Litli Bergþór - 01.12.2014, Side 24
24 Litli-Bergþór
Hverjum hefði dottið í hug fyrir um 40 árum, þegar
fyrstu dagsferðir með eldri borgara í Biskupstungum
voru farnar með kaffi í brúsa og brauð og kleinur
í kassa, að við ættum eftir að upplifa annað eins
lúxusferðalag sem að okkur var boðið í á síðasta
hausti.
Ferð um Suðurstrandarveg til Grindavíkur með
kaffiveitingum í Salthúsinu, staðurinn skoðaður
með frábærum leiðsögumanni Alla í Netastöðinni.
Síðan sem leið lá heim, komið við á Hótel Selfossi,
boðið þar upp á þriggja rétta máltíð. Dagur og kvöld
allt stórfenglegt.
Kveðja til Kvenfélags Biskupstungna
frá Félagi eldri borgara
Fararskjótinn sem flutti ferðafélagana í Kvenfélagi Biskupstungna og Félagi eldri borgara. Fyrir framan rútuna
standa frá vinstri talið: Jóhann Vilbergsson frá Felli, Víglundur Þorsteinsson í Höfða, Sigurlaug Jónsdóttir Reykholti,
Bjarni Sveinsson á Helgastöðum, Alli leiðsögumaður.
Alli í Netastöðinni sem leiðsagði um svæðið á tali við
Börk Ólafsson Ketilssonar bílstjóra.
Gengið í Kvikuna þar sem Saltfisksetrið og Guðbergs-
stofa eru til húsa ásamt fleiri sýningum.
Kærar þakkir til Kvenfélagsins fyrir höfðinglegt
boð og Bláskógabyggð fær kærar þakkir fyrir að
leggja til fararskjótann.
Með bestu kveðjum frá Félagi eldri borgara í
Biskupstungum.
Fríður Pétursdóttir.
Fríður Pétursdóttir