Litli Bergþór - 01.12.2014, Page 26

Litli Bergþór - 01.12.2014, Page 26
26 Litli-Bergþór Í lok ágúst sl. gekk rúmlega 40 manna hópur eftir gamla Kóngsveginum frá Miðhúsum í Biskupstung- um að Efstadal í Laugardal. Gangan var auglýst á vegum Menningarmálanefndar Bláskógabyggðar og til leiðsagnar voru Björg Ingvarsdóttir í Efstadal og Geirþrúður Sighvatsdóttir á Miðhúsum. Gengið var sem leið lá upp á Kóngsveginn fyrir ofan tún á Miðhúsum, í gegnum gönguhlið við Miðhúsatjarnir yfir í Brekkuland, að Brúarfossi. Stikla þarf yfir Fremri-Vallá á leiðinni, en þeir sem ekki treystu sér til þess tóku krók niður á göngubrúna fyrir ofan sumarhúsahverfið í Brekku. Vestan Brúarár var gengið í landi Efstadals. Fyrst var gengið eftir moldargötum í þéttum birkiskógi, stiklað yfir Hagalæk á trjábolum og endað í veitingahúsinu við fjósið í Efstadal, þar sem göngumóðir gátu keypt sér ís og aðrar veitingar. Tók gangan um 3 tíma með öllum stoppum, í góðu og fallegu veðri. Ekki er mikið eftir ósnortið af upprunalega Kóngsveginum á þessari leið, en fram yfir 1950 var þetta þó eina ökufæra leiðin úr Biskupstungum yfir í Laugardal og bílfær, þótt ekki þætti hann góður bílvegur. Þurfti þá að aka yfir gömlu Brúarárbrúna frá 1901, og var í síðasta blaði Litla-Bergþórs lýsing Kristrúnar Sigurfinnsdóttur í Efstadal á því, þegar þau Vilmundur fluttu frá Bergsstöðum að Efstadal og Vilmundur keyrði herjeppa, sem hann hafði keypt nokkrum dögum áður, yfir brúna. Það var 1947. Einn ferðafélagi okkar í göngunni í haust var Baldur Þór Þorvaldsson verkfræðingur, sem nýhættur er störfum hjá Brúardeild Vegagerðarinnar í Reykjavík. Hann er hafstjór af þekkingu á sögu vegarins og brúarinnar yfir Brúará og fékk undirrituð hann til að senda okkur efni um það til birtingar í Litla- Bergþóri. Sendi hann m.a. blaðaúrklippu úr blaðinu Ísafold frá 24. júlí 1901, 28. árg. þar sem segir frá Kóngsvegurinn og brúin yfir Brúará Brúarfoss.

x

Litli Bergþór

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.