Litli Bergþór - 01.12.2014, Blaðsíða 31

Litli Bergþór - 01.12.2014, Blaðsíða 31
Litli-Bergþór 31 Að lokum fylgir með skemmtilegur fróðleiksmoli frá Baldri Þór um brýrnar á Tungufljóti og á Hvítá við Brúarhlöð, sem kóngur reið yfir, en Þær „mætti kalla „systurbrýr“. Þær voru voru eins að gerð og smíðar og uppsettar báðar 1907 af Einari Einarssyni brúasmið úr Reykjavík. Hann hefur sagt frá því í samtalsgrein (Menn og minningar eftir Valtý Stefánsson) og segir þar að: „báðar þessar brýr áttu að vera komnar upp fyrir konungskomuna“. Þær voru að sjálfsögðu notaður áfram fyrir þá umferð sem var á þessum tíma fyrir menn og hesta. Þær dugðu reyndar ekki mjög lengi því brúna á Tungufljóti tók af í flóði úr Hagavatni 1929 eins og Gísli Sig. segir í Árbók FÍ 1998 bls. 74. Brúna á Hvítá hjá Brúarhlöðum tók af ári seinna 1930 í miklu flóði. Því verður ekki annað sagt en æviskeið beggja brúarsystranna hafi verið það sama.“ Geirþrúður Sighvatsdóttir. Mynd úr bókinni „Islandsfærden“ sem kom út 1907. Hún sýnir Friðrik kóng VIII ríða að brúnni og Brúarfoss í baksýn. Það hefur þótt ástæða til að teyma undir kóngi á þessum hættulega stað og annar maður stendur á bakkanum sennileg til öryggis. Heimildir: Baldur Þór Þorvaldsson Reykjavík Gísli og Björn Sigurðssynir Úthlíð Þorkell Bjarnason Laugarvatni Jökull Sævarsson sagnfræðingur „Íslandsheimsókn Friðriks 8 Danakonungs árið 1907“, ÍSLANDSFERÐIN, Frásögn um för Friðriks áttunda og ríkisþingmanna til Færeyja og Íslands sumarið 1907“ (Ísafold gaf út 1958) „Vegagerð við erfiðar aðstæður“ Úr riti um sýninguna „Aukinn skilning mun hún færa oss, þessi Íslandsferð“, um heimsókn Friðriks VIII Danakonungs til Íslands 1907, sem haldin var í Þjóðarbókhlöðunni 2007. Örn H Bjarnason „Gamlar götur - Konungskoman árið 1907“

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.