Litli Bergþór - 01.12.2014, Side 29

Litli Bergþór - 01.12.2014, Side 29
Litli-Bergþór 29 Lagning Kóngsvegarins reyndi á þolgæði og útsjónarsemi vegagerðar-manna sem unnu verk sitt með handverkfærum og hestvögnum við frumstæð skilyrði og eins þurfti að seilast djúpt í landssjóðinn. Er Kóngsvegurinn sennilega dýrasti vegur, sem lagður hefur verið á Íslandi, ef miðað er við hlutfall af útgjöldum landssjóðs, en hann kostaði um 14% af útgjöldum ríkisins það ár. Brúin frá 1901 var trébrú í þeim stíl, sem tíðkaðist á þeim tíma, þ.e. einhvers konar sperrubrú, eins og Baldur Þór segir í bréfi sínu til Gísla Sigurðssonar. „Í þeim voru lóðréttir teinar upp í sperruna og boltar til samtengingar trjáa. Einnig hef ég séð járnlaska þar sem stórir átaka- og samtengingarhlutar voru. Annað stál í timburbrúm er mér ekki kunnugt um. Mér þykir ósennilegt að súlur hafi verið undir brúnni í upphafi, heldur hafi það verið redding til að hægt væri að nota hana á bílaöldinni“ segir Baldur. Björn Sigurðsson í Úthlíð staðfestir það. Hann segir að á stríðsárunum hafi breski herinn notað brúna. Þeir fóru yfir hana á 10 hjóla trukkum þegar síminn var lagður í kringum 1943 og settu þá staura undir brúna til að styrkja hana og tóku handriðið af. Símastrengurinn lá ofaná jörðinni, nema í gegnum heimreiðar var hann grafinn niður. Höfðu kýrnar sérstakt yndi af því að naga strenginn og þurfti mikið að gera við! Gísli bróðir hans segir einnig frá því (í Mbl. 25/3 2007) þegar hann var „sendur með skóflu og járnkarl til þess að gera Ólafi Ketilssyni, bílstjóra á Laugarvatni, fært að komast Kóngsveginn síðla maímánaðar 1944 alla leið út að Úhlíð til þess að flytja fólk til kirkju að Torfastöðum, því drengurinn átti að fermast. Þetta samgönguleysi við Hlíðabæina breyttist ekki fyrr en um 1960“, þegar þjóðvegurinn var lagður frá Laugarvatni að Geysi og Brúará og Fullsæll brúuð, sú fyrrnefnda 1961 og hin 1962. Brúin yfir Brúará „gegndi hlutverki sínu nokkurn veginn fram til 1950, en þá höfðu bæði gólf brúarinnar og burðarvirki fúnað þótt árlega væri reynt að berja í brestina með nýjum stoðum og stífum“, vitnar Baldur í bréf Gísla Sigurðssonar frá Úthlíð. Eins og þessar tilvitnanir sýna voru timburbrýrnar erfiðar í viðhaldi og allsendis ófullnægjandi á bílaöld, enda ekki hannaðar fyrir bílaumferð. Brúin var þó áfram notuð fyrir hestaferðir og gangandi fólk. En árið 1960 varð hörmulegt slys, þegar skoski hestamaðurinn og dýralæknirinn Stuart McIntosh drukknaði í ánni ásamt hesti sínum, er hann var þar á ferð með hóp skáta. Leist honum ekki á að fara með hestana yfir brúna og ákvað því að ríða ofan við fossinn, en lenti þá í gjánni. Eftir það var brúin rifin, árið 1961, sama ár og ný brú var byggð á ána við Efri-Reyki, enda orðin hættuleg yfirferðar. Var brúarlaust á Steinbogagljúfri frá 1961 til 1966 að ný stálbitabrú var byggð yfir Brúará við Brúarfoss. Brúin 1966 Núverandi brú er reið- og göngubrú gerð úr stálbitum, 14 m á lengd. Þá brú byggði Haukur Karlsson brúasmiður árið 1966 (samkvæmt gögnum Vegagerðarinnar) og yfir þá brú hefur enginn kóngur riðið það vitað sé þótt merkt sé sem Kóngsbrú við göngustíg frá Brekkuskógi! Til er bréf frá Þorkeli Bjarnasyni á Laugarvatni til landbúnaðarráðherra árið 1962, þar sem hann fer fram á það, að ný brú verði byggð á Brúará á hinni gömlu leið milli Laugarvatns og Geysis, sem yrði aðeins fyrir ríðandi menn. En þá var nýja Brúarárbrúin við Efri- Reyki nýbyggð. Í bréfinu segir Þorkell m.a.: „Gamla brúin á Brúará hefur verið felld. Nú eru það eindregin tilmæli, ég mæli fyrir munn fjölmargra ferða- og hestamanna, að þér látið hrinda því verki í framkvæmd, að ný brú verði byggð á hinni gömlu leið, sem yrði aðeins fyrir ríðandi menn. Sú brú gæti þá orðið mun ódýrari. Stöplarnir gömlu eru steinsteyptir og ættu að duga. Athuga þarf, hvort ekki má nota járnbita og fleira úr gömlu brúnni á Skillandsá. Einnig mundi það spara stórlega að grípa tækifærið og gera þetta um leið og Fullsæll er brúaður. Það er svo stutt milli staða.“ Síðan lýsir hann því hve sárt það sé „að ríða eftir hörðum vegum, þar sem bílastraumur með ryki og skarkala spillir mjög dásemdum okkar fagra lands.“ Stálbitabrúin frá 1966 ný endurgerð. Núverandi stein- bogi í ánni vel sýnilegur. Upplýsingar um það hvort farið var að ráðum Þorkels og stálbitar úr gömlu Skillandsárbrúnni notaðir í brúna við Brúarfoss 1966, fundust ekki hjá Vegagerðinni, en væri fróðlegt að frétta af ef einhver veit um það. Endurbætur á brúnni 2009 Þann 9. júlí árið 2009 var vígt nýtt tréverk á brúnni með samkomu og ræðuhöldum við Brúarfoss í björtu og fallegu veðri. Var brúin gerð upp í tilefni 100 ára sögu brúar á Brúará (2001) og 100 ára afmælis konungsheimsóknarinnar 1907, enda var tréverkið á brúnni frá 1966 þá orðið mjög fúið. Handrið dottið

x

Litli Bergþór

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.