Litli Bergþór - 01.12.2014, Blaðsíða 35
Litli-Bergþór 35
íþróttir í dag snúast ekki eingöngu um að sparka eða
kasta á milli sín bolta heldur eru einstaklingsíþróttir
líkt og lyftingar og crossfit mjög vaxandi og til þess
fallnar að hver og einn æfi á eigin forsendum.
Síðastliðið vor var aftur boðið upp á leikjanámskeið.
Var metþátttaka en það var Ólafur Guðmundsson,
íþróttakennari, sem sá um námskeiðið í ár. Voru 33
börn skráð til leiks, en það eru næstum öll börnin í 1. –
5. bekk grunnskólans. Gert var ráð fyrir um 20 börnum
á námskeiði og var því brugðið á það ráð að fá Eystein
Aron Bridde til að vera Óla innan handar með hópinn.
Gekk það vel og voru börnin mjög ánægð. Eysteinn
tók svo einnig að sér að vera með knattspyrnuæfingar
í upphafi sumars og voru allmargir drengir í 1. – 3.
bekk sem nýttu sér það vel. Þess má geta að þrátt fyrir
að Eysteinn sé aðeins 15 ára náði hann vel til ungu
strákanna en hann hefur sjálfur æft knattspyrnu í 10
ár og hefur þrisvar verið kallaður í landsliðsúrtöku á
síðastliðnu ári og á vonandi framtíðina fyrir sér þar,
líkt og Sigríður Magnea í körfunni.
Að sjálfsögðu var einnig boðið upp á sundnámskeið
fyrir yngri kynslóðina og sem fyrr var það Guðbjörg
Bjarnadóttir sundkennari, sem sá um það. Ég
hvet foreldra eindregið til að fara með börnin sín á
sundnámskeið, það skilar sér sannarlega. Það er ódýrt
að fara í sund og heilsusamlegt.
Frá sunddegi á leikjanámskeiði. Þarna má meðal annars sjá Ólaf Magna, Fjölni, Tristan, Daníel, Ísak, Óðinn,
Matthías, Mettu Malín, Kjartan, Magnús, Ása, Kára Stein og Eystein Aron
Að lokum langar mig að nefna Uppsveitahringinn,
íþróttaviðburð á vegum Bláskógabyggðar og
Hrunamannahrepps, sem haldinn var í byrjun
september. Viðburðurinn var vel sóttur og þótti takast
all vel. Nú er stefnt að því að tengja viðburðinn við
hátíðina „Tvær úr Tungunum“ og langar mig mikið
til að hvetja sem flesta sveitunga til að taka þátt.
Stefnt er að því að gera viðburðinn enn stærri og
fjölskylduvænni. Við erum með marga góða hlaupara
í hópi unga fólksins og má þar sérstaklega nefna
Gústaf Sæland og Eystein Aron Bridde en þeir eiga
frábæra tíma frá því þeir tóku þátt í 10 km hlaupi í
Reykjavíkurmaraþoni 2013, Gústaf með tímann 45:55
og Eysteinn með tímann 43:36. Líklega myndu þeir ná
mjög langt ef þeir æfðu hlaup markvisst. Kári Steinn,
„atvinnuhlaupari“, var að hlaupa á tímanum 37:19 –
43:30 þegar hann var á sama aldri og okkar drengir.
Áfram strákar, farið að æfa af alvöru!
Höldum áfram að vera dugleg að hreyfa okkur í
vetur og tökum börnin með í salinn á laugardögum.
Opnunartíminn er mjög rúmur, eða frá kl. 10 - 18 og
ættu allir að geta fundið stund til að eiga góðan dag
í húsinu. Pési mun taka vel á móti öllum og aldrei
að vita nema nýji salurinn verði meira opinn fyrir
áhugasama Tungnamenn sem vilja rækta hraustan
líkama fyrir líflega sál.
Í lok leikjanámskeiðs. Daníel, Lilja, Silja Hrönn, Sunneva, Ási, Jóna Kolbrún, Unnur, Guðrún Birna, Viktor Máni,
Magnús, Tómas og Matthías Ármann, Eysteinn Aron, Iðunn, Sólrún, Saga og Elsa, Arnaldur