Litli Bergþór - 01.12.2014, Page 32
32 Litli-Bergþór
Menningarmálanefnd gekkst fyrir tveimur menn-
ingargöngum í sumar. Sú fyrri var ganga eftir gamla
Kóngsveginum frá Miðhúsum og að Efstadal.
Leiðsögumenn voru Geirþrúður Sighvatsdóttir
á Miðhúsum og Björg Ingvarsdóttir í Efstadal.
Dýrindisveður var og um 50 manns nutu ferðarinnar
sem endaði með ísveislu í Fjósinu í Efstadal.
Síðari gangan var farin í september undir leiðsögn
Skúla Sælands um slóðir rúmlega aldargamals
ferjuslyss við Iðu. Um 20 manns sóttu gönguna og
kynntu sér aðdraganda og afleiðingar slyssins ásamt
afdrifum eftirlifandi fjölskyldu.
Í byrjun vetrar var síðan haldið átthagafræðinámskeið
í samstarfi við Grímsnes- og Grafningshrepp og
Fræðslunet Suðurlands. Fjöldi sérfræðinga var fenginn
til að kenna á námskeiðinu sem 17 aðilar skráðu sig á
og var haldið í Reykholti, að Borg og á Laugarvatni.
Kennarar voru Gunnar Karlsson, Jón M. Ívarsson,
Margrét Hallmundardóttir, Margrét Sveinbjörnsdóttir,
Þorsteinn Tryggvi Másson, Bjarni Harðarson,
Einar Á. Sæmundsen og Guðfinna Ragnarsdóttir.
Umfjöllunarefnið var: jarðfræði uppsveitanna, forn-
leifar, saga sveitanna á miðöldum, glæpir og refsing,
starfsemi kvenfélaganna og ungmennafélaganna, áhrif
Kreppunnar og sauðasölunnar á samfélagið ásamt
stofnun og sögu Þjóðgarðsins á Þingvöllum.
Á aðventuhátíð á Laugarvatni voru síðan
Menningarverðlaun Bláskógabyggðar veitt í fyrsta
skipti og hlaut Umf.Bisk. þau að þessu sinni fyrir
öflugt menningarstarf við varðveislu og miðlun
sögu og menningar sveitarinnar með útgáfu Litla-
Bergþórs og sögu ungmennafélagsins. Veittu
Smári Þorsteinsson formaður Umf.Bisk. og Svava
Theodórsdóttir ritstjórnarmaður verðlaununum við-
töku. Margir öflugir og færir aðilar komu til greina
við úthlutun viðurkenningarinnar og má nefna þeirra
á meðal: Jón Bjarnason organista, listakonurnar
Öldu Sigurðardóttur og Kristveigu Halldórsdóttur
eigendur Gullkistunnar og Sigurlínu Kristinsdóttir
myndlistarkonu.
Skúli Sæland
Menningarmálanefndarpistill
Sigríður Jónsdóttir, fulltrúi menningarmálanefndar, afhendir Smára Þorsteinssyni, formanni Ungmennafélagsins, og
Svövu Theodórsdóttur, fulltrúa Litla-Bergþórs, menningarverðlaun Bláskógabyggðar á aðventuhátíð á Laugarvatni.
Ljósmynd Helgi Kjartansson.