.
nóvember með viðurkenningu fyrir ötult starf í þágu
ferðaþjónustu á Suðurlandi.
Minningarstund var haldin um Jón Arason og
syni hans í Skálholti 7. nóvember og blysför gengin
að minnisvarðanum um þá feðga þrátt fyrir óhagstæð
veðurskilyrði.
Lionsmenn buðu upp á blóðsykurmælingar í
Bjarnabúð helgina 15.-16. nóvember.
Það vakti athygli blaðamanns Sunnlenska að
fjórir bræður úr Tungunum syngja í Karlakór
Hreppamanna, þeir Egill, Eyvindur, Ólafur og
Þorvaldur Jónassynir frá Kjóastöðum.
Bjarni Harðarson rithöfundur og bóksali gaf út í
nóvember bókina „Króníka úr Biskupstungum“
sem fjallar um ættir og örlög Tungnamanna.
Kvenfélag Biskupstungna stóð fyrir jólamarkaði í
Aratungu laugardaginn 22. nóvember.
Hörður V. Sigurðsson og Ingibjörg Bjarnadóttir,
fyrrum garðyrkjubændur í Lyngási í Laugarási, voru
heiðruð á haustsamkomu Sambands garðyrkjubænda
á Flúðum 22. nóvember fyrir langt og farsælt starf í
þágu greinarinnar.
Skilti til heiðurs Ólafi Ketilssyni sérleyfishafa var
rænt af Ólafstorgi við suðurinnkeyrsluna á Laug-
arvatni um líkt leyti og spellvirki voru framin á
jólaskreytingum á svæðinu. Lögreglan auglýsti eftir
vitnum en blár bíll er talinn tengjast verknuðunum.
Athygli vakti hjá fjölmiðlum þegar sex heljarmenni
í Laugardalnum fóru til hefðbundins sunds í
Laugarvatni þrátt fyrir hráslaglegt vetrarveður
miðvikudaginn 10. desember.
Bjarni Harðarson bókaútgefandi mætti til bóka-
upplesturs í Café Mika föstudagskvöldið 12.
desember ásamt fríðu föruneyti. Las hann úr bók sinni
Króniku úr Biskupstungum ásamt höfundunum Maríu
Siggadóttur, Heiðrúnu Ólafsdóttur, Bjarka Bjarnasyni
og Þórði Helgasyni.
Andlát
Ingibjörg Vilhelmína Guðmundsdóttir á Spóa-
stöðum lést 13. janúar 2014. Útför hennar fór fram
frá Skálholtskirkju þann 18. janúar 2014 og var hún
jarðsett í Skálholtskirkjugarði.
Sigríður Stefánsdóttir í Bræðratungu lést 16. júlí
2014. Útför Sigríðar var gerð 25. júlí 2014 frá Skálholti
en hún var jarðsett í Bræðratungukirkjugarði.
Þuríður Sigurðardóttir í Reykholti lést 18. júlí 2014.
Útför hennar var gerð frá Skálholti 26. júlí 2014 og var
hún jarðsett í Haukadalskirkjugarði.
Skúli Magnússon frá Hveratúni lést 5. ágúst 2014.
Útför hans fór fram 15. ágúst 2014 og var hann
jarðsettur í Skálholtskirkjugarði.
Sveinn A. Sæland formaður SG veitir Ingibjörgu og
Herði viðurkenningu fyrir störf sín.