Litli Bergþór - 01.12.2014, Blaðsíða 30
30 Litli-Bergþór
af að hluta og gólffjalir ótraustar fyrir hestaumferð.
Voru það Bláskógabyggð í samvinnu við Ferðafélag
Íslands, sem að frumkvæði Ásborgar Arnþórsdóttur
ferðamálafulltrúa, stóðu fyrir endurbótunum á brúnni,
en Vegagerðin lagði til styrk í verkefnið. Félagar úr
Ferðafélaginu unnu viðgerðina í sjálfboðavinnu. Er
brúin nú í góðu standi og þjónar vel tilgangi sínum
sem brú fyrir göngu- og hestafólk.
Ferð kóngs um Kóngsveginn
1907
Til gamans má rifja upp leið Friðriks VIII og
200 manna fylgdarliðs hans að stórum hluta eftir
Kóngsveginum 1. til 7. ágúst 1907. Ekki er þó alveg
ljóst hvernig beri að skilgreina veginn með því nafni,
en ekki óeðlilegt að miða við þá hluta hans sem þurfti
að gera vegna konungsferðarinnar þ. e. frá Þingvöllum
austur að Geysi og síðan niður Hrunamannahrepp að
Stóru-Laxá. Algengt mun vera að nefna aðeins hluta
vegarins, frá Þingvöllum að Geysi, Kóngsveg.
Lagt var af stað frá Reykjavík og riðið á Þingvöll,
þar sem haldin var þjóðhátíð einn dag. Svo austur að
Laugarvatni, yfir Brúarárbrú að Geysi. Morguninn
eftir gaus Geysir eftir ríflega sápugjöf og að því
loknu var farið í dagsferð að Gullfossi yfir nýja brú
á Tungufljóti og til baka að Geysi. Daginn eftir var
farið yfir Hvítá á annarri nýrri brú við Brúarhlöð,
síðan niður Hreppa hjá Álfaskeiði, yfir Stóru-Laxá á
vaði og að Þjórsárbrú. Þar var haldin búfjársýning.
Þaðan var haldið yfir Ölfusárbrú í Arnarbæli í Ölfusi,
upp Kamba, yfir Hellisheiði á Kolviðarhól, niður hjá
Lækjarbotnum og til Reykjavíkur aftur. Ferðin öll tók
ekki nema viku og hefur mátt halda vel á spöðunum.
En það er efni í aðra grein.
Brúin yfir Tungufljót frá 1907.
(Úr myndasafni Geirs Zoëga, fyrrum vegamálastjóra)
Við ný uppgerða brúna 9. júlí 2009. Séð austur yfir ána, Bjarnarfell í baksýn.